Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 129
NORÐURLJÓSIÐ
129
5. Deild þjáninga, sorgar og rauna.
Aðeins völdustu nemendum Guðs eru veitt þau forréttindi að
vera í þessari deild, því að í henni birtir Guð leyndardóma sína.
Nemendur þar geta vitnað með Davíð: „Það varð mér til góðs,
að ég var beygður, til þess að ég mætti læra.“ Flest af hinu dýr-
mætasta í lífinu er runnið frá námsköflunum, sem numdir voru
í þessari deild. Vegur Krossins boðar fórn, og nemendur í þessari
deild læra að mæla líf sitt eftir tjóni, en ekki vinningum, og vita,
að ,,ef vér stöndum stöðugir, munum vér og með honum ríkja.“
- 2 Tím. 2.12.
6. Deild óþæginda.
Nemendur í þessari deild eru settir meðal þeirra, sem hafa
enga samúð með þeim, misskilja þá og eru í andstöðu við þá.
Á degi hverjum verður margt til að særa þá eða skaprauna þeim.
Gengið er framhjá þeim, eða þeir eru látnir vinna of mikið.
Síðan fá aðrir heiðurinn af verki þeirra. Þeir, sem eru þeim
nánastir og kærastir, skilja þá elcki og rangtúlka hvatir þeirra.
Þessi deild útskrifar nemendur, sem fúsir eru til að fylgja
Lambinu (frelsaranum) og lifa lífi sínu sem Lambið, þola háð-
ung Drottins vegna og læra daglega samfélag písla hans. Þeir
læra líka að notfæra sér daglega trú frá Guði, og þolgæði,
auðmýkt og einfaldleik Krists og að hlýða skilyrðislaust án
þess að vilja vita, hvernig eigi að gera það eða hvers vegna —
„Guð veit, hvernig“ — Fil. 3.10.
7. Deild óuppfylltra vona og biða eftir bænasvari.
Þessi deild reynist mörgum erfið, svo að þeir verða sjúkir
vegna óuppfylltra vona eða máttvana af hjarta (kjark) bilun,
af því að þeir bíða ekki nógu lengi eftir Guði. Eigi að síður, þeir,
sem eru þolgóðir, af því að þeir „hafa stöðugt hugarfar“ (Jes.
26.3., 4.), munu uppgötva það, að í þessari deild læra þeir að
trúa Guði þrátt fyrir allt hið ytra, hvort sem það eru kringum-
stæður, vonbrigði, eða illgirni manna eða illra anda. Þeir munu
komast að raun um, svo að enginn vafi leikur á því, að „Guð
vinnur fyrir þá, sem bíða hans.“ (Job. 13.15. (ensk þýð.).
Ath. — Þar sem tíminn er orðinn stuttur, er nemendum boðið
og þeir hvattir til að byrja nám sitt, meðan enn heitir ,,í dag“.
Sérstakur heiður er ætlaður og laun þeim, sem „enda skeiðið