Skírnir - 02.01.1849, Blaðsíða 70
70
manna, en þjóftfundir allra einstakra sambandsríkja
hinn helminginn; hver þrítugur mabur er kjör-
gengur, og eru þær kosningar eigi bundnar vib nokkra
fjáreign. Til nebri málstofu velja þeir, er kosning-
arrjett eiga í hverju einstöku ríki, og eru kosningar
einfaldar.
Flest hin smærri ríki þýzkalands vir&ast ab
vera því eigi fráhverf af) afehyllast hina nýju stjórn.
Um Prússa konung segja menn, af> hann svo ab eins
óski þess, ab vald stjórnar jtessarar verbi sem mest,
ef hann sjálfur geti orbib keisari þýzkalands, og í
þeirri von hefur hann jafnan sýnt sig vinveittan
henni; aptur eru Austurríkismenn þessu mjög mót-
fallnir, einkum ef svo færi, ab Prússar fengju keis-
aravaldiö; hefur Austurríkiskeisari verib þeim Frakka-
furbu þingmönnum jafnan örbugur í tillögum, og af
auglýsingu þeirri, er hann Ijet nýlega birta þing-
mönnum, virbist svo sem hann eigi vilji gjörast
undirmabur þeirra.
þess skal ab lokum getib, ab þjóbverjar, og
einkum þeir í Frakkafurbu, hafa haft miklar rába-
gjörbir um ab stofna herskipaflota. Segja þeir, ab
eigi megi þýzkaland verba fullkomlega örugt, nema
þab eigi sjer herskip. Hafnir sjeu þar nógar og
góbar, þegar menn sjeu búnir ab ná undir sig Hol-
setalandi og Sljesvík. Herskip hafa þjóbverjar aldrei
átt, nema Prússar eina skútu, og því kunna )>eir
lítib sem ekki til skipaútbúnabar. Fundarmenn í
Frakkafurbu samþykktu, ab 6 þúsundir þúsunda dala
af ríkisfjenu skyldu þegar höfb til þess ab reisa skip.
Prússa konungur snjerist vel undir þetta fyrirtæki,
og hafa þjóbverjar í allan vetur verib ab smíba her-