Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1909, Page 29

Skírnir - 01.08.1909, Page 29
Prestarnir og játningarritin. 221 ingarritin hafa ekki dómaravald, því að sá heiður ber ritningunni einni saman, heldur eru þau að eins vitnisburður um trú vora og útskýring hennar, er sýnir hvernig hinar helgu bækur [ritningarinnar] hafa verið út- lagðar og útlistaðar í kirkju guðs á ýmsum tímum í þeim atriðum, sem ágreiningi hafa valdið, af þeim kennendum sem þá lifðu, og með hvaða röksemdum þeim lærdómum hefir verið hrundið, sem kornu í bága við heilaga ritn- ingu.« Og um ritninguna segir svo í upphafi inngangs- ins: »Vér trúum, kennum og játum, að hin eina regla og mælisnúra, sem allir læraómar og allir kennendur eiga að dæmast eftir, sé einvörðungu hin spámannlegu og postul- legu rit gamla og nýja testamentisins. . . . öll önnur rit gamalla og nýrra kennenda, hverju nafni sem nefnast, ber ekki að meta til jafns við heilaga ritningu.. . . og ekki að veita þeim viðtöku sem öðru eða meiru en vitnis- burði um það, í hvaða mynd og á hvaða stöðum kenning spámannanna og postulanna hefir varðveitt verið hrein eftir liðna daga postulanna.« Hér eru tekin af öll tvímæli. Samkvæmt þessu eiga játningarritin sjálf að prófast og dæmast eftir ritningunni og geta því ekki verið að álíta sem lög eða reglur fyrir því, hvað skuli kenna í kirkjunni. Og því getur ekki heldur verið réttlátt að miða heitbindingu prestanna við þessi rit jafnhliða ritningunni, því að þá er ritningin ekki lengur yfir játningunum, heldur hrundið úr því sæti, sem henni ber einni saman. Vilji kirkjan vera trú sinni eigin frumreglu og bera heiti sitt »evangelisk-lútersk« með réttu, getur hún ekki bundið þjóna sína við neitt annað en guðs orð í rituingunni, því að það og ekkert annað hefir, eftir kirkjunnar eigin skoðun, að geyma hinn algjöra sannleika til sáluhjálpar. ; Er það nú hugsurx mín með öllu þessu, að afnema beri að öllu leyti játningarrit kirkjunnar eða að skipa beri nefnd manna til að endurskoða þau, ef ske kyuni að ráða mætti bót á einhverjum gallanum, eða tiLað semja

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.