Vísir - 25.10.1965, Qupperneq 7
7
V1 S I R . Mánudagur 25. október 1965.
..
Vinlandsbrt «—
Frh ar bls 9
eyjar sem teiknaðar eru inn á
suðurhluta Atlantshafsins á
báðum kortunum eru bæði
raunverulegar og óraunveruleg-
ar.
Atlantshafssvæðið var á 14.
og 15. öld landafundasvæði, sem
vakti mikla forvitni og áhuga
meðal sjómanna og kortagerðar-
manna. Það var að vísu ekki enn
farið að hugsa um að sigla skip-
um. vestur á bóginn til Cathai
eða Indlands, því siður að menn
væru að leita uppi löndin sem
íslendingar höfðu fundið í
vestri. Hugmyndir manna sner-
ust um eyjar, ekki um megin-
lönd, og þetta hefur haft sín á-
hrif á höfund Vínlands-kortsins.
Þó að Vínland sé í fornsögum
okkar meginland, hefur hann
ekki getað fengið inn í höfuðið
að hægt væri að finna nýtt
meginland á þessum endamörk-
um heimsins. Nei, hann teiknar
Vínland upp sem enn eina eyju
í Atlantshafinu, að vísu stærstu
eyjuna.
k þessum tímum vakti það
feikilega athygli, þegar
Kanaríeyjar fundust 1336 og um
líkt Ieyti fundust Madeira-eyjar.
Eða árið 1418 þegar Portúgalar
hófu landnám á Azor-eyjum og
ráða má af gömlum skinnbók-
um þeirra, að þeir hafi jafnvel
vitað af þanghafinu mikla 1
Zaragossa-sæ. Menn hafa ekki
velt því fyrir sér, hve mikill
viðburður þessir landafundir
voru, þeir hafa fallið í skugga
síðari landafunda. En þetta
vakti vafalaust mikla athygli,
við þurfum ekki annað en að
líta í eiginn barm og ímynda okk
ur hve mikla athv
enn í dag ef ný
einhvers staðar í Kyrráhafinu.
Allar þessar eyjar eru merkt-
ar á landabréf bæði hjá Andrea
Bianco og á Vínlandskortinu, og
svo hafði verið á mörgum landa
bréfum sem gerð höfðu verið
áður.
En þar fyrir norðan komum-
við auga á tvær stórar eyjar úti
í Atlantshafinu. Þær voru kall-
aðar á landakortum miðalda
Satanaxio og Antilla en eru í
rauninni hvergi til nema á landa
bréfunum. Það hefur ekki skil-
izt enn hvemig þessar ímynduðu
eyjar komust inn á landabréfin.
Landaþráin hefur vakið hjá
manni falskar vonir pg hug-
myndir um ný eyríki vestur í
hafi. Satanaxio og Antilla eru
á flestum landabréfum frá þess-
um tíma, en það er ein sönnun
þess, að Vínlandskortið sé gert
eftir Iandabréfi Biancos, að á
þessum tveimur kortum eru
þessar tvær furðueyjar dregn-
ar upp nákvæmlega eins.
Tjað sem Vínlandskortið hefur
" mest fram yfir landabréf
Biancos er að Vínland er mark-
að á það. En fleira vekur at-
hygli í þessu sambandi. Höf-
undur Vínlandskortsins hefur
haft undir höndum furðulega
nákvæmar upplýsingar um
svæði íslendinga nórður I höf-
um. Það er ekki aðeins Vínland
sem hann hefur með sinum
tveimur athyglisverðu fjörðum,
sem augljóslega eiga að tákna
sundin sitt hvoru megin við
Nýfundnaland. Heldur bætist
hitt við, hve furðulega nákvæm
afmörkun Grænlands og íslands
er. Það vantar ekki mikið á að
Grænland eins og hann dregur
það inn gæti staðizt á landa-
kortum nútímans. Og þó ísland
sé kannski ekki sem allra ná-
kvæmast, þá hefur það eitt ein-
kenni fram yfir öll önnur ís-
landskort, næstu 200 árin. Þar
markar fyrir mesta sérkenni
íslands, Vestfjarðahausnum.
Allt að 200 árum síðar var ís-
land enn teiknað upp sem ó-
löguleg eða laglaus klessa I
sjónum. Þess vegna er það enn
eitt furðuverk þessa miðalda-
korts að höfundur þess virðist
hafa vitað að Vestfirðir á Is-
landi voru til.
"Pnginn getur sagt um það með
vissu hverjar heimildir
kortateiknarans í Basel voru
fyrir þessu og þær heimildir eru
nú gersamlega glataðar. Þettá
hefur vakið hjá mörgum þær
hugmyndir, að landabréf þetta
sé falsað, það hljóti að vera
síðari tíma verk. Og skiljanlegt
var það að fræðimennimir sem
f engu það upp í hendurnar væru
tortryggnir, grunaði að þetta
væri síðari tíma verk. Þeir íhug-
uðu málið því mjög gagnrýnandi
frá öllum hliðum og komust að
' þvl eftir öðrum leiðum, að kort-
iðs getur ekki verið falsað. Það
er staðreynd að það varð til í
kringum 1440. En þá hlýtur það
að fylgja með sögunni, að á
þeim tímum hafa verið til suð-
ur í Evrópu, einhvers staðar
undir handarjaðri páfadæmis-
ins merkilegar heimildir um ís-
land og norðurhöf, sem síðan
hafa glatazt. Þessar heimildir
era að lfkindum komnar beint
-frá lslandi, frá biskupsstólunum
á Hólum eða Skálholti.
Níu vikulegar ferðir
milli Islands og fjögurra stórborga Norðurlanda: 0SL0 Þrjór vikulegar ferðir fram og aftur
GAUTABORG Tvœr fercBr í viku fram og aftur
KAUPMANNAHÖFN þrjór vikulegar ferðir fram og aftur
HELSINGFORS Ein ferð í viku fram og aftur
LOFTLEIBIS LANDA MELU
ÞÆGILEGAR HRAÐFERÐIR HEIMAN OG HEIM
TRYGGIÐ FAR MEÐ FYRIRVARA
FLUGFERÐ STRAX FAR GREITT SÍÐAR
FJÖLSKYLDUFARGJDlD TIL NORDURLANDA