Vísir - 25.10.1965, Side 3
V í SIR . Mánudagur 25. október 1965.
3
CORTINA -66
Ford Cortina á íslenzkum vegum!
CORTINA „66“ er rúmgóður f jölskyldubíll með: Stórt farangursrými.
Diskhemla á framhjólum. Loftræstingu með Iokaðar rúður.
Þess vegna er CORTINA kjörinn FERÐABILL.
CORTINA ER METSÖLUBÍLL, sem unnið hefur yfir 200 sigra í
alþjóðjegum aksturskeppnum.
l -AfaTMAfi.-
Stórt farangursrýini. & \ Cot'%ú með lokaðar rúður.
SVEINN EGILSSON H.F.
UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SlMI 22465
íþróttir —
Framh. aí bls 2.
aukaspyrna á ágætum stað nokkra
metra fyrir utan vítateigshornið
hægra megin á Keflvíkinga. Hinn
19 ára gamli framvörður, Benedikt
Valtýsson, framkvæmdi spyrnuna.
Boltinn sveif allhátt yfir vörnina,
lenti rétt fyrir framan Kjartan mark
vörð og spýttist í marknetið fram
hjá honum, 1:0.
★ . . og annað mark fylgdi,
þótt ótrúlegt væri. Bjöm Lárusson
var kominn með boltann á tærnar
á síðustu minútu leiksins og var í
skotfæri innan vítateigs eftir ágæta
sókn Akraness. Og honum
tókst að koma boltanum fram hjá
Kjartani markverði og unnu Akur
nesingar því 2:0.
[ Sá sigur er e.t.v. fullstór, en 1:0
hefðu verið sanngjörn úrslit fyrir
lAkranes, þótt Keflavík hefði fullt
eins getað sigrað með sömu tölu.
Leikurinn var tvísýnn og liðin léku
mjöf jafnt, hvort á sinn hátt. Kefla
víkurliðið var sterkara liðið og fljót
ara, en meiri knattspyrna er hjá ein
staklingum Akranessliðsins, og þá
einkum framlínumönnum.
Mér fannst Eyleifur bezti maður
vallarins. Þar er maður, sem hefur
sýnt stöðuga framför ■' sumar. Það
verður gaman að sjá hann og fé-
laga hans næsta sumar í keppni.
j Tveir ágætir framlínumenn hafa
bætzt liðinu. Guðjón Guðmundsson
;og Þröstur Stefánsson. Skúli Há-
| konarson var ekki með að þessu
i sinni, en Björn Lárusson lék í stað
inn. I framvarðalínunni var Krist
inn Gunnlaugsson (bróðir Högna í
Keflavíkurliðinu) bezti maðurinn.
Ég held að hann komi út sem bezti
miðvörðurinn í lok keppnistímabils
ins, a.m.k. hefur hann verið það
undanfarna 3—4 leiki með liðinu.
Jón Leósson barðist grimmilega að
venju, en var- full grófur, enda mik
ið dæmt á hann. Benedikt Valtýs-
son var og góður og skoraði mark
sem var dýrmætt. „Ég var trylltur
Mannkyninu fjölgar með vaxandi
hraða.
Meir en helmingurinn sveltur eða býr
við næringarskort, og á hverju óri
fæðast nýjar milljónir, sem hungur-
vofan stendur fyrir þrifum.
Herferð gegn hungri er alþjóðlegt
sjálfboðastarf, sem miðar að því að
kveða niður þennan mannkynsóvin.
af fögnuði þegar ég sá boltann
renna f markið“, sagði hann. Bak
verðirný- voru ágætir og Helgi Dan
í markinu sömuleiðis.
Keflvfkingar voru daufari en þeir
eiga að sér í þessum leik. Vömin
var örugg, sérstaklega Sigurvin og
Högni, en framvarðalínan kom ekki
vel út að þessu sinni í heild sinni.
í framlínunni var Karl fíermanns-
son beztur ásamt Jóni Ólafi Jóns-
syni, en aðrir leikmenn voru langt
undir getu sinni.
Valsmenn fá erfiða keppi-
nauta þar sem Akranesliðið er. Það
verður þó án efa skemmtilegur leik
ur, enda hefur reynslan sýnt það
með leik þessara liða. I sumar hafa
leikir liðanna þó farið svo að Akur
nesingar hafa unnið í bæði skiptin
f l. deildinni, fvrst á heimavelli og
stöðvuðu þá sigurgöngu Vals svo
tryggilega að Valur fékk ekki eitt
einasta stig það sem eftir var, eða
í 6 síðustu leikjunum. Sá leikur fór
fram á heimavelli Akurnesinga og
lauk með 3:2, en hér í Laugardal
vann Akranes með 5:2.
Dómari á laugardaginn var Grét-
ar Norðfjörð og dæmdi ágætlega.
- jbp -
r
I fermingar-
veizluna
Laugavegi 126 . S. 24631
ÚTBÚUM:
10—20 manna brauðtertur.
Skreytum einnlg á stálföt.
Einnig smurt brauð
1/1 snetðar og 1/2 sneiðar.
Kaffisnittur • Cocktailsnittur
1 afmælið
I giftinguna
t fermingarveizluna.
PANTIÐ TÍMANLEGA