Morgunblaðið - 11.05.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.05.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjölskyldan efaðist ekki um árangur Haraldar Arnar Olafssonar pólfara Morgunblaðið/Sverrir Morgunblaðið/Sverrir Davíð Oddsson forsætisráðherra ræddi við Harald Örn Ólafsson þegar hann var kominn á Fjölskyldan ræðir við Harald Örn. Haukur Steinn, yngsti bróðirinn, er í simanum og for- pólinn. Davíð sagði m.a. að Haraldur væri sannur afreksmaður. eldrarnir, Sigrún Richter og Ólafur Örn Haraldsson, fylgjast með. „Var alltaf viss um að hann myndi klára þetta“ „ÉG var alltaf viss um að hann myndi klára þetta,“ sagði Sigrún Richter, móðir Haraldar Amar, sem stödd var í Útilífi ásamt manni sínum, Ólafi Erni Haraldssyni, og yngsta syni þeirra, Hauki Steini, en miðbróðirinn er staddur í Bandaríkjunum og hittir líklega hitta bróður sinn, pólfarann, þar vestra einhvem næstu daga. „Það var eitt af því síðasta sem ég sagði við hann áður en hann fór þeg- ar hann spurði hvað mér fyndist um leiðangurinn að það væri enginn efi í mér að hann myndi komast á pólinn, ef eitthvað hindraði það að hann næði væri það vegna utanaðkomandi at- vika,“ sagði bróðirinn Haukur Steinn er hann var spurður um afrek stóra bróður. Er stoltur af Haraldi Erni „Mér líður afskaplega vel og er stoltur af Haraldi," sagði Ólafur Öm um soninn. „Mér finnst ég enn einu sinni hafa fengið ákveðna staðfest- ingu á því hversu vel gerður, öruggur og heilsteyptur Haraldur er,“ og kvaðst Ólafur aldrei hafa efast um að piltur næði markinu. „Við emm bún- ir að ganga svo mikið saman og ég hef séð hann brjótast í gegnum slíka erfiðleika að það er ekkert sem stöðvar hann - nema að menn geta alltaf orðið fyrir slysi - en það varð sem betur fer ekki.“ Ólafur Öm sagði marga hafa fylgst með leiðangrinum allan tímann, hann hefði hvarvetna fundið velvilja fólks og kvað sérlega ánægjulegt hversu margir vildu gleðjast með fjölskyld- unni í gærkvöldi þegar Haraídur Óm náði á pólinn. „Mér finnst afskaplega vænt um að sjá þennan fjölda og vænt fannst mér einnig um orð for- sætisráðherra hér áðan,“ sagði Ólaf- ur Öm ennfremur. Haukur Steinn kvaðst hafa farið með bróður sínum á Vatnajökul og í ýmsar ferðir, allt á íslandi, og kvaðst hann stefna á önnur markmið fyrst Haraldur Öm hefði unnið þessi ák- veðnu afrek. Fer ekki á póla „Ég fer ekki á póla, það er nokkuð ljóst,“ sagði Sigrún spurð um fjalla- og óbyggðaferðir sínar, „ég hef farið á Vatnajökul og ýmsar styttri jökla- ferðir sem mér finnst mjög skemmti- legt og við fömm alltaf á fjöll á sumr- in.“ Fjölskyldan hefur fylgst með Har- aldi hvert fótmál, hann hringdi til skiptis heim til foreldra sinna á nótt- unni og til konu sinnar. „Við fengum fréttir á hverjum einasta degi og það var alveg ómetanlegt,“ segir móðirin og sagði það hafa gert fjölskylduna rólega „og líka vissum við að hann er mjög varkár og anar ekki út í neina óvissu." Ólafur Örn minnti á að margt þyrfti að koma til svo að leiðangur sem þessi gengi upp. „Það þarf skipulag, fjármuni, kynningu og þó að gangan sjálf sé mesta afrekið þá er það flókin smíði að koma þessu öllu heim og saman. Það má ekkert vanta í svona smíðisgrip. Ég hugsa að fjöldi manna geti í raun gengið á pólinn en það að ná saman réttum búnaði, fjármunum og eldmóði, það er ekki nema fáum gefið,“ sagði fað- irinn og kvaðst aðspurður gjarnan hafa viljað vera með en hann hefði ekki átt heimangengt. Að lokum lét fjölskyldan í Ijósi þá von að veðrið yrði skaplegt til að heimferðin gengi vel. „Nú telur mað- ur bara dagana og vonandi tefur veðrið ekki mikið,“ segir Sigrún. „Það verður að vera sólskin til að hægt sé að sækja hann svo flugmenn sjái mishæðirnar á ísnum.“ Haraldur hóf ferðina með félaga sínum Ingþóri Bjarnasyni á Ward Hunt-eyju hinn 10. mars. Framund- IHaraldur lauk í gær, 10. maí, hinni rúml. 770 km löngu göngu á pólinn frá Ward Hunt-eyju. Hann greindi frá komu sinni á pólinn i síma um kl. 21.30 í gærkvöld. an var um 800 km ganga um geysi- erfitt svæði, sérstaklega í byrjun. Frostið fór niður í 67 stig að meðtal- inni vindkælingu á fyrstu dögum ferðarinnar og færið reyndist mun erfiðara en þeir félagar bjuggust við. Ingþór varð að hætta þátttöku á 17. degi leiðangursins, vegna kals í höndum eftir að hafa brotist 86 km áfram með Haraldi. Haraldur ákvað að halda förinni áfram einn síns liðs og lauk ferðinni 10. maí, nákvæmlega samkvæmt áætlun. Unnusta Haraldar Arnar og fólk í bakvarðasveitinni í Resolute „Erum öll í skýjunum“ „ VIÐ erum öll í skýjunum, hann var að hringja og það var alveg frábært að heyra í honum," sagði Una Björk Ómarsdóttir, unnusta Haraldar Am- ar, þegar Morgunblaðið ræddi við hana í gærkvöldi í Resolute Bay þar sem hún var stödd ásamt félögunum í bakvarðasveitinni, Ingþóri Bjama- syni, Halli Hallssyni og Skúla Jó- hanni Björassyni. „Ég hef tekið þetta á sama hátt og hann, einn dag í einu og það er búið að vera Iangþráð að takmarkið næð- ist og er alveg stórkostlegt," sagði Una Björk. Kvaðst hún undir niðri ekki hafa efast um að hann myndi ná takmarkinu. „Hann var greinilega orðinn mjög þreyttur að vera á gangi í' 32 tíma en himinlifandi að hafa náð áfanganum," sagði hún og kvað Harald Om hafa þurft að af- greiða æði mörg samtöl áður en hann gat farið að fjalda og nærast. Spennufall „Nú er orðið spennufaU og aðeins er eftir að sækja Harald," sagði hún en þau sáust sfðast 1. mars síðastlið- inn. Una Björk sagði síðan stefht að því að halda frá Resolute Bay á laug- ardag og í veg fyrir vél til fslands frá Boston að kvöldi sunnudags. „Það var mjög gott að heyra í hon- um,“ sagði Ingþór Bjamason, „og stórkostleg stund að hann skuli hafa náð þessu. Hann er búinn að beijast, sérstaklega nú á endasprettinum, þegar hann hefur gengið ótrúlegar vegalengdir í langan tíma.“ Ingþór segir það ekki óeðlUegt að nyög sterk löngun hafí búið um sig hjá Haraldi síðustu dagana að klára leiðangurinn með þessum enda- spretti. „Ég skU Harald mjög vel að hafa gert þetta svona, ég fann að hann var þreyttur en glaður og ánægður að þessu er nú náð,“ sagði Ingþór og kvaðst eiga von á miklum fagnaðarfundum á föstudag. Veður- útlit væri gott og því von til þess að hægt yrði að ná í pilt. „Þetta er stór stund og ótrúlegt afrek sem Haraldur er búinn að vinna og mér finnst það gleðilegt að hann skyldi geta haldið áfram og lokið förinni á þeim tíma sem við áætluðum í upphafi, 10. maí,“ sagði Ingþór sem kveðst hafa svo gott sem jafnað sig í höndunum eftir að hann kól sem varð tíl þess að hann varð að hætta eftir um þriðjung leiðarinnar. „Ég var nyög heppinn og enginn efi um að ákvörðunin var rétt að hætta, það var raunsætt enda hef ég séð aðra sem hafa farið verr út úr svona og ég er ekki að syrgja það, þótt það hefði verið gaman að vera með hon- um á pólnuin." Er bersýni- lega í góðri þjálftin „MÉR finnst stórkostlegt að hann skuli hafa náð þessum árangri og brotist þessa leið einn,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra þegar hann var spurður um afrek Har- aldar Arnar Ólafssonar. „Hann er bersýnilega í góðri þjálfun og býr yfir stóískri ró og einbeittum vilja sem þarf fyrir utan þekkingu á stað- háttum og ég samgleðst piltin- um innilega með afrek hans,“ sagði ráðherra ennfremur. Hann kvaðst aðspurður gjarn- an hafa viljað taka þátt í svona leiðangri. „Ef ég hefði haft einhverja getu til þess en Úlf- arsfell er nægilegt fyrir mig.“ Davíð kvaðst hafa fylgst með göngu Haraldar, bæði gegnum fjölmiðla og eins hefði hann fengið meiri fréttir hjá föður hans, það hefðu verið hæg heimatökin í þinginu að spyrja hvernig hefði gengið. „Það er mikilvægt að ungir fs- lendingar sýni á þennan hátt hvað í þeim býr. Ég hygg að það séu afskaplega fáir menn sem hafa farið á báða pólana fyrir eigin atbeina að minnsta kosti.“ Ma iÁí wemt. Með því að nýta sér þjónustu Heimilislínu og Heimilisbankans á Netinu, má ná fram hagstæðari vaxtakjörum og umtalsverðum sparnaði í þjónustugjöldum - og það kostar ekkert að gerast áskrifandi. Þar með tryggir þú þér hærri innlánsvexti, lægri útiánsvexti, sparar kostnað af færslum, millifærslum og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma. ®BÚNAÐARBANKINN HEIMILISLÍNAN Traustur battki www.blb
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.