Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 144
144
NORÐURLJÓSJÐ
FJÓRIR FLOKKAR MANNA.
Nú skulum við hverfa til Jesaja 61. Þar lætur Andi Guðs spá-
manninn rita á þessa leið: „Andi Drottins, Jahve, er yfir mér,
af því að Jahve hefir smurt mig til að flytja nauðstöddum (hóg-
værum) gleðilegan boðskap, og sent mig til að græða þá, sem
hafa sundurmarið hjarta, til að boða herteknum frelsi og fjötr-
uðum lausn, til að boða náðarár Drottins og hefndardag Guðs
vors, til að hugga alla hrellda."
1. Hógværir.
Hér ræðir um fjóra flokka manna. Orðið fjórir bendir á víð-
áttu, eitthvað, sem nái til allra. Við höfum fjórar höfuðáttir:
norður, suður, austur, vestur. Jörðin hefir fjögur skaut: norður-
og suður-heimsskaut, norður- og suður segulskaut. Dúkurinn,
er postulinn Pétur sá síga niður frá himni, var látinn síga niður á
fjórum skautum. ,,Og voru þar á öll ferfætt dýr, og skriðdýr
jarðarinnar og fuglar himinsins." (Post. 10.11., 12.). Þegar
Drottinn Jesús flutti sína Fjallræðu, sagði hann: ,,Sælir eru hóg-
værir, því að þeir munu landið erfa.“ (Matt. 5.5.). Þetta fyrirheit
hans er upphaflega gefið í Sálmi 37.11. Þar notar þýðandinn
orðið ,,vo!aðir“. Því miður er þetta orð notað í stað hins rétta í
Sálmunum. En það er fyrst notað í biblíunni um Móse, hinn
mikla leiðtoga ísraelsmanna. Þar ritaði hann: ,,En maðurinn
Móse var einkar hógvær, framar öllum mönnum á jörðu.“ (4.
Mós. 12.3.). Þetta hefði hógvær maður sem Móse aldrei ritað
um sjálfan sig nema vegna þess, að hann var ritari Guðs, er fyrir
Anda sinn gaf honum orðin, er hann átti að rita. Hann varði
sig ekki, er á hann var ráðist af bróður hans og systur. En Drott-
inn tók málið að sér og rétti svo hluta hans, að upp frá þessu
fylgdi Aron alltaf Móse að málum. Þetta er mynd af því, hvernig
Drottinn mun á sínum tíma rétta hlut allra hógværra manna,
sem heldur þola illt en bera hönd fyrir höfuð sér til að verja sig.
Þeir geta sagt mönnum sannleikann, en það er gert án þess að
vera í baráttuhug til að verja sig og gerðir sínar, þegar sett er út
á þá og verk þeirra, sem þeir hafa af góðum hug gert í nafni
Drottins. Þetta er þá hlutdeild hógværra: Drottinn launar þeim
síðar.
2. Brotnir menn.
Drottinn var sendur til að græða þá, er hafa sundurmarinn
anda. Orðið marinn er margsinnis þýtt með orðinu brotinn í
biblíunni. Það er notað um borgarveggi Jerúsalem, sem höfðu