Morgunblaðið - 22.12.2000, Side 75

Morgunblaðið - 22.12.2000, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000 75 -----------------------------4 Hári prýtt hetjurokk TONLIST Geisladiskur FALK Falk, geisladiskur Guðlaugs Falk. Guðlaugur, eða Gulli eins og hann er jafnan kallaður, spilar á raf- og kassagítar en honum til aðstoðar eru þeir Jóhannes Eiðsson (söngur), Guðmundur Gunnlaugsson (tromm- ur og tambórínur) og Jón „Richter11 Guðjónsson (raf- og kontrabassi). Einnig koma við sögu þeir Steinar Logi Nesheim (bakrödd), Haraldur Vignir Sveinbjörnsson (bakrödd), Hannes Heimir Friðbjörnsson (kúa- bjalla og kastaníettur), Magnús Ás- valdsson (tambúrínur og hristur), Pálmi J. Sigurhjartarson (píanó), Sigurður Sigurðsson (munnharpa) og Sigfús Ottarsson (trommur). Lög og textar eru eftir Gulla fyrir utan að S. Dagbjartsson á hlut í tveimur þeirra. Upptökum stýrði Gulli Falk. 40,09 múi. Weird Re- cords gefa út. ÞAÐ virðist enginn vita betur en Gulli Falk að í raun er ekkert nýtt undir sólinni hvað viðkemur tónlist- arsköpun, alla vega ef tillit er tekið til þessarar einherjaskífu hans, Falk, sem er hans önnur. Platan er hæglega ein sú ófrumlegasta sem ég hefi heyrt á árinu en Gulli negldi stíl hennar niður sjálfur fullkomlega er hann sagði „þetta er svona amerískt þungarokk af gamla skólanum,“ í ný- legu viðtali við Morgun- blaðið. Tónlistin er ein- mitt 100% samsuða úr sögu hins sígilda þungarokks, hristingur af Anthrax, Van Halen, Judas Priest, Dio, Rainbow og [bætið við eftir smekk]. Nú má alls ekki misskilja þennan inngang sem einhvern niðurníðing. Ofangreint er einfaldlega staðreynd. Sem slík rokkar platan hins vegar bara skrambi vel. Lögin eru haglega samansoðnir lofsöngvar til báru- járnsgyðjunnar en Gulli er sjóaður bárujárnsbísi, var, ásamt bassaleik- aranum, hinum goðsagnakennda Jóni „Richter“, hér áður fyrr í hinni ótrúlegu sveit Exizt sem lék hetjuþungarokk í hæsta gæðaflokki. Ég er þó ekki frá því að Gulli finni sig betur hér, er einhvern veginn meúa niðri á jörðinni á meðan Exizt, blessuð sé minning þeirra, hætti til að ofgera sér í einhverjum þunga- rokksleik. Rokkið hér er meira hreint og klárt, ekkert afkái'alegt glys í gangi og hljómsveitin er skemmtilega þétt. Það er engin óþarfa sýndarmennska í „sólóun- um“, þau þjóna bara lögunum á fremur eðlilegan hátt. Gulli gerir svo nokkuð af því að brjóta hefðbundna frasauppbyggingu upp með klingj- andi gítarspili sem minnir nokkuð á rokksveitina framsæknu Rush og er það vel. Mikill fengur er að söngv- aranum Jóhannesi Eiðssyni. Hann kann vel lagið á rokksöngnum, býr yfir sterkri röddu, og á auðvelt með að hækka hana og lækka eftir þörf- um. Það er ekki hægt annað en að brosa breitt og jafnvel hlæja eilítið í kampinn er maður heyrir söngtext- ana sem eru ekkert annað en stór- kostleg meistaraverk klisjunnar, gegnsær leirburður um mótorhjól, sviknar ástir og önnur sígild minni þungarokksins. Toppn- um er náð með línunni „I wonder through the streets alone“ (svo). Ég þori næstum því að staðhæfa að ein- mitt þessi setning sé ofnotaðasta lína allra tíma í þungarokk- inu. Ég er þó ekki frá því að það myndi vanta eitt- hvað ef hún væri ekki hérna. Að lokum ber að geta þess að prófarkalestri umslags er verulega ábótavant en það eru nú svo sem engin nýmæli í íslenskri hljómplötu- útgáfu. Einnig er hönnun þess og út- lit ekki upp á marga rokkfiska. Mér sýnist Gulli hafa náð tak- marki sínu hér og vel það. Platan rokkar feitt, svo einfalt er það nú, og Falk er meira en kjörin í fjörmjólk- urvæn flösuhristingsteiti íslenskra rokkhunda til sjávar og sveita. Eða eins og einhver æringinn sagði: „Meira metal, meira hel...“ Arnar Eggert Thoroddsen Jamie Oliver kennir okkur að kokka Kviknakinn kokkur NÝVERIÐ kom hér á landi út mat- reiðslubókin og myndbandið Kokkur án klæða. Kokkurinn heitir Jamie Oliver og er hann tjalli, ungur og óheflaður. Þótt heiti bókarinnar gefi það kannski til kynna þá matreiðir hann ekki á adamsklæðunum heldur tengist því að hann hefur getið sér gott orð fyrir að koma til dyranna eins og hann er klæddur þegar mat- reiðslan er annars vegar. Allt síðan matreiðsluþættir hans sem nefnast The Naked Chef hófust á BBC-sjónvarpsstöðinni hefur stjarna hans risið jafnt og þétt í heimalandinu þannig að nú er svo komið að hún er í viðlíka hæðum og stjörnur poppara ogjafnvel fótbolta- kappa. Meginástæðan fyrir því að sjónvarpskokkur hefur náð slíkri hylli er fas Olivers og þær aðferðir sem hann notar við að sýna manni hvernig elda á góðan mat. Hann er ekki uppstrílaður, hvítklæddur með svuntu og kokkahúfu, þegar hann eldar heldur er hannjafnaní hversdagslegum fötum - í galla- buxum og bómull- arbol. Hann kokk- ar heldur ekki eftir bókinni, er ekkert að fara ná- kvæmlega eftir einhverjum upp- skriftum heldur predikai' afslapp- aða eldamennsku þar sem smekkur hvers og eins skal ráða ferðinni. Það sem meira er þá ku Oliver hafa einkar.gott lag á að tendra áhuga á eldamennskunni - slík er ástríða hans fyrir viðfangs- efninu. Þessi einföldu og hversdagslegu vinnubrögð þykja skila því að áhorf- endur virðast treysta sér frekar til að spreyta sig í eldhúsinu og reyna við réttina hans Olivers. Kokhrausti kokkurinn hann Oliver. Páll Torfi gefur út Timbúktú Það er aðfangadagur og klukkan er 17:59. VP Eftirvænting og óþreyja. Sælutilfinning. í Byggt og búið færðu allt til að gera jólin ánægjuleg: réttu gjafirnar og alveg glimrandi jólaskraut. byggtogbúió Morgunblaðið/Þorkell Páll Torfí hefur ólæknandi ást á suðrænni tónlist. framtíðin var ráðin... að hálfu leyti. TIMBÚKTÚ heitir hressileg plata í suðrænum sveiílu, þar sem höfundur laganna er gítarleikarinn og lækn- irninn Páll Torfi Önundarson. Hann hefur oft látið til sín taka í íslenskum tónlistarheiminum, og á sínum tíma var hann í hinni rómuðu sveit Diabol- us in Musica. I fyrra gaf hann út plötu með hljómsveitinni sinni Six Pack Latino, og nú hefur hann aftur fengið valda tónlistamenn til liðs við sig. Lagið sem hvarf „Timbúktú er nú eitt af aðallög- unum sem við vorum alltaf að spila í gamla daga með Diabolus in Musica. Fyrir mistök lenti það á safndiski áð- ur en við gáfum út Hanastél á Jóns- messunótt, þannig að fólki fannst ekki hægt að setja það strax aftur á plötu, og það eiginlega hvarf. Það er nú önnur góð skýring á því hvarfi, sem var að ég var látinn syngja lagið sjálfur,“ segir Páll og hlær. „Nú syngur Egill Ólafsson það, en við vorum kórfélagar í Hamrahlíð- arkómum. Hann var ætíð betri söngvari en ég, það má hann eiga.“ Klassísku lögin Pétur Jónatanson og Sautján stig og sól, sem margir þekkja svo vel, prýða einnig nýju plötuna. „Þessi þrjú lög hafa lifað nokkum veginn allan tímann þannig að þegar við höfum verið að spila þau á uppákomum þá tekur salurinn allt- af undir. Mér finnst það dálítið merkilegt." „Ég hef fengið þau viðbrögð frá mörgum konum að Pétur Jónatans- son sé uppáhaldslagið þeirra, en ég hef aldrei heyrt neinn karlmann segja það. Hins vegar era margir karlmenn sem halda að lagið sé um sig. Þeir taka til sín textann, en ég ætla ekki að nefna nein nöfn!“ segir Páll sposkur. „En þegar kom að upp- tökum reyndist það erfiðasta lagið, því að allir (nema ég) hafa svo fast ákveðnar skoðanir á því hvernig lag- ið eigi að hljóma." Önnur lög á diskinum hefur Páll samið á undanfömum 25 áram. „Lagið Tangó í myrkri var samið í Hamrahh'ðinni og var hluti af svítu, og er hér í þeirri mynd sem ég hugs- aði því upphaflega; nokkurs konar tangó, reyndar svolítið óræður í myrkrinu en breytist í all taktviss- an,“ segir Páll dularfullur. „Lagið Habanera sem er svo kúbanskari ' tangó, nær rúmbunni." - Hvað veitir mestan innblástur? „Það hefur áhrif að vera í samspili og fá yfir sig alls konar tónlist frá hinum. Líka að vera staddur t.d í Tyrklandi en þaðan kom hugmyndin að Mambo alla Turca. Það era yf- irleitt hljómai' og ryþmi sem starta lagi og laglínan felst í hljómunum. Hún getur einnig falist í orðum, því það getur falist hljómfall í orðum. Það er eitt lag á plötunni sem heitir Mónika, það var af því að nafnið Monica Lewinski söng í hausnum á mér eins og öllum heiminum," segir læknirinn lagelski að lökum. Lagið sem hvarf Páll Torfi var tíu ára gutti þegar hann lærði fyrstu gítarhljómana og spænk-mexíkanskan ásláttarstíl og Hvað er IktHi)jwt ? Fljúgandi ísbjörn? Marbendill? Sæskrímsli? Eda besti vinur þinn?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.