Skírnir - 01.01.1831, Blaðsíða 31
sá, sem er drottnandi á meginlandinti rerksmiðj-
um þeirra vel í þarfir; er það og Ensknm mik-
ilsvert, aS Norðrameríku fríríki, hafa á þessu
tímabili lejft kaupskipum þeirra frjálsa siglingu
í höfnum sínum; eru og aftekin lög þau er vörð-
uðu kaupverzlun við nýlendttr þeirra t' þessari heims-
álfu, og önnur betri og frjálsari komin í þeirra
stað; opnar það Enskum nýa verzlunar útvegi
þar um slóðir. I austr-Indíum fer ríki Breta vax-
andi, en á nokkrum óróa bryddi þar í sttmar af
blendíngjum, og varð þó ekki meint við aS sinni,
en tnikill rígr er milli þeirra og Enskra, og getr
það síðan leidt til tíðinda nokkurra. Fríheitaskrá
(Oktroj) þess raikla austindiska kauphöndlunar
felags, var útrunnin í sumar, og leikr orð á þvt
að stjórnin muni trauðliga ánýa hana, nema með
mikilvægri umbót, og að vísu áskilja ser meiri
völd og afskipti af högum þessa mikla ríkis , enn
hingað til. A þcssu ári var loksins að tilhlutun
Enskra aftekið lögmál það meðal Iudiskra, er býðr
að brenna ekkjurnar með líkum bænda sinna, og
mældist, sem likligt var, vel fyrirþessari ráðstöfun,
en að öðru leitifer landsbúumþar lítið fram í upp-
lýsíngu eðr mentun Evrópumanna, er og kristin
trú þar í barnæsku sinni, þótt ríkið standi undir
kristinnar þjóðar ytírráðum, og mun Bretum meira
ant um verzlunina, enn um trúna. Eins og að
undanförnu leggja Bretar mikið kapp ú að leggja
járnvegu í Bretlandi handa dampvögnum sínum,
sem nú hafa náð mikilli fullkomnun; luku þeir í
sumar við járnveg mikinn milli borganna Líver-
pól og Manchester, og var mikil hátíð, þegar hann