Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1996, Side 141

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1996, Side 141
MENNINGARLANDSLAGIÐ REYKJAVÍK 145 Legstaður hennar er talinn hafa verið í hinum friðlýsta Laugarneskirkju- garði eða utan hans við gatnamót Laugarnesvegar og Kleppsvegar. Þegar unnið var að gatnagerð á þessu svæði var hóllinn fjarlægður og kom þá í ljós að hann var leifar rauðablásturs.12. A Laugarnesi eru þó ekki eingöngu varðveittar minjar búskapar. Árið 1787 er Hannes biskup Finnson talinn eigandi Laugarness og að honum látnum giftist ekkja hans séra Steingrími Jónssyni, er síðar varð biskup. Við það eignaðist hann Laugarnes. Árið 1824 fékk Steingrímur því fram- gengt að veitt var álitleg fjárhæð til að byggja embættisbústað handa honum. Voru til þess fengnir danskir iðnaðarmenn, sem fengu öl eftir þörfum og pela af brennivíni á dag til að ljúka verkinu. Húsið var hið veglegasta að útliti, en þó sagt bæði illa byggt og lekt. Laugarnesstofa var svipuð Viðeyjarstofu að útliti, en minni og með stórum kvisti á framhlið. Arið 1838 keypti konungur Laugarnes af biskupi og var tilgangurinn m.a. að hafa þar biskupssetur til frambúðar. En næsti biskup á staðnum, Helgi Thordersen, kvartaði undan staðnum og benti á að farartálmar á leið hans til Reykjavíkur væru slíkir, að ekki væri forsvaranlegt að búa á staðnum. Fluttist hann á brott árið 1856 og lauk þá sögu biskupa í Laug- arnesi. Stofan stóð þó eftir, en var auðveld bráð eyðingaraflanna og var stuttu síðar „herfileg að sjá, flestir gluggar brottnir, og ótérlegt inn að líta.“13 Síðasta hlutverk Stofunnar var hlutverk sjúkrahúss, en 1871 voru geymdir þar nokkrir bóluveikir franskir sjómenn og báru nokkrir þeirra beinin í Laugarnesi. Stofan var rifm þegar danskir Oddfellowar gáfu Is- lendingum holdsveikraspítala, sem var fullbyggður árið 1898. Spítalinn var stórt timburhús eins sjá má á gömlum ljósmyndum, sem teknar voru frá Kirkjusandi. Líklegt má telja að spítalinn hafi verið stærsta hús lands- ins á þeim tíma. Húsið var tvílyft með stuttum álmum til endanna. Laug- arnesspítali stóð á flötinni austan við Listasafn Siguijóns Olafssonar og sneri framhlið í suður (sjá kort). Starfaði spítalinn í hartnær hálfa öld. Arið 1940 lagði breski herinn hald á spítalann. Mikið hverfi bragga reis þar allt í kring á þeim slóðum sem listasafnið nú er. Spítalinn brann árið 1943 er hann var í notkun breska setuliðsins.14 Engin greinileg merki sjást lengur um þessar byggingar, en fullvíst má telja að jörðin geymi síð- ustu leifar þessa tímabils í sögu Laugarness þótt þar hafi orðið nokkurt rask vegna braggabyggðar stríðsáranna. Sigurjón Olafsson myndhöggvari (d. 1982) fékk til umráða einn herskála í Laugarnesi árið 1945 og setti þar upp vinnustofu sína. Það var grunnurinn að Listasafni Sigurjóns Olafssonar, sem stofnað var árið 1984.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.