Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.08.1909, Síða 37

Skírnir - 01.08.1909, Síða 37
Abraham Lincoln. 229 Þegar Abraham lét af herþjónustunni, fór hann að hugsa um að nema járnsmíði til þess að fá sér einhverja fasta atvinnu. Hann skýrði einum kunningja sínutn frá fyrirætlun sinni, en hann brást forviða við og sagði: »Þú ætlar að verða járnsmiður? Hi, hí, félagi, en við kunn- ingjar þínir höfum áformað að senda þig á þing.« Það varð orð og að sönnu. Illinois hafði 1818 verið tekið upp í tölu Bandaríkjanna og 1832 lét Abraham fyrir áskoranir kunningja sinna leiðast til að gefa kost á sér til þings. Að vísu náði hann ekki kosningu í það sinn, en hlaut þó miklu fleiri atkvæði en hann hafði gert sér von um. Hann reyndist ötull og fylginn sér í kosningar- leiðangrinum og góður ræðumaður með allvíðtækri þekk- ingu á landsmálum. En ekki var laust við að andstæð- ingar hans skopuðust að búningi hans og tilburðum í kosningarbaráttunni, og eftir því sem einn kunningi hans lýsir útgangi hans, hefir það ekki verið alveg ófyrirsynju: »Hann var í frakka úr stórgerðum dúk, en ermarnar og löfin voru í styzta lagi. Brækurnar voru úr striga, stíg- vélin einkar klúr og stráhatturinn, sem hann bar, gleypti svo að segja höfuðið.« Arið 1834 hlaut Abraham Lincoln kosningu á full- trúaþingið í Illinois. Efnahagur hans var þá svo örðugur sakir verzlunar-gróðabralls, er hann eins og ýmsir sam- aldrar- ha.ns höfðu flækzt í, að hanu varð að taka 200 dollara lán til þess að fata sig og geta staðið straum af kostnaði þeim, er þingsetan hafði í för með sér. A þing- inu lagði hann fyrst í stað ekki mikið til málanna, en kom þó vel ár sinni fyrir borð og reyndist slyngur í að hafa fram áhugamál kjósenda sinna; þótti hann og 9 flokksmenn hans, sem nefndust »risarnir«, af því að eng- inn þeirra var lægri en 3 álnir, stundum riðnir við hrossakaup. En í velferðarmálum þjóðarinnar hélt Lin- coln ósveigjanlega fram skoðun sinni, þótt hann stæði einn uppi síns liðs. Kom það berlega í ljós 1837 í baráttu hans gegn ofsa og ofstæki þrælahaldsmanna, er sóttu þá
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.