Alþýðublaðið - 12.07.1961, Qupperneq 8
BYGGÐ væri orðin samfelld
milli Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar, ef ekki væri einn stað
ur milli þessara bæja, Arnar
nesið, enn ósnert af jarðýtum
og öðrum þeim verkfærum,
sem fyrst taka til starfa við
byggingarframkvæmdir nú á
dögum.
Fram til þessa hefur stað-
ið á því að eigendur Arnarness
ins, létu jörð sína fala til íbúða
húsabygginga, en nú hefur
það verið gert og þeir látið
gera skipulagsuppdrátt af öllu
nesinu að Hafnarfjarðarvegi.
þá, sem skipulagt hafa ýmis
svæði, hefur ekki rennt grun
í allar þær miklu breytingar
sem orðið hafa á Reykjavík
undanfarið, og skipulagning
þessara svæða því ekki orðið
með þeim hætti, sem æskllegt
hefði verið. Þar við bætist, að
ýmis svæði hafa verið iila
skipulögð og reglur um bygg-
ingar einstrengingslegar, und-
antekningar gefnar um of eða
þá að hver hefur fengið að
byggja nærri því eins og hon-
um hefur þóknast, án þess að
nokkuð tillit væri tekið til
dæmi um sun'durlaust og lé-
legt skipulag er Kársnesið i
Kópavogskaupstað, sem þó
bæði er fagur byggingastaður
og vel í sveit settur af náttúr-
unnar hendi.
Þróunin virðist ganga í þá átt
að meira byggist í átt ti! Hafn
arfjarðar, en austur á bóginn
og verður þess því varla langt
að bíða að öll strandlengjan
byggist til Hafnarfjarðar, og
því mikilvægt að vel takist þar
sem þungamiðja borgarinnar
færist stöðugt meira í suð
vestur.
Arnarneslandið nær hins veg-
ar mun lengra upp í landið. —
Enn hefur ekkert verið
ákveðið um framtíð þess
hluta landsins, þótt sjá megi í
hendi sér, að það land, sem ann
að í næsta nágrenni Reykjavík
ur, hljóti að byggjast innan
ekki mjög iangs tíma, ef höf-
uðborgin heldur áfram að vaxa
jafnört og hún hefur gert síð-
ustu 2—3 áratugi.
Mikið hefur verið ritað og
deilt um skipulag bæjarins og
nágrennis hans og auðséð, að
legu staðarins, og þeirra bygg
inga sem í nágrenni væru. Af-
leiðing þessara hátta hafa orð
ið þær, að sums staðar er svo
að sjá sem ólíkustu húsagerð-
um hafi verið dritað niður úr
háloftunum og tilviljun ein ráð
ið hvar hver og ein lenti.
Sérstaklega er hryggilegt að
sjá þetta á fögrum og áberandi
stöðum sem koma til með að
standa í framtíðinni svotii í
miðju þeirrar borgar sem upp
hefur verið að rísa hér við
Flóann að undanförnu. Gott
Arnarnesið er eitt þeirra
svæða, sem munu mynda
Reykjavík framtíðarinnar. Nú
stendur aðeins eitt gamalt hús
á nesinu, sem er notað sem
geymsla, auk lítils hrörlegs
fjárhúss, sem er að detta niður
Allstórt og grösugt tún er á nes
inu, en annars er það allt ó-
ræktað, mest þýfðir móar og
melar á stöku stað.
Útsýni er fagurt bæði til
Reykjavíkur, Álftaness og á
haf út, mjög skýlt fyrir veðr-
um og engin hafalda kemst upp
að ströndinni því lygnir vogar
eru beggja vegna við nesið, og
allar stærri öldur brýtur langt
úti í Skerjafirði Arnarnes
vogur mun vera einn lygnasti
vogur í nágrenni Reykiavíkur,
en samt dýpri en flestir aðrir
— svo ekki mun finnast annar
betri staður til skemmtsiglinga
og sjóskíðaferða en hann, þótt
enn kunni þess að verða nokk-
uð langt að bíða, að Reykvík
ingar fari að ráði að leggja
stund á þessar skemmtilegu í-
þróttir, en að því hlýtur þó
að líða fremur fyrr en seinna.
í Arnarvoginum er g'óð sand
fjara á nokkru svæði innst í
voginum, sem jafnframt er í
skjóli við norðanátt af háum
bökkum og því mjög heppileg,
sem baðströnd þegar sólskin og
hiti leyfir slíka skemmtun.
Arnarnesið'hefur því af nátt
úrunnar hendi mjög góð skil-
yrði til að verða eftirsótt íbúða
hverfi. Nú hefur verið gert
mjög gott og skemmtilegt
skipulag af svæðinu og er þar
að finna ýmis nýmæli, enda
hægara um, þar sem þetta
svæði er alveg ósetið af eldri
byggingum.
Að sögn eiganda er hið
nýja skipulag fyrst og fremst
miðað við það að hverfið verði
sem þægilegast fyrir íbúa þcss,
bæði friðsælt, snyrtilegt og fag
urt. Þar verður m a. sú ný-
lunda að aðeins einn vegur
verður inn í hverfið, og verða
verzlanir við hann og önnur
þjónusta sem nú þykir nauðsyn
leg íbúum hvers hverfis. Þzr
verður einnig skóli, leikvöllur
dagheimili og íþróttavöllur.
Ofan við þá baðströnd sem
við nesið er af náttúrunnar
hendi, verður komið fyrir al-
menningsgarði, með trjálund-
um, sundlaug og tjörn og
skammt þaðan á að gera lysti-
bátahöfn.
Nokkur halli er á öilu r:es-
inu, svo hægt verður að byggja
húsin þannig, að þau spilli
ekki útsýni hvert fyrir öðru.
Til frekara öryggis er það telc
ið fram í afsali við lóðasölu, að
ekki megi víkja frá þeim regl-
um, sem gerðar hafa verið um
byggingu húsanna, t. d. má’ að
eins byggja þarna einlyft hús
eða hús með lágum kjallara og
Framhald á 10.
jj Myndin efst á síðunni er
|! af fjárhúskofanum, sem er
jj annað tveggja mannvirkja,
% sem stendur nú á Arnarnesi.
j; Kóllinn hér. til hliðar heitir
|l aftur á móti Álagahóll, en
j; íbúana á að henda ógæfa sé
Jl hann sleginn. Aftur á móti
!; veit enginn hvað ger'ist, sé
J; honum rutt um með jarðýtu,
!; enda hafa álfar sjálfsagt
J[ ekki haft nein viðurlög við
!; jarðýtum, þegar álögin
;! gengu í gildi. Að neðan sést
!j yfir nesið, Kópavogur í bak
;! sýn. Liósm.: G. Gests.
)
f
--
-
' x ■
' y ,\
:
0 12. júlí 1961 — Alþýðublaðið