Morgunblaðið - 13.10.2000, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hörður Sigurgestsson afhenti Ingimundi Sigurpálssyni lyklavöldin í Eimskipafélagi íslands
Komið að endur-
menntunarstiginu
HÖRÐUR Sigurgestsson tók á móti
Ingimundi Sigurpálssyni eftirmanni
sínum á forstjóraskrifstofunni í hvíta
húsi Eimskipafélagsins við Hafnar-
stræti um níuleytið í gærmorgun.
Þangað voru einnig mættir Bene-
dikt Sveinsson, stjórnarformaður
Eimskips, og aðrir stjómendur fyrir-
tækisins.
Við þetta tilefni afhenti Hörður
Ingimundi lyklavöldin að íyrirtækinu,
sagði að þau væru í sjálfu sér hvorki
mikil né merkileg en starfið sjálft
hefði hins vegar gefið sér mikið.
Þakkaði hann sérstaklega starfsfólki
Eimskips fyrir gott samstarf gegnum
áiin og óskaði eftirmanni sínum vel-
famaðar í starfi.
Bað hann sérstaklega að heilsa eig-
inkonu Ingimundar, þar sem hún
myndi finna mikið íyrir þessu starfi á
næstu ámm, um það gæti hann sjálf-
ur vitnað af eigin reynslu.
Þakklæti efst í huga
Ingimundur tók við lyklunum úr
hendi Harðar. Hann sagðist taka við
góðu búi af forstjóra sem unnið hefði
mikið og farsælt starf. Vildi hann
ítreka að hann væri uppnuminn yfir
nýjum verkefnum og staðráðinn í að
gera sitt besta. Meira væri víst ekki
hægt að ætla sér.
Hörður sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sérstakar tilfinningar bærð-
ust í sér við þessi tímamót.
„Eg hef aldrei gert það áður að
hætta störfum af þessu tagi, þótt ég
hafi áður farið á milli staða, þannig að
það er eins og maður sé svolítið á
floti,“ sagði hann.
Hörður sagðist á sama tíma vera
afar þakklátur fyrir þann tíma sem
hann hefði verið við störf. Vel hefði
gengið að reka fyrirtækið áfallalaust í
21 ár og hann væri ekki síst þakklátur
í garð sinna yfirmanna, stjómar fyrir-
tækisins, fyrir að hafa veitt sér tæki-
færi til að gera það. Þá vildi hann líka
koma á framfæri þakklæti til starfs-
fólks fyrirtækisins gegnum árin.
„Samvinna mín og samstarf við
þrjá síðustu formenn stjómar félags-
ins hefur verið mjög ánægjulegt og
hnökralaust. Ég kom hingað sem
ungur maður og það var að sjálfsögðu
mikil ögrun. Að sama skapi var mér
sýndur mikill trúnaður."
Heilmikill lífsins skóli að vinna á
gömlu höfninni sem drengur
I kveðjuávarpi sínu til starfsmanna
Eimskips á miðvikudag lýsti Hörður
fyrstu kynnum sínum af fyrirtækinu.
„Ég vann fyrst sem sumarmaður
hjá Eimskipafélaginu í A-skálanum í
gömlu höfninni og það var heilmikill
lífsins skóli að fá að vinna þar með
mikilúðlegum og harðsnúnum hópi í
hafnarvinnunni. Það var upphafið að
mínum lífsins skóla; þar lærði maður
að vinna með skipulegum hætti og að
svara fyrir sig. Maður drakk í sig
endalausa pólítíska umræðu enda
margt af þessu fólki með mikla
reynslu að baki.
Síðan sagði ég sem svo að fyrir 21
ári hefði mín framhaldsmenntun haf-
ist. Nú finnst mér sem komið sé að
endurmenntunarstiginu. Ég hef ekki
skipulagt það til hlítar en ætla svo
sannarlega að gera ýmislegt nú sem
ég hafði ekki tíma til áður. Það að
reka fyrirtæki eins og Eimskip er
nefnilega ekki vinna frá 9 til 5.“
Hörður segist enn hafa á sínu borði
nokkur stjómarverkefni sem hann
hafi áhuga á. Hann eigi einnig sæti í
Háskólaráði og af því verkefni hafi
hann mikla ánægju.
„Síðan ætla ég bara að sjá til. Verði
einhverjar ki'ossgátur á vegi mínum
hef ég vafalaust áhuga á að taka þátt í
að leysa þær. Ég geri hins vegar ráð
fyrir að ljúka störfum mínum í at-
vinnulífinu með þátttöku í stjómum
fyrirtækja og svipuðum störfum.
Ég er hins vegar að láta af störfum
til að hafa meiri tíma til að sinna
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hörður Sigurgestsson býður Ingimund Sigurpálsson velkominn til starfa.
Á milli þeirra stendur Benedikt Sveinsson, sijómaformaður Eimskips.
minni fjölskyldu, hún hefur ekki séð
allt of mikið af mér síðustu tvo ára-
tugina. Ég ætla einnig að lesa fleiri
bækur, sjá fleiri kvikmyndir, sækja
fleiri tónleika og ferðast. Það liggur
sumsé ýmislegt fyrir,“ sagði Hörður
enn fremur brosandi.
Fyrii-tækið vel rekið
Ingimundur Sigurpálsson sagði
Morgunblaðinu, þar sem hann sat í
nýrri skrifstofu sinni, að þar með væri
fyrsti vinnudagurinn hafinn og fram-
undan væra mikil og verðug verkefni.
„Það sést af reikningum að þetta
fyrirtæki er og hefur verið vel rekið.
Eg tek þannig við góðu búi og því er
ekki rétt að gera ráð fyrir miklum
áherslubreytingum í rekstrinum.
Nýjum manni fylgja alltaf nýjar
áherslur en ég mun gefa mér góðan
tíma til að setja mig inn í málin,“ sagði
hann.
Ingimundur hefur verið bæjar-
stjóri í Garðaba; síðan 1987 og hann
mun áfram sitja í bæjarstjóm, enda
kjörinn fulltrúi, fram að næstu sveit-
arstjórnarkosningum. „Þessi störf
era vissulega af öðram toga en ég er
fullur tilhlökkunar að takast á við ný
og spennandi verkefni."
Ingimundur er viðskiptafræðingur
frá Háskóla íslands og stundaði fram-
haldsnám við George Washington
University í Washington, höfuðborg
Bandaríkjanna. Hann er 49 ára að
aldri og kvæntur Hallveigu Höllu
Hilmarsdóttur. Þau eiga þijá syni.
Morgunblaðið/RAX
Drengnrinn sem
slasaðist á höfði
A batavegi
DRENGURINN sem slasaðist
alvarlega á höfði í fyrradag er á
batavegi að sögn læknis á
Landspítala - háskólasjúkra-
húsi í Éossvogi. Hann er þó enn
á gjörgæsludeild. Drengurinn
var fluttur með þyrlu Land-
helgisgæslunnar frá Stykkis-
hólmi á slysadeild spítalans í
fyrradag eftir að hafa fallið á
höfuðið. Hann gekkst þegar
undir aðgerð og er nú á bata-
vegi eins og fyrr segir.
Þrjár breið-
þotur Atlanta
samtímis við
Leifsstöð
ÞRJÁR breiðþotur Flugfélagsins
Atlanta voru samtímis um tíma á
Keflavíkurflugvelli í gær og fyrra-
dag meðan stund gafst milli stríða.
Voru það tvær Boeing 747-200 og
ein 747-300. Tvær þeirra héldu á
brott í býtið í gærmorgun með far-
þega Samvinnuferða-Landsýnar.
Onnur hélt til Dublin og hin til Búda-
pest. Sú þriðja heldur siðan á sunnu-
dag til Rio de Janeiro í Brasiliu með
ferðalanga í Heimsklúbbi Ingólfs.
Hæstiréttur hafnar 27 millj. kr. skaðabótakröfu Kio Briggs
Lögmæt skilyrði og fullt
tilefni til gæsluvarðhalds
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og
sýknað íslenska ríkið af 27 milljóna
króna skaðabótakröfu Bretans Kio
Alexander Briggs.
Briggs var handtekinn við komu
til landsins 1. september 1998 og
fundust rúmlega 2.000 e-töflur í fór-
um hans. Hann var sýknaður af
ákæra um innflutning á efninu og
höfðaði í kjölfar þess skaðabótamál
þar sem hann krafðist 27 milljóna
króna vegna rúmlega tíu mánaða
frelsisskerðingar á áranum 1998 og
1999 þegar hann sat í gæsluvarð-
haldi og síðar farbanni. Ríkið var
sýknað af kröfu hans með dómi Hér-
aðsdóms Reykjavíkur í febrúar.
Briggs var handtekinn í Dan-
mörku í nóvember í fyrra með 800
e-töflur og var dæmdur í 12 mánaða
fangelsi. Málarekstur hans hér á
landi vegna skaðabótakröfunnar hef-
ur því verið að honum fjarstöddum.
Stuðlaði sjálfur að
aðgerðum gegn sér
Hæstiréttur segir að telja verði að
lögmæt skilyrði og fullt tilefni hafi
legið til þess að Briggs var úrskurð-
aður í gæsluvarðhald í framhaldi af
komu hans til landsins þegar um
2.000 e-töflur fundust í farangri
hans. Við áframhaldandi meðferð
málsins hafi framburður hans verið
því mai-ki brenndur að rannsóknar-
mönnum hafi verið torvelt að ganga
úr skugga um sannleiksgildi hans en
í ákveðnum atriðum var framburður-
inn ekki talinn standast.
Að þessu athuguðu hafi framferði
Briggs við meðferð málsins verið
með þeim hætti að hann hafi stuðlað
að aðgerðum gegn sér í skilningi
VEGFARANDI tilkynnti Neyðar-
línunni um eld í álveri ísal í
Straumsvík skömmu eftir hádegi í
dag en hann kvað mikinn reyk stíga
upp úr kerskála þess. Slökkviliðs-
bflar frá Hafnarfirði og Reykjavík
vora þegar kallaðir út. Nokkram
mínútum síðar var þó boðið um eld
afturkallað en þá hafði komið í ljós
að reykurinn stafaði ekki af því að
eldur væri laus heldur hafði komið
laga um meðferð opinberra mála.
„Er þáttur hans að þessu leyti svo
stórvægilegur að fallast verður á þá
niðurstöðu héraðsdóms að ekki séu
lagaskilyrði til að dæma honum bæt-
ur vegna gæsluvarðhalds og far-
banns þess sem hann var úrskurð-
aður til að sæta þar til endanlegur
dómur gekk í máli hans. Vora úr-
skurðir þar að lútandi fyllilega lög-
mætir og framkvæmd aðgerða gagn-
vart áfrýjanda í samræmi við lög,“
segir Hæstiréttur.
gat á ker og nokkur tonn af bráðnu
áli höfðu flætt niður í kjallara sem
er undir kerjunum. Súráli var
dreift yfir sjóðheitt álið til kælingar
og úr varð mikill reykur. Blaðafull-
trúi ísal segir enga hættu hafa ver-
ið á ferðum, slík óhöpp verði af og
til. Það sé þó ekki undarlegt að
vegfarendum bregði í brún þegar
svo mikill reykur stígur upp af ál-
verinu.
Alverið í Straumsvík
Reykur en enginn eldur
|Bor0imí>Iaþtb
BÍÓBLAÐIÐ
Á FÖSTUDÖeUM
Morgunblaö-
inu í dag
fylgir blað
frá Slysa-
varnafélag-
inu Lands-
björg:
„Umferðar-
öryggismál“
Fylgstu
/pfáB? með nýjustu fréttum
Guðmundur Torfason tekur við þjáifun hjá ÍR/Bl Guðmundur Benediktsson www.mbl.is
hafnaði tilboði KR-inga/Bl