Morgunblaðið - 11.05.2000, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.05.2000, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 2000 1 5 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Morgunblaðið/Kristinn Magnús Már Einarsson, Jón Ásgeir Þorvaldsson, Pétur Ingi Jónsson, Daníel Ingi Ingimarsson, Davíð Karl Wiium og Eggert Kristjánsson. Yölundarhúsið vinsælast „VIÐ erum að gera líkan að gamla skólanum eins og hann átti að vera í upphafi," segja 6 kotrosknir strákar úr 5. bekk og einn bendir í átt að „Svarta skóla“ „Veistu að þarna átti að vera hest- hús og kennarabústaður hin- um megin við gamla skóla- húsið? Líkanið verður þrisvar sinnum stærra en teikningin," segja þeir og gera lítið úr því að erfitt hafi verið að reikna út hlutföllin. Hins vegar virðist mun meiri áhugi á fótbolta en hönnun í hópnum. „Ég ætla að verða atvinnufótboltamaður og græða peninga þegar ég er orðinn stór,“ segir Magnús og annar lumar þvf út úr sér að varla nokkurt lið muni vilja kaupa hann. „Ég stofna bara lið sjálfur," svarar hann hvergi banginn og hin- ir hlæja og velta því fyrir sér hvort Eggert geti hugsan- lega orðið arkitekt. „Ég hef nefnilega engan sérstakan áhuga á fótbolta," svarar hann og hinir upplýsa að Eggert sé afbragðsnáms- maður og teiknari. Þeir segj- ast allir bíða spenntir eftir að komast í Uppgötvunar- miðstöðina og völundarhúsið er efst á vinsældarlistanum. Ekki spuming! Allir nemendur uppi á vegg „ VIÐ stelpumar höfúm venð að taka svart/hvítar and- litsmyndir af öllum krökkun- um í skólanum. Núna emm við að framkalla og verðum að skiptast á af því að ljós- myndakompan er svo lítil,“ segir Steinunn Þórsdóttir nemandi í 10. bekk og for- maður skólafélagsins. Steinunn segir að stækkað- ar ljósmyndirnar verði límd- ar á stórt blað og komið fyrir uppi á vegg. Blaðið verði hluti af afmælissýningunni um helgina. „Strákarnir era að gera heimildarmynd um skólastarfið. Eins og þú sérð standa tökur enn yfir. Þeir em búnir að taka á margar spólur og eiga eftir að klippa myndina niður í eðlilega lengd. Heimildarmyndin verður væntanlega látin rúlla á afmælishátíðinni um helg- ina.“ Steinunn hrósar skólanum. „Klébergsskóli er lítill og auðvelt að ná til allra nem- endanna. Hver og einn hefur mun meira að segja en í' fjöl- Morgunblaðið/Kristinn Steinunn viðurkennir að líklega eigi hún eftir að sakna Klébergsskóla þeg- ar hún sest á skólabekk í MR í haust. mennari skólum,“ segir hún og tekur fram að andinn í skólanum sé góður. Eins og Pétur segist hún mest hlakka til að reyna sig í Upp- götvunarmiðstöðinni. „Ég hlakka líka til að sjá heimild- armyndina," segir hún og jafnaldrar hennar kinka kolli. Langbest að vera einn „MÉR finnst langbest að vera einn og fá að ráða öllu sjálf- ur,“ segir Pétur Jónsson í 7. bekk ákveðinn í bragði og sýnir blaðamanni stoltur lík- an af skólahúsi. „Ég byijaði á mánudaginn. Stefnan er auð- vitað að klára fyrir afmælis- sýninguna á laugardaginn. Líkanið sýnir skólann eftir 30 ár. Aðalbreytingin er að veggirnir í einni byggingunni verða úr gleri. Já - og þakið hérna líka,“ segir hann og snýr sér að líkaninu. Hann er spurður að því hvers vegna hann hafi veðjað á glerið og svarar að bragði: „Gler er einfaldlega nýtískulegt." Pétur segist hlakka til af- mælishátíðarinnar og mest af öllu að fá að reyna sig í Upp- Morgunblaðið/Kristinn Pétur með líkan að Klé- bergsskóla eins og hann hugsar sér að skólinn líti út eftir 30 ár. götvunarmiðstöðinni. Hann og hinir krakkarnir í bekkn- um eru sammála um að Klé- bergsskóli sé góður skóli. „Krakkarnir era skemmti- legir. Nú svo er miklu meira af grasi en malbiki," segir Pétur og Ágúst Freysson slær botn í svarið. „Klébergs- skóli er einfaldlega bestur." Morgunblaðið/Kristinn Snorri Hauksson aðstoðarskólastjóri og Sigþór Magnússon skólastjóri segja að kennaraliðið vinni baki brotnu að undirbún- ingi hátíðarinnar. Stórafmæli elsta grunnskóla Reykjavrkurborgar Uppgötvunarmiðstöð á 70 ára skólaafmæli Kjalames KLÉBERGSSKÓLI á Kjal- arnesi fagnar 70 ára afmæli skólans með veglegri afmæl- ishátíð nk. laugardag. Einn liður í hátíðardagskránni er opnun Uppgötvunarmið- stöðvar í íþrótttahúsi skólans. Með sameiningu Reykjavíkur og Kjalarness varð skólinn elsti starfandi grunnskóli í Reykjavík. Austurbæjarskóli við Barónsstíg er ári yngri. Saga bamaskóla á Kjalar- nesi er jafnvel enn lengri því að sagt er fráþví í Sögu sveit- arstjórnar á Islandi að börn- um hafi verið kennt í sérstöku skólahúsi á Hofsbökkum á Kjalarnesi skólaárið 1903 til 1904. Engum sögum fer af því af hverju skólahald féll niður í húsinu og var ekki tekið upp síðar. Hins vegar hafa varð- veist heimildir um að hrepp- snefnd hafi samþykkt teikn- ingar af nýjum heima- vistarskóla 15. janúar árið 1929. Sú spurning brennur á vör- um hvers vegna fámennt sveitarfélag eins og Kjalar- neshreppur hafi ákveðið að taka jafn stórt framfaraskref á sínum tíma. „Þarna fléttast væntanlega saman umhverf- isáhrif og einbeittur vilji,“ segir Sigþór Magnússon skólastjóri. „Eftir aldamótin sveif andi sjálfstæðisbarátt- unnar yfir vötnunum. Fjár- magn ýtti undir vilja til fram- fara eins og sést þegar litið er til sögunnar. Ekki var því að sökum að spyrja þegar hópur framfarasinna fór í broddi fylkingar í hreppi eins og Kjalarneshreppi. Abúendur á Vallá gáfu land undir skóla- bygginguna og látið var til skarar skríða. Hinu er heldur ekki að leyna að við hönnun hússins var tekið mið af því að húsakynnin gætu gegnt hlut- verki félagsheimilis þegar á þyrfti að halda,“ segir hann. Fram kemur að húsið hafi verið teiknað af Guðjóni Sam- úelssyni, þáverandi húsa- meistara ríkisins, í samvinnu við Ásgeir Ásgeirsson, þáver- andi fræðslumálastjóra, síðar forseta. ,Á- teikningunni er stærsta herbergið merkt fundarherbergi og þar var oft dansað dátt í gegnum tíðina. Aðeins ein skólastofa var í húsinu og talsvert rými ætlað undir heimavistina enda komu börnin frá sveitabæjum í öllum hreppnum. Þau voru um 15 og dvöldust í um 7 mánuði á hverju ári í skólan- um.“ „Svarti skóli“ hverfur ekki Sigþór segir að lengst allra hafi Olafur Kr. Magnússon stýrt skólanum frá 1945 til 1979. Ólafur hafi heldur ekki látið sér nægja að sinna skóla- stjórnuninni því að hann og eiginkona hans hafi séð um póststöð fyrir byggðina um árabil. Þá hafði heilsugæslan einnig aðstöðu í skólanum um árabil. „Lengst af rúmaðist skólastarfið vel í gamla skóla- húsinu. Smám saman tók að myndast byggðarkjarni í tengslum við starfsmenn Arn- arholts. Börnum fjölgaði og huga þurfti að stækkun skól- ans. Tvær skólastofur vorur reistar og skírðar eftir dökkri klæðningunni „Svarti skóli“ árið 1977,“ segir Sigþór og bendir í átt að snyrtilegu hvít- máluðu húsi á skólalóðinni. „Jú, sjáðu til - nafnið hélst eftir að svarta klæðningin hafði verið máluð hvít. Teikn- ingar af nýrri álmu við skól- ann gera ráð fyrir að „Svarti skóli“ verði rifinn. Rétt áðan stakk einn nemendanna upp á því að við létum nýju álmuna halda nafninu. Þrátt fyrir allt er því hugsanlegt að við höld- um Sorbonne." Þróunin hélt áfram og unglingastigi var bætt við skólann árið 1987. „Nemend- um fjölgaði m.a. vegna þess að farið var að taka við nem- endum úr 8. til 10. bekk úr Kjósinni. Skólinn var því stækkaður með nýrri álmu árið 1987. Núna er gert ráð fyrir að framkvæmdir við nýja álmu geti hafist í sum- ar,“ segir Sigþór og bætir því við að nýja álman verði alls 1.500 fm að flatarmáli. „Með nýju álmunni fáum við mötun- eyti, sérgreinastofur og sal. Viðbrigðin verða því umtals- verð þegar nýja álman verður tekin í notkun eftir tvö til þrjú ár.“ Sigþór hefur verið skóla- stjóri í Klébergsskóla í um 10 ár. „Nemendur hafa verið á bilinu 90 til 130 og er skóla- hverfið allt umhverfis Esjuna. Alls aka sex skólabflar á bil- inu 40 til 50 bömum úr ná- grenninu í skólann á hverjum degi. Börnin geta verið um eina klukkustund á leiðinni í skólann. Annars hefur börn- um í skólaakstri farið frekar fækkandi hin síðari ár,“ segir hann og er inntur eftir því hvaða kostir fylgi því að halda uppi skólastarfi í jafn fámenn- um skóla. „Fyrst og fremst felast kostirnir í því að auð- velt er að skapa persónuleg tengsl við nemendur og for- eldra. Kennarar veita pers- ónulegri þjónustu og eru fljót- ir að greina og taka á ýmsum vandamálum. Við leggjum metnað okkar í að halda uppi öflugu þróunarstarfi. Kennar- ar, foreldrar og nemendur eiga auðvelt með að nálgast ítarlega handbók um skóla- starfið á vefsíðu skólans." Kennarar nýta sér nábýlið við náttúruna með ýmsum hætti. „Ef gott er veður er auðvelt fyrir okkur að ákveða að nota tækifærið og fara gönguferð. Annað dæmi er að fengið sé leyfi hjá foreldri til að heimsækja fjós í nágrenn- inu. Foreldrar hafa verið í nánum tengslum við skólann og ólatir að greiða götu skóla- starfsins innan og utan veggja skólans," segir Sigþór og minnist á hvað áhrif sam- einingin við Reykjavík hafi haft fyrir skólastarfið. „Sam- einingin hefur valdið því að fjármagn til skólans hefur aukist. Skólanum er séð fyrir búnaði með sama hætti og skólanum inni í Reykjavík, t.d. fengum við hingað full- komið tölvuver. Enn er hægt að nefna hversu gott hefur verið að geta leitað til Fræðsl- umiðstöðvar með ýmsan vanda. Samstarfið við Fræðslumiðstöð og ÍTR í kringum íþróttahúsið og reksturinn á félagsmiðstöð- inni hefur gengið vonum framar." Skóladagurinn í Klébergs- skóla er samfelldur frá kl. 8.30 til 14.30. Um 40% nem- enda sækja tónlistamám í skólanum á skólatíma. „Engin eftirspurn hefur verið eftir skólavistun eftir að fonnleg- um skóladegi lýkur. Ég hef stundum grínast með að ástæðan fyrir því sé að barna- píurnar komi heim úr skólan- um á sama tíma og litlu börn- in,“ segir Sigþór og er spurður um árangur nem- enda á samræmdum prófum. „Árangurinn hefur verið tals- vert sveiflukenndur eins og oft vill verða í fámennum skólum. Skólinn hefur verið allt frá því að vera talsvert undir meðallagi upp í að vera bestur í Reykjavík fyrir þremur árum. Sá árangur kom ekki fram opinberlega því að nemendafjöldinn náði ekki tilskildu lágmarki." Völundarhús frá Kanada Einn liður í hátíðardag- skránni er opnun Uppgötvun- armiðstöðvar í íþróttahúsinu. „Einn liður í þróunarstarfinu fólst í því að kennarar við skólann fóru í námsferðalag til Halifax í Kanada árið 1998. Hópurinn skoðaði skóla og fór í svokallað Discovery Center. Við vorum svo heilluð að eftir heimkomuna ákváðum við að sækja um styrk til mennta- málaráðuneytisins til að fá hluta af sýningunni hingað heim. Eftir að styrkurinn fékkst vorum við of upptekin í verkefnum í tengslum við sameininguna við Reykjavík til að halda áfram. Við tókum svo upp þráðinn fyrir stuttu og erum að setja upp tvær sýningar frá Kanada úti í íþróttahúsi. Annað höfum við fengið frá íslenskum fyrir- tækjum eða er búið til í skól- anum. Uppgötvunarmiðstöð- in gengur út á að gefa börnunum kost á að upplifa hvers kyns tækni og vísindi í gegnum alls konar þrautir, t.d. kemur um 100 fm völund- arhús með fróðleik um stjörn- ufræði frá Kanada. Eftir af- mælið verður Uppgötvunar- sýningin opin almenningi á ákveðnum tímum fram á sum- ar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.