Lögberg - 20.10.1938, Blaðsíða 1

Lögberg - 20.10.1938, Blaðsíða 1
X 51. ÁRGrANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 20. OKTÓBER, 1938 NÚMER 42 Ársfundur Liberal samtakanna í Manitoba—Fulltrúar mættir úr hverju einasta kjördæmi Karlaklúbbur Fyrsta lúterska safnaðar —Viðbúnaður mikill hafinn fyrir næsta fund SíÖastliðinn föstudag héldu Lib- eral stjórnmálasamtökin í Manitoba ársfund á Royal Alexandra hótel- inu hér í borginni við drjiúgum meiri aðsókn en venja hefir verið til undanfarandi. Þrjúhundruð og þrjátíu erindrekar úr hverju einasta kjördæmi fylkisins voru mættir í fundarbyrjun, auk annara fylgis- manna frjálslyndu* stefnunnar, er skiftu hundruðum. Mr. Walter J. Lindal, K.C., stjórnaði fundi. — Margar ræður voru fluttar, er báru ljósan vott um sterkan áhuga á vett- vangi stjórnmálanna. Meðal ræðu- manna voru sambandsþingmennirnir Mr. Glenn, Mr. Leader, Mr. Weir, Mr. Thorson og Mr. Beaubien. Ýms- ar fundarsamþyktir, næsta mikil- vægar, voru gerðar, svo sem um hagkvæma mentun æskulýðsins, at- vinnumálin, tollmáiin og viðskifta- samninga við erlend ríki. Lét Mr. Beaubien þess meðal annars getið í ræðu sinni, að sá maður væri ekki til i öllu landinu, er annara léti sér um hagkvæma mentun æskunnar en Vel botnaðar vísur Ari Sæmundssen var skrifaði á Grund hjá sýslumanni Gunnlaugi Briem, afa mínum, á uppvaxtarár- um Ólafs Briem timburmeistara. Síðar fluttist Ari til Akureyrar frá Grund, en Ólafur Briem varð bú- andi þar. Oft fór hann vetrarferð- ir eftir Eyjafjarðará á is, og kom þá jafnan við hjá Ara, létu þeir þá oft fjúka í kveðlingum. Eitt sinn hafði Ari hugsað sig um visuhelm- ing, sem erfitt væri að botna, og segir við Ólaf um leið og hann réttir honumi staup: Þarna er staupið; settu sopann senn á tanna þinna grunn; en svarið kom strax; Tarna raupið ! réttan dropann renna fann eg inn i munn. Þegar eg heyrði vísua, þótti mér ótrúlegt, að seinni parturinn væri ortur samstundis, og líkari því, að hann væri kveðinn á undan fyrri partinum; fór eg því til Ara og spurði hann hvað satt væri i þessu, og sagði hann mér þá, að Ólafur hefði sagt vísupartinn eins hratt eins og Ari hafði sagt fyrri partinn. ♦ Árið 1852 vígðist Séra Björn Halldórsson aðstoðarprestur til föð- ur míns í Laufási, var eg þá fylgd- ardrengur hans. Á Vatnsskarði náði okkur Ólafur stúdent svo kall- aður; hann var í sömu erindum, að fá sér prestvígslu i Reykjavík; þá var hann 53 ára, en leit út sem sex- tugur maður. Hann hafði verið mörg ár skrifari hjá sýslumanni Lárusi i Enni. Til fararinnar hafði séra Benedikt á Hólum lánað Ólafi hvítan hest, ljómandi skepnu að fegurð og fjöri, en sýslumaður hafði gefið honum bláan yfirfrakka með gyltum hnöppum. Áminstan dag var Ólafur stúdent talsvert kendur, svo hann datt af baki i leirflagi, og blái frakkinn með gvltu hnöppunum varð allur blautur og leirugur. En glaða sólskin og sunn- an þýðvindur var allan daginn, svo smátt og smátt þornaði frakkinn, en það varð okkar fylgdarsveinanna skylda, að nudda leirinn úr bláa frakkanum i hvert skifti sem áð var um daginn. En fylgdarsveinn Ólafs var Hallur, sem löngu seinna fór til Grænlands, varð verzlunarstjóri þar, og síðar kallaður grænlenzki Hallur. Margir Skagfirðingar munu kannast við hann, og þeir Is- lendingar, sem voru i Kaupmanna- núverandi verkamálaráðherra Sam- bandsstjórnarinnar, Mr. Norman Rogers; tóku fundarmenn þeirri stað'næfingu ræðumanns með fögn- uði. Er til kosninga kom, var Walter J. Lindal, K.C. endurkosinn til for- seta i þriðja sinn i röð. Keppinaut- ur hans að þessu sinni, var A. G. Buckingham, K.C., frá Brandon. Um kvöldið var haldið fjölment samsæti á hótelinu og stýrði því hinn nýkjörni forseti, Mr. Lindal. Aðal- ræðumaður þar var forsætisráð- herra Manitobafylkis, Hon. John Bracken; var ræða hans fróðleg mjög; lagði Mr. Bracken einkum á- herzlu á það, hve óumflýjanlegt það væri, eins og heimsviðskiftunum væri háttað, að Sambandsstjórnin trygði bændum, eins og nú væri gert, lágmarksverð á hveiti; slikt væri þeirra eina bjargarvon. Samsætið var yfirhöfuð 'hið á- nægjulegasta. Mr. Paul Bardal bæjarfulltrúi stýrði söng með að- stoð ungfrú Snjólaugar Sigurðson. höfn, þegar hann kom frá Græn- landi. Margar vísur voru kveðnar um bláa frakkann áminstan dag, því bæði prestsefnin voru vel skáldmælt. Komið var heim á höfðingjasetrið Hnausa til læknis Skaftasen, og þar veitt kaffi, en þegar átti að fara af stað, segir séra Björn um Ólaf stú- dent: ( Hann fór suður himinblár; heim kom aftur svartur; heyrðist þá sagt á sama augnabliki úr mannhópnum, sem stóð á hlað- inu: 'i Þessi herrans húðarklár á himnum verður bjartur. Varð þá almennur fögnu^ur yfir því, hve vel væri botnað, en sá sem botnaði hét Árni Jónsson og var lækninum til hjálpar við meðöl. -f Stundum bar það við, að heimilis- fólkið segir sögur. Karlmenn sögðu kerlingsögur, en konur karlasögur; hver hélt með sínu kyni. Við eitt þetta tækifæri segir kona: Karlmenn voru kvalarar konungsins á himnum. Sigvaldi Jónsson frá Sjávarborg, ágætlega hagorður maður, var þar viðstaddur og segir: Af því forðum Eva skar epli af bjarkarliínnum. 1 annað skifti ávarpaði maður Sigvalda, sem Guðmundur hét, og segir: Segðu mér það, Sigvaldi, hvað syndir þínar gilda. Því svarar hann strax: Það er undir áliti alföðurins milda. ♦ Innundir tjaldskör var kallað: Illa skaptur er að sjá Árni Borgfirðingur. Einn af þeim, sem í tjaldinu voru, svarar strax: Hefir kjaftinn enn upp á einhver Norðlendingur. + Einn segir: Þú ert raptur, trygðum taptur, tjörgulundur. Hinn svarar: » Legðu kjaftinn á þér aftur, eins og hundur. Tr. G. —Alþýðubl. Walter J. Lindal, K.C. endurkosinn forseti Liberal sam- takanna í Manitoba. V aglaskógur Um vordag er Vaglaskógur vænlegt og fagurt skjól, er hvolfþök laufanna lýsir hin ljóshára morgunsól; hún læðist ineð ilmandi lampa um lauftrjánna súlnagöng, hún lýkur upp ástanna lundum, og loftið er heitt af söng. En svo þegar sumri hallar, þá sígur á rökkrið hljótt, og Kolbrún himnanna kemur, hin kyrláta, dökka nótt; hún hvíslar í hverjum runni, og kyssir án þess að sjást; hún fer um og lokar, lokar, i leyndum er hennar ást. Á haustin er hljótt um þig, skógur, og himinn þinn orðinn grár, þá hlustarðu á laufin þín hrynja: Heimsins döprustu tár. Þá málarðu i mörgum litum, þótt myrkrin sé orðin löng. Þá ritarðu á blöð þín með blóði bergmál af horfnum söng. Og svo þegar sumarið slokknar. að síðustu í þínum trjám, er blað hvert sem brunninn kveikur og biðjandi liggurðu á hnjám, því stormarnir stofnana beygja, þú starir, þín hrygð er sár; það braka þau þil sem þú bygðir með baráttu í þúsund ár. Er fannskýin sagast í flygsur á fjallanna stórténtu sög og fjúk er um lyngmóa og lundi, lautir og heiðadrög, þá skilst þér það Vaglaskógur, hve skammæ er lífsins gjöf. Þá leggurðu vor þitt og vonir í vetrarins marmaragröf. Þig dreymir einmana á ísnum um ókunnra skóga þyt; og næst áttu vorið í vændum með vængjaðra daga glit. Eg vona, að þú vaxir að hátign og víkkir þín súlnagólf. Eg vona, að þú vakir og yrkir unz veraldarklukkan er tólf. Helgi Sveinsson frá Hraundal —Kirkjuritið. DEMANTSAFMÆLI FYRSTA LÚTERSKA SAFNAÐAR Guðsþjónusturnar í Fyrstu lút- ersku kirkju á sunnudaginn þann 30. þ. m., verða helgaðar Demants- afmæli safnaðarins. Ensk hátíðar- guðsþjónusta að morgni en íslenzk að kveldi. Hátíðarsamkoma verður haldin á miðvikudagskveldið þann 2. nóv- ember næstkomandi, og skemta þar báðir söngflokkar safnaðarins með þaulæfðum söng. Á eftir verða veitingár og margt til skemtana. Nánar verður skýrt frá hátíðahöld- unum í næsta blaði. Svo hefir skipast til, að næsti fundur Karlaklúbbs Fyrsta lúterska safnaðar, verður haldinn í sam- komusal kirkjunnar á miðvikudags- kveldið þann 26. þ. m., kl. 6:15; verður kveldverður þá til taks og stundvíslega sezt að borðum. Fundur þessi, er skoðast má i raun og veru sem einn liður þeirra hátiðahalda, sem fram fara á næst- unni í tilefni af demantsafmæli safnaðarins, verður að tilhögun að ýmsu leyti frábrugðinn hinum venjulegu fundum klúbbsins; þar fara meðal annars fram fjórar, tíu mínútna ræður er fjórir eftirgreind- ir ræðuskörungar flytja: Séra Rúnólfur Marteinsson: “Sögulegar minningar um islenzka Frónsfundur séra Valdirnar J. Eylands flytur erindi. Það er stjórnarnefnd “Fróns” alveg sérstakt gleðiefni að geta boð- ið fólki að koma og hlusta á séra Valdimar J. Eylands, hinn nýkomna prest Fyrstu lútersku kirkju í Win- nipeg, á næsta fundi “Fróns,” mánudaginn 24. okt., kl. 8:15 e. h. í efri sal Goodtemplarahússins. Séra Valdimar J. Eylands er prýðilega máli farinn og hefir þá stöðu hér i „borginni, að hann mun eðlilega verða einn af áhrifamestu mönnum í ís- lenzkum samtökum hér á meðal vor. Mun því eigi þurfa að efa að fjöl- menni muni sækja þessa samkomu. Auk þess verður söngur og hljóð- færasláttur. Pálmi Pálmason mun leika á fiðlu, Lóa Davíðsson og Guðmundur Stefánsson syngja ís- ienzk lög. Allir meðlimir “Fróns” eru beðnir að hvetja vini og kunn- ingja til að f jölmenna á sanikomuna. Aðgangur verður ekki seldur og engin samskot tekin. Allir eru vel- komnir og “Frón” óskar að sem allra flestir Islendingar noti tæki- færið og sæki þessa samkomu, sem áreiðanlega verður hin ánægjuleg- asta. Stjórnarnefnd “Fróns.” mannfélagið í Winnipeg.” Frú Hansína Olson: “Islenzk mannfélagsmál í Winnipeg, eins og þau komu mér fyrst fyrir sjónir.” J. J. Bildfell: “Yfirlit yfir fé- lagsstarfsemi íslendinga frá síðustu aldamótum.” Séra Valdimar J. Eylands: “Við- horf framtiðarinnar.”— Skemt verður einnig með söng. Framkvæmdarnefnd Karlaklúbbs- ins væntir þess, að sem allra flest hinna yngri manna innan vébanda safnaðarins, sæki þenna fræðandi og ! skemtandi fund. Meðlimir eru beðnir að mæta stundvíslega, því gengið verður til snæðings og skemtiskrár nákvæmlega samkvæmt auglýstum tíma, kl. 6:15. Með morgunkaffinu Indverji einn, sem nýlega tók þátt í alþjóðakepni í Camridge, þykist heita lengsta nafni í heimi. Hánn heitir Vihayaraghavacharya. Kolibrifuglinn er að mörgu leyti einkennilegur fugl og öðruvísi en aðrir fuglar. Hann á aðallega heima í frumskógum Suður-Ame- ríku. Kolibrifuglinn er minsti fugl í heimi og getur bæði flogið aftur á bak og áfram. Fyrir nokkru bar það við í Ham- borg, að gufubátur, sem flytur fólk yfir Alster-vatnið, kom svo nálægt einum svonefndum “Paddeln”-bát, að honurn hvolfdi. Var mesta mildi að unga fólkið sem var í bátnum, lenti ekki undir gufubátnum og druknaði. Eingöngu vegna þess, að allir í bátnum voru syndir, björguð- ust þeir, með því að syda til lands (um 100-150 metra). Á meðal þessa unga fólks var stúlka héðan úr Reykjavík, ungfrú Margrét Guðmundsdóttir Bergstaða- stræti 69. Sporvagnar eru nú ekki lengur starfræktir í París, siðasta spor- J. T. Thorson, K.C., M.P. Mr. Thorson flytur erindi í bygg- ingu Manitoba háskólans “Theatre A” á Broadway á föstudagskveldið kemur, kl. 8.15. Mr. Thorson er nýkominn heim af þingi Þjóðbanda- lagsins i Geneva og talar um af- stöðu Canada til þeirrar stofnunar. Or nógu að velja Þrír framhjóðendur í vali til borgarstjóra i Winnipeg Vitað er nú, að þrír frambjóð- endur verði í kjöri til borgarstjóra við bæjarstjórnarkosningar, sem fram fara í Winnipeg þann 25. nóv- ember næstkomandi; eru það þeir John Queen, núverandi borgar- stjóri Travers Sweatman, K.C. og E. D. Honeyman, K.C., er átt hefir sætDí bæjarstjórn síðastliðin tíu ár fyrir 1. kjördeild, og nú skipar for- sæti í f jármálanefnd bæjarstjórnar- innar. Þetta verður í fyrsta skiftið sem borgarstjóri verður kosinn til tveggja ára, samkvæmt lögum síð- asta fylkisþings. Laugardagsskóli Þjóðræknisfélagsins hefst næstkom- andi laugardag kl. 9.30 að morgni. Eru foreldrar, er hafa í hyggju að senda börn sín á skólann, ámint um að láta þau koma strax i byrjun, svo að sem rnest gagn megi verða að kenslunni. Vonast er til að barna- blaðið Baldursbrá verði til þenna dag, svo hægt verði að útbýta því til þeirra, sem ætla að gerast áskrif- endur. Þau börn, er sækja skólann fá blaðið þar á laugardögum, og er þvi æskilegt að þau, sem ætla að kaupa það, geri það í byrjun skóla- ársins' Kenslan fer fram i Jóns Bjarnasonar skóla, og hafa úrvals kennarar verið fengnir þetta ár. Starf laugardagsskólans er orðið svp vel kunnugt að óþarft er að bæta meiru við um það í þetta sinn. ís- lendingar vita að hér er að ræða um ókeypis tilsögn og mentun, sém verð- ur börnum þeirra til uppbyggingar og gagns í framtiðinni. Nefndin. Föstudagskvöldið 7. okt. voru þau Freda Oliver frá Selkirk og Fred- erick Ernest Goddard frá Winnipeg, gefin saman í hjónaband af séra Valdimar J. Eylands. Hjónavígsl- an fór fram í kirkju Selkirk safn- aðar að viðstöddum nokkrum nán- ustu vandamönnum og ættingjum hinna ungu hjóna. Að lokinni vígslu var gestaboð að heimili for- eldra brúðarinnar, þeirra Guðmund- ar og Þóru Oliver í Selkirk. Fram- tiðarheimili nýju hjónanna verður í Wiinnipeg. vagnslínan var lögð niður fyrir skömmu. París og Reykjavík eru nú einustu höfuðborgir í álfunni þar sem ekki eru sporvagnar. Október-fífillinn Að treysta á blíðuna virðist valt. Það var í morgun kalt. Hélan hvít eins og líkblæja lá á landinu föllnu í nætur-dá. Vorgrænka og haustfölvi vega salt —þó vonin sé 'til í alt. Eg gekk hjá þér fífill. Grundin var ber. Gleymt hafði sumarið þér. Með lokaðri krónu þú lást eins og barn, sem lífið ber út á eyðihjarn. Mörg harmsaga óskráð í heiminum ej’, sem hugurinn aðeins sér. Eg sat hjá þér fífill með sárum beig. Sólin á himininn steig. Geislarnir skrýddu ’hina gömlu jörð, af glampandi silfri var skykkjan gjörð. Úr hrímperlum brosandi bar hún sveig, sem bliknaði unz frostið hneig. Sjá, upprisumáttur í október einstæðing kaldan sér! Fífillinn opnar augu sín, með ástúð sólin á höfuð hans skín. Hitinn um litla líkamann fer. Kraftaverk kunngert er mér. Þá fanst mér að alt, sem áður var hrjúft orðið fagurt og ljúft, —og vonin birtir mér boðskap sinn og bendir á október-fífilinn: Hans líf er ei lengur gljúpt. Nú dregur hann andann djúpt. Með sigurvissu eg sá og fann, að sólin elskaði liann. Og söm eru örlög einstæðs manns í endurfæðingu kærleikans, að dulræna sólin sálunni ann og sárkaldan vermir mann. J. S. frá Kaldbak.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.