Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1983, Page 1
KUMLATEIGUR í HRÍFUNESI í
SKAFTÁRTUNGU
Inngangur
Svo sem fram kemur af greinunum hér á eftir var á árunum 1958 til
1982 rannsakaður óvenjulegur og merkilegur kumlateigur frá víkinga-
öld í Hrífunesi í Skaftártungu.
Kumlin hafa fundizt eitt af öðru, eftir því sem Hólmsá hefur brotið
af gamla túninu í Hrífunesi, en ekki hefur verið um að ræða að rannsaka
þennan stað samfellt sökum þess, hve aðstæður eru erfiðar. Gríðar-
þykkur jarðvegur hefur hlaðizt upp þarna af gjóskulögum úr eldstöðv-
unum suðaustanlands. - Fyrsta kumlið fann Árni bóndi Jónsson í Hrífu-
nesi nánast fyrir tilviljun, en síðan hefur hann haft vakandi auga með
þessum stað og gert viðvart, í hvert skipti sem hann hefur orðið ein-
hvers vísari sem bent gæti til kumla. Sést árangur þess hér á eftir.
Svo fór, að þeir sem ýtarlegast rannsökuðu þennan stað, samherjarnir
dr. Kristján Eldjárn og dr. Sigurður Pórarinsson, létust báðir áður en
þeir gætu birt rannsóknarskýrslur sínar, og hefur það því komið í hlut
annarra að ljúka rannsóknunum og ganga frá skýrslunum. Petta olli
því, að skýrslurnar eru hvergi nærri svo fullkomnar sem skyldi. - Hefur
Guðrún Larsen jarðfræðingur, sem sjálf tók þátt í rannsókninni 1982 og
1983 unnið úr jarðfræðirannsóknunum.
Það ráð hefur verið tekið að birta skýrslu hvers höfundar fyrir sig
sem sjálfstæða grein, en þrátt fyrir það er vonazt til, að sæmilega heilleg
mynd fáist af rannsóknunum á þessum stað.
Þ.M.