Vísir - 06.06.1963, Síða 8
8
V í SIR . Fimmtudagur 6. júní 1963.
VÍSIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR.
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: AxeJ Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn ö. Thorarensen.
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýþingar og ’*greiðsla Ingólfsstræti 3.
Askriftargjald er 65 krónur á mánuði.
I lausasölu 4 kr. eint. — Simi 11660 (5 linur).
Prentsmiðja Visis. — Edda h.f.
Reykvlkingar ráða úrslifum
Reykvíkingar hafa það í hendi sér hvort Framsókn-
arflokkurinn fær myndað stjórn með kommúnistum
eftir kosningar. Þeirri stjóm myndi fylgja mikil eymd.
Það myndi verða stjóm haftanna, vonleysisins og þjóð-
nýtingarinnar. Þar yrði stjómað í skugga skattanna.
Hér í Reykjavík sækja Framsóknarmenn harðast og
hér telja þeir sig eygja veika von um að ná í tvö þing-
sæti, koma fulltrúa SÍS, sem annað sæti listans skip-
ar, á þing. Það er í hendi Reykvíkinga að gera þá at-
lögu að engu.
í þrjú ár hefur blær frjálsræðis og framfara leikið
um hús þjóðarinnar. Nú er kólga á lofti. Fulltrúar
þjóðnýtingarinnar knýja á dymar. FuIItrúar skömmt-
unar og haftaflokksins biðja Reykvíkinga um að fjölga
enn á þingi fulltrúum SÍS. Ef það tækist, fengi Ágúst
Þorvaldsson draum sinn uppfylltan. Hann sagði í út-
varpsumræðunum í fyrrakvöld:
„Það verður að leggja viðreisnina að velli“. - Þá vita
menn það. Það verður að leggja skattalækkunina að
velli. Það verður að leggja tollalækkunina að velli.
Það verður að leggja auknar almannatryggingar að
velli. Það verður að leggja verzlunarfrelsið að velli.
Það verður að leggja auknu íbúðarlánin að velli.
Draumsjón Ágústar og félaga hans, sem nú biðla til
Reykvíkinga, er kvótakerfið endurvakið, svo SÍS geti
ginið eitt yfir innflutningnum. Draumsjón þeirra er
lögfesting gulu bókarinnar, þjóðnýting íbúðarhúsnæð-
isins. Draumsjón þeirra er fögur — frá framsóknar-
sjónarmiði.
Reykvíkingar em dugmikið og framsækið fólk, ekki
síður en aðrir landsmenn. Þeir fóru eldsnemma á fætur
til biðraðanna á Eysteinsámnum. Þeir þraukuðu lengi
á biðstofum fjárhagsráðs og úthlutunamefndanna.
Þeir biðu þolinmóðir eftir leyfi fyrir gjaldeyri, þegar
þeir þurftu að bregða sér út fyrir pollinn eða kaupa sér
nýjan bíl.
En Reykvíkingar hafa fengið nóg af biðstofunum,
nóg af biðröðunum.
Þá langar ekkert til þess að sjá vofu Eysteinsáranna
vakta upp á nýjan leik.
Góður vitnisburður
„Framsóknarflokkurinn er nú róttækur og góður og
það er indælt að starfa með honum“.
Þannig fórust Einari Olgeirssyni orð á þingi nú eftir
nýjárið. Hann hefur eflaust hugsað til samvinnulip-
urðar Framsóknar í vinstri stjóminni, á þingi ASÍ og
í landhelgismálinu. Góður nemandi getur ekki fengið
betri vitnisburð hjá kennara sínum. Lærisveinninn F’
steinn má vera hæstánægður með árangurinn. H
hefur staðizt prófið.
Samtal við
Guðjón Sv.
Sigurðsson
formann Iðju
Kjör iðjuverkafólks
hafa aldrei verið betri en
nú. Er mikill munur á
aðstöðu þess nú og á
þeim tímum, sem vinstri
stjómin var við völd. Þá
vofði hvarvetna yfir
stöðvun og atvinnu-
leysi. Nú er atvinna
nægileg og hvarvetna
ríkir bjartsýni.
Þannig mælti Guðjón S. Sig-
urðsson formaður Iðju, en það
er eitt stærsta stéttarfélagið hér
á landi, með um 2 þúsund fé-
lagsmönnum. Þar af mun um
75% vera konur.
Þegar fréttamaður Vísis hitti
hann var nýlega búið að halda
aðalfund í félaginu. Þar var rak-
tímabil atvinnu og
ið starf félagsins á s.l. ári og
hvað væri framundan.
— Á síðasta ári, segir Guð-
jón, náðum við kaup-
hækkun og þá tók sjúkrasjóður
til starfa. Hann er ákaflega mik-
il hagsbót, líklega það bezta,
sem við höfum gert. í hann
renna um milljón krónur á ári
og er hann notaður til að
styrkja félagsmenn í langvar-
andi veikindum og einnig er
konum í félaginu greiddur styrk
ur vegna sængurlegu 4 þúsund
krónur.
Það kom og í ljós á fundin-
um, að eignir félagsins hafa vax
ið mjög mikið á undanförnum
árum. Þá má telja það nokkuð
nýmæli, að samþykkt var á fund
inum að félagið skyldi leita eft-
ir kaupum á hlutabréfum í Iðn-
aðarbanka íslands vegna fyrir-
hugaðrar hlutafjáraukningar
bankans. Þetta tel ég þýðingar-
mikið mál. segir Guðjón, því að
það er ljóst að það er grund-
völlu. auki'is iðnaðar að bol-
magn hans aukist fjárhagslega.
Vill félagið þvi stuðla að þvi að
iðnverkafóik geri þennan banka
að sínum.
Um kjaramálin er það að
segja. að stjórn Iðju telur að
það eigi að vinna að þvi að
stvtt? vinnutímann. niður í 44
tíma Það myndi ekki skerða
framleiðsluna, bvf að fólkið
myndi þreytast minna.
— Jjú sagðir að atvinna í iðn-
aðinum væri nóg?
— Já. Nú vinna yfirleitt all-
ar verksmiðjur með fullum af-
köstum og margar hafa varla
undan. Er nú frekar vöntun á
vinnuafli. Þetta er afleiðing af
þvf, að allur almenningur hefur
nú miklu meira fé handa milli
en áður. Kaupgetan hefur auk-
izt. Fólk leggur nú í kaup og
framkvæmdir, sem það hefði
aldrei dreymt um að gera á tím-
um vinstri stjórnarlnnar. Með
mér vinna t. d. á vinnustað
verkamenn, sem eru að kaupa
sér nýja bíla. Þetta hefði þá
aldrei dreymt um á tímum
vinstri stjórnarinnar.
Hin aukna kaupgeta hefur
svo áhrif á framleiðsluna á öll-
um sviðum, sérstaklega iðnað-
inum. Menn kaupa meira af föt-
um og húsgögnum og öðrum Iífs
nauðsynjum. Og vörur sem voru
taldar lúxus á tímum vinstri
stjórnar fá allir sér nú.
Auðvitað er þetta nokkuð
að þakka góðu árferði,
en ég hika ekki við að fullyrða
að það er jafnframt mjög mik-
ið að þakka stefnu núverandi
ríkisstjórnar.
Munið þið ekkj eftir svartsýn-
inni á dögum vinstri stjórnar-
innar. Hvernig óttinn við at-
vinnuleysi og erfiðleika grúfði
yfir öllu. Og allir vissu og
vinstri stjórnin viðurkenndi, að
bjartsýni
svo virtist sem þetta ætlaði að
enda allt með hruni.
'l/'iðreisnarstjórnin hefur unnið
’ stórkostlegt átak. Hún hef-
ur svipt burt svartsýni og tek-
ið upp bjartsýna stefnu og það
er enginn efi á því að hún hef-
ur farið miklu skynsamlegar
með peningana en vinstri stjórn
in. Það hefur gætt miklu meira
samræmis og hagsýni I fjármála
stjórninni.
Enda hef ég orðið þess var,
að fjölmargir menn, sem jafn-
vel hafa fylgt kommúnistum að
málum hafa nú komið til mín
og sagt að þeir væru sízt hrifn-
ir af því ef við völdum tæki
samstjórn Framsóknar og komm
únista. Þá yrði aftur tekinn upp
eymdarbúskapur á Islandi, segja
þeir.
— p’g vil því, segtr Guðjón
Sigurðsson, skora á allt
iðnverkafólk og alla verkamenn
í Reykjavík, sem hafa stutt
Framsókn og kommúnista, að
hugsa nú aðeins málið áður en
þeir greiða þessum vinstri flokk-
um atkvæði
Þeir ættu að spyrja sjálfa sig
að því hvort þeim sjálfum og
heimilum þeirra sé ekki betur
borgið undir ríkisstjórn, sem
hefur skapað hér miklu meiri
atvinnu og bjartsýni en nokkurn
tíma fyrr I sögu þjóðar okkar.
Eða vilja þeir kjósa yfir sig at-
vinnuleysi og fátækt.