Skírnir - 01.01.1900, Blaðsíða 19
II.
Heims-sjá árið 1900.
Eftir J<Sn Óliifsson.
„Þyl betnr sem menn skilja s'ónn tildróg við-
burðanna, Jvi skemtilegri verður fr&sögnin og
frjðsamari lesturinn."
Skírnir 1896, 29. bls.
„Með þvl einu mðti getur Skírnir til lengdar
varið tilverurétt sinn, að kann verði jöfnum
höndum fræðandi skýring og skipulegt yfirlit
samtiðar-sögunnar.“
Skírnir 1897, 1. Ms.
Áttayísun.
Eftirmæli ið. uldar.
„Fortíð er framtíðar móðir.“
Yiö hvcr aldamöt er verið að brýna það fyrir mönnum, sem allir
menn vita, að þeir straumar mannsandans, sem skapa gang sögunnar, taki
ekki stefnubreyting við aldamðta-árin. Auðvitað ekki. Alt tímatal er
ekki annað en stikumörkun tímans, sem mennirnir hafa fundið upp á sér
til yfirlitsléttis og til hægðarauka minni sínu. Engu að síður er það alls
ekki ástæðulaust né óvitlegt, að tala um einkenni hinuar og þessarar
aldar. Þð að skifting tímans í ár og aldir sé kandahófsverk, þá er þó
auðsætt, að hversu sem vér skiftum tímanum, ef vér að eins skiftum hon-
um í löng, jöfn tímabil, þá má ávalt finna einhver glögg einkenni, sem
ríkust hafa orðið á hverju tímabili. Og samkvæmt því er það ekki nema
eðlilegt, að vér tölum um ólík einkenni aldanna. Hitt er vitaskuld, að
það scm sérstaklega kemur fram Bem ríkt einkenni á einni öld, getur átt
upphaf og rætur á næstu öld á undan eða enn aftar í tímanum, og haft
ðfyrirsjáanleg áhrif á ðkomna tið.
Þannig er hver öldin annarar dóttir og móðir. Hvers árs viðburðir
2*