Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1909, Page 70

Eimreiðin - 01.05.1909, Page 70
150 ALMANAK fyrir árið 1909. XV. ár. Winnipeg. Utgefandi Ó. S. Thorgeirsson. í almanaki þessu er framhald hinnar fróðlegu landnámu þeirra Vestur-Islendinga. Ennfremur æfisögur Tafts, hins nýkjörna Banda- mannaforseta, Lincolns, í tilefni af 100 ára afmæli hans, og tveggja íslenzkra bænda fyrir vestan haf. Þá segir Jóh. Magnús Bjarnason skemtilega smásögu frá Nýja Skotlandi um íslenzkt heljarmenni. S. N. TEÓDÓR FRIÐRIKSSON: UTAN FRÁ SJÓ. Smásögur. Akureyri, 1908. (Oddur Björnsson). Verð 1. kr. í kveri þessu, sem er ekki nema 93 bls., eru 9 sögur og allar stuttar. Og þær eru allar meira eða minna sorglegar, mest um slys meðal sjómanna og afleiðingar af þeim, drykkjuskap, fátækt og aðra armæðu. Framsetning og stíll er blátt áfram og látlaus, og ekki óþægileg; en efnið er altof fábreytt og gengur í of líka stefnu. Frá skáldlegu sjónarmiði er sögunum talsvert áfátt, enda varla von á öðru, þar sem þær eru eftir ungan mann í sveit, sem engan kost hefir átt á að kynnast stærri skáldritum og aldrei verið til menta settur, jafnan orðið að vinna fyrir sér og mest ritað sögur sínar á nóttum, — eftir því sem segir í formálanum. Auk þess eru sögurnar ekki sem hollastar, þó fjarri fari, að neitt ósiðlegt sé í þeim. En þær draga því nær eingöngu fram dökkar myndir, sorg og sárindi, sem getur verið vel lagað til að auka á þunglyndi manna og draga úr þeim þann kjark og trú á á hið betra í lífinu, sem öllum þeim er mest þörf á, sem við ervið kjör eiga að búa Það er ekki holt að einblína of rnjög á skuggahliðar lífsins og láta sem maður sjái ekkert annað. Miklu nær að beina auganu meir að björtu hliðinni, en þó réttast að láta ljós og og skugga skiftast á, eins og það gerir í lífinu sjálfu. En þó að sitthvað megi með réttu að sögum þessum finna, þá bera þær fyllilega vott um, að höf. þeirra hefir þó nokkra skáldlgáfu og dáindis glögt auga. En líklega hefir líf hans sjálfs fremur verið stráð þyrnum en rósum, og honum því gjarnara að lýsa sársaukum lífsins en sælunni. Langbezta sagan er hin síðasta, »Æskuminning«. Frá henni er svo gengið að hún væri hverjum höfundi til sóma. Efninu er bæði vel fyrir komið og þar margt vel sagt, t. d. þetta: »Ég, sem hafði elskað hana svo heitt, að ég elskaði sporin hennar í snjónum, þegar hún haiði farið eitthvað á bæi þar í sveitinni.« Eða: «Ekki mátti það minna vera, en þið yrðuð samferða — sama var móðirin«. — En menn verða að þekkja sambandið, til þess að geta metið gildi þessara setninga. V. G. FEODOR v. ZOBELTITZ: HRINGAR SERKJAKONUNGS. Saga frá 18. öld. Akureyri 1907, (Oddur Björnsson). Verð 2 kr. Hver, sem vill fá sér skemtisögu til dægrastyttingar, er ósvikinn af þessari bók. Því hún er prýðilega saman sett og mjög »spenn- andi*. Og auk þess hefir hún inni að halda talsverðan sögulegan fróðleik, að minsta kosti úr menningarsögu 18. aldarinnar. Segir þar

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.