Vísir - 25.10.1965, Side 1
243. tbl.
8 stórar síUartorfur fund-
ust út af Jökli í nótt
Blaðið frétti það í morgun, Benedikt Guðmundsson, til-
að sfldarleitarskipið Pétur Thor- kynnti að hann hefði fundið þar
steinsson hefði fundið síld út af einar 8 torfur, sem voru um 20
Jökli. Skipstjórinn á skipinu, faðma þykkar, en þær voru á
Háskólarektor afhendir háskólaborgarabréfin. Nýstúdentar standa á sviðinu.
HÁSKÓUNN VERÐISTÓREFLDUK
30—50 faðma dýpi. Þar utar frá
kvaðst hann hins vegar ekki
hafa fundið meiri sfld.
Nú er ekki gott að segja hvað
verður úr þessu, en Benedikt
skipstjóri er traustur maður og
mun það sjaldan að hann gefi
út tilkynningar um síldarfund,
ef hann ekki telur líkur til að
hægt sé að fá þar einhverja
veiði.
Ef síld kemur nú í Jökul-
djúpið má líta á það sem góða
gjöf, því að hér við flóann
standa frystihúsin svo að segja
aðgerðarlaus með starfsfólk
sitt. Pétur Thorsteinsson fór út
til að leita á fimmtudag í sfð-
ustu yiku og hefur þannig að-
eins verið 3 — 4 daga í leitinni,
áður hafði Hafþór leitað.
Útgerðarmenn hér við Flóann
eru óþolinmóðir og óánægðir
yfir því að þeim finnst allt of
lítið hafa verið gert að því að
leita sfldar fyrir vestan landið.
Nú þegar þessar fréttir berast
af síldinni við Snæfellsnes má
búast við að mörg skip fari að
reyna veiðar þar.
—■ sagði Artnann Snævarr rektor á Háskólahótíðinni
Háskólahátíðin 1965 var hald-
in í Háskólabíói s.l. laugardag,
fyrsta vetrardag. Hófst hún
með þvi að lúðrar voru þeyttir
og háskólakennarar gengu fylktu
liði í salinn. Til hátíðarinnar
voru mættir handhafar forseta-
valds, ráðherrar, sendiherrar er-
lendra ríkja, nýstúdentar og
fjöldi annarra gesta.
Að loknum hljóðfæraleik og
söng hófst ræða rektors, pró-
fessors Ármanns Snævars. Bauð
hann gesti velkomna en vék síð
an að starfi skólans á liðnu
skólaári.
Á árinu voru brautskráðir 70
kandidatar, sem rektor óskaði
öllum gæfu og gengis. Minnt-
ist hann á að nauðsynlegt væri
að athuga hversu unnt væri að
skipuleggja framhaldsnám
kandídata við Háskólann og
hver úrræði séu til að örva
menn til að stunda slíkt nám
og ljúka hér doktorsprófum.
Væri þetta mál, sem þarfnaðist
úrlausnar hið fyrsta.
Bauð rektor síðan nýstúd-
enda velkomna ,en þeir eru nú
324, þar af 29 erlendir.
Rektor sagði, að að undan-
förnu hefði verið unnið mikið
starf að endurskoðun kennslu-
skipunar til B.A.-prófa og í
tengslum við það endurskoðun
á námi í íslenzkum fræðum.
Yrði kennslan aukin og full-
komnuð og þar með undirbún-
ingur kennara til starfs. Væri
það því von skólans að aðsókn
að B.A.-deild myndi mikið auk-
ast.
Þá hefði verið gerð talsvert
veigamikil breyting á kennslu-
skipan guðfræðideildar, einkum
hefði þáttur sálgæzlu verið auk-
inn.
Þá vék rektor að byggingar-
Framhald á bls. 6.
Hermann Þórarins-
son lótinn
Hermann Þórarinsson frá Hjalta
bakka, útibússtjóri Búnaðarbank-
ans á Blönduósi varð bráðkvaddur
hér í borginni f gær, en hann var
hér staddur til að sitja Sveitar-
stjórnarráðstefnu Sjálfstæðis-
flokksins. Hermann var merkis-
maður og vel látinn í héraði. Hann
var fæddur 2. okt. 1913, sonur
Þórarins alþm. Jónssonar á Hjalta-
bakka og frú Sigríðar Þorvalds-
Framhald bls. fi.
Flokksróðsfundur Sjólfstæðisflokksins:
Fagnar stefnuyfirlýsingu
rikisstjórnarinnar
Flokksráðsfundi og sveitar-
stjórnarráðstefnu Sjálfstæðis-
flokksins Iauk í gærdag. Sam
þykkti flokksráðstefnan að
lýsa yfir ánægju sinni vegna
hinnar nýju stefnuyfirlýsingar
ríkisstjórnarinnar og samþykkti
yfirlýsinguna Sveitarstjórnar-
ráðstefnan gerði ítarlega sam
þykkt í sveitarstjórnarefnum,
sem væntanlega mun verða birt
hér í blaðinu á morgun.
Fundir hófust á sveitarstjóm-
arráðstefnunni kl. J.O í gærmorg
un í Sjálfstæðishúsinu. Flutti
formaður þeirrar nefndar sem
skipuð hafði verið til þess að
fjalla um ályktun ráðstefnunn
ar, Birgir ísl. Gikínarsson
framsöguræðu um álitið. Urðu
síðan miklar umræður sem
stóðu til hádegis og eftir há-
degi allt til kl. 4 Þá var settur
flokksráðsfundur á nýjan leik
og fyrrgreind samþykkt gerð.
M511Í kl. 5 og 7 var móttaka fyrlr
fulltrúa á fundinum og ráð-
stefnunni og konur þeirra.
260 þús. kr. dómur
Dómur i máli Þorkels mána kemur seinna i dag
Dómur hefur nú verið kveðinn
upp í máli togaraskipstjórans á Hall
veigu Fróðadóttur.
Var skipstjórinn á Hallveigu
Fróðadóttur dæmdur í 260 þús. kr.
sekt og afli og veiðarfæri gerð
upptæk og var hann ennfremur
dæmdur til þess að greiða allan
sakarkostnað.
Síðdegis í dag verður kveðinn
upp dómur í máli skipstjórans á
Þorkeli mána.
Voru báðir togararnir teknir að
ólöglegum veiðum aðfaranótt
föstudags 3-4 sjómílur innan þeirra
marka er gilda fyrir togveiðar ís-
lenzkra skipa í Faxaflóa.
ERFIÐ BARÁ TTA
VIÐ JÖKULSÁ
Fyrir helgi var hafizt handa um
að beina vatnsflaumnum i Jökulsá
á Sólheimasandi, sem braut vestri
brúarendann af sér, aftur austar og
á laugardag hafði það tekizt og var
orðið fært upp á brúna.
En við það að meginstraumurinn
færðist austar grófst undan aust-
asta millistólpanum, svo að hann
skekktist og við það seig brúin og
skekktist (tvö austustu höftin).
Brúin er nú ófær öllum farar-
tækjum, en fær gangandi mönnum
og hafa rnenn orðið að bera mjóÍK
og afurðir yfir brúna.
Reynt verður nú að hleypa vatn-
inu vestar til þess að minnka
straumþungann austur frá og aftra
frekari skemmdum þar.
Um það verður ekki sagt að svo
stöddu hvenær hægt verður að hef]-
ast handa um viðgerðir, eins og
stendur er revnt að hindra frekari
skemmdir, en aðstaðan þama aust-
an megin var í gær, að ekki var
hægt að hefjast handa um að breyta
straumnum þar.
Frá hinni fjölmennu sveitarstjórnarráðstefnu Sjálfstæðisflokksins, sem stóð I gær og á laugardag.
Myndin sýnir hluta fulltrúahópsins hvaðanæva að af landinu. (Ljósm. Vísis).