Skírnir - 01.01.1900, Blaðsíða 26
Áttavi8un.
það þung byrði og mikill vandi fyrir inar hvitn 60 milíónir að stjðrna
þessum 340 milíónum. — í byrjun 19. aldar (1801) vóru allir íbúar
Bandaríkjanna að eins 5 308 000, en árið 1900 var íbúatalan orðin 76 265 000
og líklega um 8 milíónir aí þeim litaðir menn (blámenn, rauðskinnar,
kynbiendingar). Alt þetta er enskumælandi fóik; því að þótt fólk flytji
til Bandaríkja úr öllum löndum, og hver kunni móðurmál sitt, þá verður
enskan móðurmál allra barna, sem þar í landi fæðast eða upp alast. Það
má því segja, að enskumælandi þjóðirnar (Bretland og Bandaríkin) stjórni
nær 500 milíónum manna, og sé um 130 milíónir af því hvítir menn.
íbúar Búsaveldis vóru í byrjun 19. aldar 38 miliónir, en í aldarlok-
in 120 milíónir, og áður en tvö ár verða liðin af 20. öldinni, verður full-
lögð járnbraut frá Eystrasalti til Kyrrahafs þvert yfir alt ið mikla veldi.
Bretar hafa jafnan spornað við því, að Búsar næðu fótfestu á Bal-
kanskaga, og það knúði Búsa til að leita austur á bóginn, endahaía þeir
lagt jafnt og þétt undir sig æ meira og meira af Asíu, og halda þeir þar
trúlega á fram enn. — Það virðist svo sem þessar tvær þjóðir sé að
skifta yfirráðum heimsins á milli sín. Sem betur fer, eru það hrímþursa-
þjóðir einar, sem Búsar leggja uudir sig, nú orðið, því að þeim líðst nú
ekki að færa út kvíarnar í vesturátt. En uppgangur inna enskumælandi
þjóða er svo miklu meiri, að vonandi er aðþærverði yfirsterkastar í heim-
inum. Latnesku þjóðirnar eru allar í hnignun sem stendur. Þjóðverjar
eru uppgangs-þjðð og leggja alla stuDd á að eignast lýðlendur; en ekki
hefir þeim til þessa Iátið vel að stjórna þeim og koma þeim iblóma;þeim
lætur ekki að stofna nýlendur í lýðlendum sínum.
Einn af merkisviðburðum aldarinnar var það, er Japan vaknaði upp
úr austurlerzkum villidómi og snerist til siðmenningar vesturþjóða, og
það með þeim framfara-braða, að engin dæmi sru til neins sviplíks fyrr
eða síðar í allri veraldarsögunni. Það vóru Bandarikin í Vesturheimi,
sem komu Japansmönnum í kynni við menning vesturþjóða. En keisar-
inn, sem nú er, Mutsu Hito, er sá maður, Bem sjálfur aðhyltist mentaðra
þjóða háttu og knúði þjóð sína og leiddi til að taka þá upp; ogmun það
ekki of sagt, að hann sé einn meðal merkustu þjóðhöfðingja mannkyns-
sögunnar. Nú liggja járnbrautir, ritsímar og málsímar um alt land þar
þvert og endilangt; þar eru yfir 400 raflýsinga-framleiðslur og allir heldri
bæir í landinu eru lýstir með því. íbúar ríkisins eru 47‘/2 milíón. Skóla-
skylda hvílir á öllum börnum, og eru 27 000 barnaskólar í ríkinu og
ganga í þá 3 700 000 börn, en iðnskólar og æðri skólar eru margir. Ea