Skírnir - 01.01.1909, Blaðsíða 74
74
Kvenréttindahreyfingin i Ameriku.
annað en heyrt og hlýtt? Undir slíkri stjórn geta þ e i r
ekki heimtað réttindi, því síður jafnrétti. Ogift kona
er ekkert, eiginkonan er alt. Unga stúlkan fallega er
meira verð en tíu þúsundir karlmanna. Móðirin gengur
næst almáttugum guði. Philadelphíu-konurnar vilja tryggja
sér réttindi sín með æsku og fegurð, sem eiginkonur, en
ekki sem kvenmenn«.
Um 1852 var góðtemplarahreyfing mikil í Banda-
ríkjunum. Konurnar höfðu um 20 ár tekið mikinn þátt í
þessari hreyfingu, stofnað fjölda félaga og staðið fyrir
mörgum, ferðast um til að halda fyrirlestra og vekja
áhuga á bindindismáiinu. Karlar og konur voru þá sér i
félögum, Temperancesynirnir og Temperancedæturnar. I
janúar 1852 héldu Temperancesynirnir aðalfund í Alhany
fyrir öll félögin. Susan B. Anthony mætti sem fulltrúi
fyrir eitt félag »dætranna«. En þegar hún stóð upp og
bað sér hljóðs, þá var þvi neitað og sagt, að konur væru
að eins boðnar sem áheyrendur. Hún gekk þá út og 4
konur með henni, öllum hinum til stórhneykslis.
Eftir þetta ákvörðuðu konur að stofna stórt aðal-
góðtemplarkvenfélag fyrir New York ríkið. Mrs. Stanton
átti að vera formaður, Susan B. Anthony ritari og vmsar
aðrar helztu kvenréttindakonur styrktarmenn. Þær ferð-
uðust nú um, einkum S. Anthony, héldu fyrirlestra, stofn-
uðu deildir, og mæltu fast með vínsölubanni.
Næsta ár var haldinn ríkisbindindisfundur. Þar fór á
sömu leið. Konurnar fengu ekki að tala. Prestarnir réð-
ust einkum á þær og hófu umræður um, hvort þeim væri einu
sinni leyfilegt að stofna félög. Þegar Susan Anthony var
bannað að tala, yfirgáfu allar konur salinn og héldu mót-
mælafund, sem var svo vel sóttur, að þar var húsfyllir,
þótt fáment væri á aðalfundinum eftir. — Á sömu leið
fór ári síðar á alheimsfundi bindindismanna. Þangað var
Antoinette Brown send sem fulltrúi undir vernd Garrisons,
Thillips og Channings. Hún hafði þá nýlega fengið prest-
vígslu. En þegar hún ætlaði að fara að tala, þá kváðu
við óp og óhljóð, sem héldust í U/2 kl.st. í hvert sinn