Lögberg - 20.10.1938, Blaðsíða 5

Lögberg - 20.10.1938, Blaðsíða 5
LÖGBiDRG, FIMTUDAGINN 20. OKTÓBER, 1938 5 BIRD’S EYE VIEW OF THE SELKIRK SLOUGH Main Street and Greenwood Avenue can be seen in the background. \ þessi %-eymWr FISKUR "—lll8§ilÖ\ hefir ljúra angan! ^\ \\\ ^ 1 teskeiS af mustarSi 2 bollar af gömlum canadiskum osti. A , ,T,T . 2 teskeiSar af smjöri og AUGU BARNANNA munu ljoma, skorinni Pétursseiju. þegar þau fá þenna ljúffenga fiskrétt. búís tii hvíta sósu úr 'f>etta er matur handa konunginum, því ö?“uhV:f «0 « bragíiS heillandi . . . >ó e, þetta StrjúkiS af fiatningnum svo ódýr fæíSa að þér hafið peninga meS rakri rýju, skerið i afgangs fyrir aukagetu. randir flatningana og ö ° J frVn OStr Lfrin' ,Asamt YÖur fellur canadiskur Fiskur og Skel- látið síðan á smurða fiskur ariÖ ut — yfir 6o mismunandi pönnu. Bakið í 20 mín- réttir — úr fre'ðnum, reyktum, hertum hitar Fiatninga'af^hvaða eÖa ..pæklu'Öum fiski, eins oft og yður öðrum canadiskum fisk- þoknast. Margar forskriftir gcra your tegundum sem er, má aut5Velt að framreiÖa gómsæta og lokk- nota í stað ýsu-flatn- , . inga. andi retti. • DEIWRTMENT OF FISHERIE8, OTTAWA : Skrifið eftir ókeypis bæklingi LYJhI_____________________________________160 - —| Please send me your free Booklet, "100 Tempting | \ Fish Recipes”. ( Name...............................- | (Please Print Letters Plainly) V Address........................... | ............................tj.-ti i V .. | Ét ' '' . M m Y DAY FI 9M » * V um, að höfundurinn er mikill mann- þekkjari. Höfundur flytur ýms lífssannindi afdráttarlaust, en með skemtilegum og viðfeldnum hætti. Aðrir blaðadómar eru lakari. I Politiken segir, að leikárið sé látið byrja óheppilega. — Leikritið sé ekki ómerkilegt, fjörug samtöl, og viðburðir séu þar, sem séu vel falln- ir til áhrifamikils skemtileiks. En ósamræmi sé i hinni dramatisku byggingu leikritsins og sé skapgerð leikendanna þannig, að menn geti ekki fallist á, að hún sé eðlileg. Dómur Nationaltidende fer í svip- aða átt. —Morgunbl. 3. sept. Sigurbjörg Arngrímsdóttir Johnson 1865 — 1938 Þessi merka kona var ekkja F. R. Johnson (Sigfúsar Runólfssonar), er lézt í Seattle fyrir þremur árútn. Voru þau hjón búsett i Seattle frá því skömmu eftir aldamót. Höfðu áður verið til heimilis í Minneota frá því þau giftust. Sigurbjörg heit. var Vopnfirðing- ur að ætt. Var fólk hennar kent við Búastaði. Kom Sigurbjörg frá íslandi 1879. Systkini hennar, er til Ameriku fluttust voru Ólafur heit,- (Arngrímsson) Anderson, kaup- maður i Minneota; Metúsalem, fast- eignasali í Minneapolis, nú látinn; Sigurjón, kaupmaður og umboðs- sali um langt skeið í Minnesota, nú i Vancouver, B.C.; Mrs. Ingibjörg Josephson, ekkja Jóns Josephsonar í Seattle, og Mrs. Stefanía Jones í Minneota. Er þetta valinkunt sóma- fólk. Sigurbjörg var yngst þeirra systkina. Árið 1884 giftist Sigurbjörg F. R. Johnson. Var hann albróðir Jóns Runólfssonar skálds, en þeir systkinasynir J. Magnús Bjarnason skáld og hann. Enda köm skáld- hneigðin einnig fram hjá honum og listamannseðlið. Bjuggu þau mikið á annan tug ára í Minneota, tóku mikinn og góðan þátt i öllum félags- skap íslendinga þar og héldu prýði- legt heimili. Veitti hann forstöðu Verzlunarfélagi íslendinga og ann- aðist verzlun þess, en stundaði síðar eigin verzlun. — Aríð 1904 fluttust þau með fjölskyldu sinni vestur til Seattle og bjuggu þar ætíð síðan. Var nú hagur þeirra framan af mjög erfður, en Sigurbjörg sýndi þá það táp ef til þess þarf að standa uppi í stríðu án þess að láta bugast. Bætti það fljótt úr hvílíkt barnalán þau höfðu. Börnin voru sex:: Arnold, Maria, Ina, Valdimar, Evangeline og Alice. Voru þau öll prýðilega gefin og komust fljótt til manns. Valdimar er látinn, Þau Arnold og Maria eru gift innlendúm og eiga uppkomin börn. En systurnar þrjár Ina, Evangeline og Alice héldu heimilinu með foreldrum sínum og síðan með móður sinni. Skipa þær ábyrgðarmiklar stöður, njóta mikils álits og hafa staðið straum af sín- um með frábærri alúð og nærgætni. Síðustu tvö árin var Sigurbjörg blind. En hún naut hjá dætrum sínum þeirrar umönnunar og ást- ríkis, sem birti upp heimilið og hina döpru dimmu. Árin öll eftir að börnin komust upp, fékk hún endur- goldið í ríkum mæli, þá fórnfærslu er hún hafði sýnt fyrir heimilið og vdfeijð barnanna meðan erfiðara var. Hún var ein af þeim, sem erfiðleikarnir ekki buguðu heldur' bættu. En dætur hennar, sem héldu heimili með henni, voru alls hins liðna minnugar. Og ekkert var það til, er þær gátu veitt, að þær ekki vildu láta móður sinni það i té. Það er sönn farsæld að eiga slíkt heimili og umönnun í ellinni. Sigurbjörg lézt sunnudaginn 25. sept. eftir stutta legu. Var jarð- sungin að viðstöddu fjölmenni mið- vikudaginn 28. sept. Minningin lifir eftir heið og fögur hjá öllum er Sigurbjörgu þektu. Hún var mesta friðleiks kona, fingerð og viðkvæm í upplagi og elsk að allri fegurð. Þolinmæði og blíða einkendu lífsferil hennar í hvívetna. Hún varðveitti altaf nokkuð af blæ æskunnar í lífi sinu, átti glaða og bjarta lund og vildi i öllu láta gott af sér leiða. Þau hjón voru eindregnir meðlimir og velunn- arar islenzku safnaðanna í Seattle og alls félagsskapar ?r til heilla horfir. Það var gott að eiga Sigur- björgu að vini. Margir er nutu þess minnast hennar með söknuði. K. K. Ó. Fegurð Eftir Pétur Sigurðsson. Listaverkið, sem túlkar voldug sannindi og glæsilega hugsjón, er aðdáunverðara og því fallegra i orðsins sönnustu merkingu heldur en mynd, sem fullkomin er í ytri fegurð, en segir ekkert meira og á enga djúpa uppsprettu fegurðar. Það er hin efnisríka fegurð, sem er skapandi máttur í lífi manna og þjóða. . Það er auðveldara að búa til skrautléga klædda brúðu, en að meitla í marmara mynd, sem er ó- tæmandi ihugunarefni. Það er auð- veldara að mála á sér varir, kinnar og augnabrúnirnar og klæða sig fallega, en að móta hina guðdóm- lega fögru mynd dygðanna í skap- gerð sína, því margur á stirfið og grjóthart geð. Aftur annara virðist vera svo losaralegt og festulaust, að það 'er sem ekkert geti tollað þar saman og engin fögur heildarmynd fengist. Menn fitla við hið auð- velda, en hvika frá hinu erfiða og vandasama. Menn fegra hinar ytri hliðar tilverunnar, en þjarta heimar manna eru oft illa hirtir. Mundi ekki tískudömum vorum, sem mála varir sínar blóðrauðar, andlit sín með suðurlanda sólbruna- lit, setja svart stryk fyrir ofan aug- un i stað augnabrúnaháranna og gljáfægja langar, oddhvasar neglur sínar, finnast eg vera fátækur í anda, ef eg segði við þær: “Skart yðar sé ekki ytra skart . . . heldur sé það hinn huldi maður hjartans í ó- forgengilegum búningi hógværs og kyrláts anda, sem dýrmætur er í augum Guðs.' Því þannig skreyttu sig einnig forðum hinar helgu kon- ur.” Ef menn legðu jafnmikla rækt við þroskun skapgerðar, og ’hina ytri fegurð, mundi árangurinn verða mikill. Og hver er sá, sem ekki kýs það heldur, ef hann á að- eins um /tvent að velja, að eiga göf- uglyndan, heilhuga og ábyggilegan vin, þótt ekki sé hans ytri fegurð áberandi, heldur en snoppufríða mannleýsu. Skapgerðaróræktin, ó- menskan og tómleikinn ota fram ljótum grýlusvip sinum í gegnum málað hörund og alla yfirborðsfág- un. Hin innri fegurð og göfug- menskan skín einnig í gegnum hinn ytri hjúp, líkt og sólargeisli í gegn- um slæðu. Hinn ófriði en göfugi maður verður því fljótt fallegur í augum þeirra, er kynnast honum. Á götum stórborganna úir og grúir af marglitum og fegruðum andlitum, ^glitrandi steinum, gull- stássi og skrautlegum klæðum, en svo eru félög og fyrirtæki, einstakl- ingar _og þjóðir oft í hinurú mésta vanda stödd, er finna skal menn, sem hægt er að treysta í hvívetna; menn, sem hægt er að fá í hendur vandamálin stóru. — I heimi vorum þyrfti að fara meira fyrir skarti hinna “helgu” manna. Líkamlega fegurð og hreysti þykjast menn vilja rækta og efla, og af fróðleika skal hvert höfuð tútna út. En fróð- leikurinn verður að eggjagrjóti und- ir fótum manna á vegferð þjóðanna, og hin líkamlega þjálfun eins og rósótt svunta á daðursdrós, vegna þess, að grýlusvipurinn frá illa þroskaðri skapgerð stingur fram loðnu og ljótu höfði sínu hvarvetna i mynd ódrengskapar, undirferli, sviksemi, pretta og fláttskapar. — Það þarf máttug orð til að reka þá illu anda át, og þá fyrst, er Krist- myndin skín í lífi og breytni manna og þjóða, verða menn fallegir menn, og heimurinn góður heimur. —Fálkinn. Prestskosning í Hofsprestakalli Svo að segja öll atkvæðisbær sóknarbörn séra Péturs T. Odds- sonar, sem nú er settur prestur i Hofsprestakalli, hafa sent honum skriflega áskorun um að taka að sér prestakalið, þó prestskosningin, sem fram fór í sumar, hafi ekki verið lögmæt. Hinn 14. ágúst s.l. fór fram pregtskosning í Hofsprestakalli í Álftafirði, og var séra Pétur T. ! Oddsson eini umsækjandinn. Prestskosningalögin mæla svo fyrir, að kosning sér því aðeins lög- mæt, að helmingur þeirra, sem á kjörskrá eru, mæti á kjörstað. • Er það nær óbrigðul venja, þegar um einn umsækjanda er að ræða, að kosning næst ekki lögmæt. Mun hafa komið í ljós við taln- ingu, að aðeins eitt eða tvö atkvæði hafi vantað til þess að kosning séra Péturs T. Oddssonar yrði lögmæt. Nú hafa 250 kjósendur af liðlega 300, sem eru á kjörskrá í Hofs- prestakalli, sent séra Pétri T. Odds- syni áskoranir um að taka við kosn- ingu, enda þótt hún yrði ekki lög- mæt. En yfir 30 kjósendur eru fjar- verandi vegna sumaratvinnu, og munu þeir ekki hafa átt kost á að skrifa undir áskoranaskjalið. Séra Pétur T. Oddsson mun vera yngsti prestur á landinu. Hann hefir í hyggju að sigla á næstunni með styrk frá Sáttmálasjóði, er Há- skólinn veitti honum s.l. vor, og inun hann kynna sér kristindóms- fræðslu í skólum. —Morgunbl. 7. sept. Spámaðurinn frá Wall Street Það hefir verið ókyrð á heims- kauphöllunum upp á síðkastið og verður eflaust líka framvegis. En í ‘Hotel Waldorf-Astoria” situr þrek- inn Englendingur og segir verð- sveiflurnar fyrir, eins og ekkert hafi í skorist. —Ulppgangstímarnir eru ekki á enda ennþá, sagði hann í vetur þeg- ar sem mest syrti að á kauphöllinni í New York, og blaðamennirnir flýttu sér sér að koma spádómun- um til almennings og öllum létti. Því að Lawrence Lee Bazley Angas major frá Wlall Street hafði talað og orðum hans treysta allir spekú- lantar, stórir og smáir. Hver er hann þessi maður, sem leigir sér stærstu íbúðina í dýrasta gistihúsinu í New York, eins og hann væri fursti frá Indlandi? Hundruð af peningamönnuní leita til hans á hverjum degi og verða stundum að bíða viðtalsins vikum saman, þó að það taki ekki nema fá- einar minútur. Fyrir stutt viðtal borga þeir 200 dollara. Þessi Eng- lendingur, sem er 41 árs gefur líka út lítið blað, sem kemur út daglega og er prentað á ljósrauðan pappír. Þetta er dýrasta blað í heimi, því árganguinn kostar 5,000 dollara. En kaupendurnir segja, að þeir græði kaupverðið tífalt, því blaðið gefur ráðin sem þeir þurfa á að halda, um kaup og sölu á kauphöllinni í New York. Það ræður að líkum að áhrif þessa rnanns á viðskifti Ameríku- rnanna séu ekki neitt smáræði. Ilann þarf ekki annað ’en að inurra til þess að verðbréf stórfalli. Þannig var með verðbréf Federal Reserve Bank. Majórinn hafði spáð að þau mundu falla og rnánuði síðar varð stjórnin að hlaupa undir baggann, svo að bankinn gæti stað- ist hrunið. — En þó er Angas majór ekki hagfræðingur. Þessi maður, sem miljónamæringarnir bíða við dyrnar hjá, er alger leik- maður í hagfræði. Þegar hann var stúdent á Magdalene College í Ox- ford vissi hann ekki hvað hagfræði éar. Hann dreymdi þá um að vinna sér frægð í styrjöldum, lærði til liðsforingja, særðist í heims- styrjöldinni og fékk “Military Cross” og “Croix de guerre.” Þegar hann kom heim úr stríðinu ætlaði hann fyrst að bjóða sig fram til þings en hætti við og settist í helgan stein. Hann hafði gaman af veð- reiðum og var svo fjáður að hann gat keypt sér veðhlaupahesta. Og nú uppgötvaði hann, að hann hafði einskonar “sjötta skilningarvit” . . . hann gat sagt fyrir úrslit veðhlaup- anna svo að hvergi skeikaði og á stuttum tíma þrefaldaði hann eignir sínar með veðmálum um hesta. Og nú fór hann að reyna hvort hann gæti sagt fyrir verðsveiflur á kauphöllinni í London. Hann bjó sig undir þetta með því að hlusta á nokkra fyrirlestra í hagfræði og svo hætti hann nokkur hundruð pund- utn á kauphöllinni. Þess var skamt að biða að menn færu að tala um Angas majór. Hann hafði spáð því 1926 að gúmmi mundi falla í verði þegar allir spáðu að það mundi hækka. Árið 1931 spáði hann að gullið mundi hækka í verði og nokkru síðar feldu Bretar seðla- pundið og gerðu það óinnleysan- legt. Sama árið spáði Angas því, að batnandi tímar færu í hönd í Englandi og það kom fram. Og stóreignamenn, sem tekið höfðu mark á spám hans græddu miljónir. Hróður spámannsins fór sívax- andi, einkum eftir að hann spáði uppgangstíma í Ameríku árið 1933 og tiltók daginn sem verðbréfin mundu fara að hækka á kauphöll- inni í New York. Sú spá rættist upp á klukkutíma. Og nú leigði majórinn sér skrifstofu í Wall Street og réð til sín fjóra ritara og þurfti ekki lengi að bíða skiftavin- anna. Þegar blaðamenn spurðu hann hvað leyndarmálið væri við spásagnaranda hans svaraði hann: “Heilbrigð skynsemi, gott skap og sterkar taugar.” Angas majór gerir ýmislegt til að spilla ekki taugunum. Hann leyfir t. d. ekki að láta hringja sig upp í síma og þegar sem mest gengur á í kauphöllinni situr hann kyr heima og reykir sterkan ivindil. Hann hendir gaman að spekúlöntunum, sem fylla salina í kauphöllinni. Því að sjálfur er hann vitanlega fyrir löngu hættur að hafa nokkur við- skifti á kauphöllinni: hann á miklu ! minna á hættu sem ráðgjafi annara. —Fálkinn. Einstæð vertið Fœreyinga við Island Færeyskir fiskimenn segja að al- veg óvenjulega mikill handfæraafli hafi verið fyrir Vestfjörðum í sumar. Gamall maður á einu fær- eyska skipinu, sem stundað hefir sjó frá barnsaldri, segist ekki muna önnur eins aflabrögð og i sumar, aðallega út af Dýrafirði og Önund- arfirði. Eftir þessu hefir sumarvertíð færeysku skipanna hér við land ver- ið alveg einstæð. Færeyingar segjast fá fyrir afla sinn 32 aura fyrir kg. upp úr skip- inu heima í Færeyjum. Á Vestfjörðum, t. d. í Bolunga- vík, hafa aflabrögð verið óvenjulega góð í sumar, og fiskurinn veiðst uppi við landsteinana. T. d. hafa Bolvíkingar hlaðið báta sína af ríga- þorski inn á Hesteyrarfirði. Áta hefir gengið mikið inn á Vestfirði og er ekki nokkur vafi á því að hin miklu aflabrögð standa i sambandi við hana. \ I sambandi við frystihúsið á Flat- eyri hefir verið tekin upp ný veiði- aðferð, sem ekki hefir verið stund- uð i mörg ár fyrir Vestf jörðum, en það er kolaveiði í lagnet. Danir stunda kolaveiðar á Vest- fjörðum, einkum á Önundarfirði, fyrir nokkrum áratugum, í tuttugu ár samfleytt frá 1884—1904 og fluttu aflann út hálfsmánaðarlega. Síðan lögðust þessar veiðar niður. Nú eru íslendingar að taka upp veiðarnar, þar sem hraðfrystihúsið skapar skilyrði til þess að gera afl- ann verðmætan. T. d. uin afrakst- urinn má segja þessa sögu. Á ön- undarfirði hefir einn maður, sem stundað hefir veiðarnar á firðinum frá 20 júni, aflað kola fyrir full- ar þrjú þúsund krónur til þessa. — \ erðmæti dagsaflans hefir verið 60—90 krónur. Sér til hjálpar hefir hann haft tvær dætur sinar, önnur tíu ára, en 'hin 11 ára. Hann hefir aldrei lagt nema 10 net í einu (hefir haft 20 i takinu og lagt 10 á vixl). Smálúðuveiðar á lóðir hefir ver- ið mjög mikil fyrir vestan og meiri fiskigengd en áður hefir tíðkast. En þar sem öll smálúðuveiðin fer í hraðfrystihúsin, má búast við þvi, að lúðuryklingur fari að verða sjaldgæfur, —Morgunbl. 3. sept.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.