Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 111
NORÐURLJÓSIÐ
111
Foreldrum leiðbeiut af unglingum.
1. Haltu jafnvægi! Krakkar þarfnast þess trúnaðar, sem aðeins
stillt hönd og staðföst sál geta gefið og fundið.
2. Verið elcki svo önnum kafin, að annríkið haldi ykkur frá að
koma á góðu sambandi við börnin ykkar.
3. Verið ekki í háspennu. Haldið ykkur frá áfengi og pillum.
4. Sýnið dálítinn áhuga fyrir okkur. Beitið ströngum, en kær-
leiksríkum aga. Sýnið oldcur, að þið eruð vitur og nógu sterk
til að vera okkur yfirboðarar.
5. Lítillækkið ekki ykkar stétt. Varðveitið tign foreldradómsins.
Reynið ekki að klæða ykkur og haga ykkur eins og unglingar.
Krakkar þurfa að vita, að foreldrar þeirra séu fullorðin.
6. Verið okkur leiðarljós. Sýnið okkur trúarveginn. Verið fyrir-
mynd í trú, sem er að starfi.
7. Takið heiminn af herðum okkar. Talið við okkur um siðferði,
ást, lífið, eilífðina, hugarfarið og það, sem hefir gildi í lífinu.
Látið okkur vita, að við getum reitt okkur á ykkur, þegar
þrengir að.
8. Gegnið áskorun okkar. Standið föst fyrir og látið ekki leika á
ykkur. Verið örlát á hrós. Þegar sá tími kemur, að þið þurfið
að gagnrýna barnið ykkar, þá mun það trúa ykkur og virða
dómgreind ykkar.
(Úr ,,The Sword of the Lord“ 6/4 1973 eftir ,,Height“).
Mikilvægasti atburður mannlegrar ævi.
Hvað er hið mikilvægasta, sem getur gerst, meðan maðurinn
lifir? Líf hans byrjar í móðurlífi. Er það þá fæðing hans? Hún
er í raun og veru óskiljanlegt kraftaverk. Getur nokkur meiri
atburður gerst á mannlegri ævi? Ekki verður því neitað. Hver
er hann þá? Er það ferð til tunglsins? Er hann sá, þegar staðið
er á tindi hæsta fjalls jarðar? Er hann það atvik, þegar kafað
var niður í sjávardjúpið og horft þar á fiska, sem engin önnur
mannleg augu hafa litið í umhverfi þeirra?
Atburðurinn mesti og mikilvægasti, er endurfæðing. Hvers
vegna? Af því að Drottinn Jesús Kristur sagði: ,,Enginn getur
séð Guðs ríki, nema hann endurfæðist.“ (Jóh. 3. 3.). Enginn
getur lifað sem maður hér á jörðu, nema hann fæðist sem maður.
Engin vera, getur notið mannlegs lífs, nema hún hafi mannlegt
cðli. Greindur rakki getur verið góður félagi einmana manns.