Alþýðublaðið - 24.10.1963, Page 1
m
44. árg. — Fimmtudagur 24. október 1963 — 231. tbl,
Esíí?
Jf
I W
8WM
lii
íÍsíSSÍSí
Forsíða rússnesku bókarinnar
FYRR Á ÞESSU ÁRI kom út í Moskv u bók um ísland og íslenzka utanríkis-
stefnu. Eru í bókinni harla einkennilegar lýsingar á þjóðinni og ruddalegar árás-
ir á þá stefnu, sem mikill meirihluti íslendinga hefur stutt undanfarin ár. Er sér-
staklega ráðizt á núverandi ríkisstjóm og einstakir ráðherrar hennar svívirtir.
Hins vegar er talað vel um Sósíalistaflokkinn (ekki Alþýðubandalagið), MÍR og
aðrar slíkar stofnanir og samvinnuhreyf ingunni hælt fyrir baráttu hennar gegn
einkaauðmagni í landinu!
Bók þessi er 104 síður, gefin út af S ovézka skólanum fyrir alþjóðleg málefni,
en þar eru þjálfaðir menn fyrir utanríkisþjónustu Rússa. Einhverjum fleirum virð
ist þó ætlað að lesa ritið, því að það er g efið út í 5 000 eintökum.
I kafla um núverandi ríkisstjórn I
Islands eru sérstakar árásir á Al-
þýðuflokkinn ogr Guðmund í. Guð
mundsson utanríkisráffherra. í
þessum kafla er ástandi í tíff nú-
verandi stjórnar meffal amtars
lýst þannigr:
„Ennþá býr fjöldi íslenzkra fjöl
skyldna í rökum kjöllurum, torf
bæjum, í hermannabrögrgum og
flugrvélaskýlum." Sagrt er, aff lífs-
kjörin hafi versnaff og lialdi áfram
aff versna undir viðreisnarstjórn.
„Þannigr hæltu margrir íslenzkir
kennarar aff starfa í skólunum og’
verkfræffingrar fluttust úr landi ár
ið 1961, þar sem þeir grátu ekki
aflaff sér og sínum jafnvel hóg-
værasta viffurværis í Iandi.“ Sagrt
er frá, aff atvinnuleysi hafi skot-
ið upp kollinum, sem ekki hafi
veriff í mörg ár!
Þá segir, aff langsamlega van-
hugsaffasta verk stjómar Ólafs
Thors hafi samt veriff aff semja
við ráffamenn Bandaríkjanna um
aff leyfa þeirn aff endurhæta her-
stöð sína í Keflavík, en hættuleg
asta atriffi fyrir ísland í þessum
sanmingi er sagt vera ætlun
Pentagons (bandarísku herstjóm-
arinnar) „aff byggja upp herstöff
í Hvalfirffi fyrir kafbáta útbúna
kjamorkuvopnum.“
Þá segir: „Yfirleitt, þegar gerðir
em samningar á milli íslands og
Bandaríkjanna er hæversklega
þagaff nm þann dollarastraum, sem
fylgir þessum samningum.“
Skýrt er frá því, að á íslandi
séu sterk samtök hernámsandstæð
inga og aff frumkvöffufl allrar bar
áttu gegn bandaríska hernáminu
sé Sameiningarflokkur alþýffu-
Sósialistaflokkurinn.
GRIPAEMAR VESTUR-ÞÝZKA
HERSINS TEYGJA
SIG TIL ÍSLANDS.
Þá er í bókinni furffusaga um:
það, hvemig Vestur-Þjóffverjar
séu aff seilast til valda á íslandi."
Sagt er, að „árás Bónn“ sé í
tvennu lagi: hemaffar- og pólitísk
og efnahagsleg. Er fullyrt, að
hefndarsimigr í Boiy.i geri sér1
mjög góffar vonir um árangur
þessarar sóknar á hendur íslend-
ingum!
Fullyrt er í bókinni, aff Vestur-
Þjóffverjar hafi inn Iangt skeiff
sótzt eftir leyfi hjá íslcnzku stjóm
inni til að byggja upp herstöffvar
og æfingastöðvar á Islandi til aff
reyna þar eldflaugar fyrir her
sinn.
Síðan segir frá nazistahreyfingu
á íslandi:
Framh. á bls. 10
I
Fárviðri gekk yfir landið í gær. Mest var veðurhæðin í Vestm.-
eyjum, 16 vindstig, eða um 200 km. hraði á klukkustund. — í ó-
veðrinu strandaði brezki togarinn Northem Spray undir Grænu-
hlíð, en skipverjum, 20 að tölu, var bjargað um borð í Óðin.
Emnig strandaði Júní úr Hafnarfirði á skeri rétt við Álftanes. —
Þá var saknað trillu frá Rifshöfn, og var hún ekki komin fram kl.
1 í nótt. Bátsins Vers frá ísafirði var saknað, en hann kom fram
heilu og höldnu. Nokkrar skemmdir urðu í Vestmannaeyjum, — 3
millilandaflugvélar urðu að snúa við, skemmdir urðu á Stokks-
eyri og víðar. Sjá nánar í fréttum á baksíðu og 5. síðu.