Skírnir - 01.01.1900, Blaðsíða 49
Dánar-skrá.
49
Falk, fv. kenslum.-ráðg. undir Bismarck, (7. Júlí), 73.
Forbes, Archib., blaðfregnriti (30. Marz), 62.
Mrs. Gladstone, ekkja eftir W. E. G. (14. Júní), 88.
Eartmann, danskt tónskáld (10. Marz), 95.
de Joinvillc, prinz, 3. sonur Louis Philippe’s (16. Júní), 81.
Joubert, hershöfð. Búa (27. Marz), 69.
von Ketteler, sendiherra Þjóðv. i Pjking (18. Júní), 47.
Lieblcnecht, lögjafningjaforingi, þingm., (7. Ág.), 74.
Moody, Dwight L., farandprédikari i Bandar. N.-Am. (22. Des. ’99), 62.
Mivart, Dr. St. George, frægur dýrfræðingur, breytiþróunarfræðingur og
þó kaþólskur (úr Jesúíta-skóla), rekinn úr kaþólsku kyrkjunni í Janú-
ar 1900 (1. Apr.), 72.
Miiller, Max, próf., austmálafræðingur í Öxnafurðu (28. Okt.), 76.
Munkacsy, uugv. málari (1. Mai), 55.
Muravieff, rúsn. ráðherra (21. Júní), 55.
Nietzsche, Fr. W., þýzkur heimspek., (26. Ág.), 56.
Osman passja, tyrkn. hersh., Bem varði Plevna (4. Apríl), 63.
Puttkamer, fv. ráðgj. þýðv. (15. Marz), 70.
Quaritch, Bernard, fornbókasali og bókfræðingur í London.
Bidpath, sagnfræð. í Bandar. N.-Am. (Ágúst), 60.
Buskin, John, listfræð. enskur (20. Jan.), 81.
Sherman, John, stjórnmálam. í Bandar. N.-Am. (22. Okt.), 77.
Sidgwick, Henry, próf., heimsp., auðfræð., (28. Ág.), 62.
Steinitz, Wm., skákmeistarinn mikli (12. Ágúst), 64.
Umberto, 1., Ítalíu-kgr. (29. Júlí), 56.
Warner, Chas. Dudley, frægt sagnaskáld í Bandar. N.-Am. (20. Okt.), 71.
Wilde, Oscar, merkt enskt skáld og glæpamaður (30. Nóv.), 42.
Yísinda-Mlkur.
Ég hafði ætlað að segja lítið eitt frá framförum vísindanna þetta ár,
en því miður er þar helzt til fátt af að segja í ár, enda er nú rúm það
á þrotum, sem ég hefi yfir að ráða.
Stjarnfræði.
Aðalatburður ársins var almyrkvinn á sól 28. Maí. Var inikill við-
búnaður meðal stjarnfræðinga til að hagnýta hann til athugana. Norður-
álfu-stjarnfræðingar bjuggust um á Portúgal, Spáni, í Alsír og Trípólis,
4