Vísir - 25.10.1965, Side 9
VtSIR . Mánudagur 25. október 1965.
9
PE>:<
væri að sigia suður fyrir Afríku
né vestur um haf til Asíu.
Ynúslegt er samt auðþekkj-
anlegt af landabréfum þess-
um og þá einkum það sem
snertir Evrópu. Grundvöllur
landabréfanna er sú landfræði-
lega þekking sem ítalskir land-
fræðingar höfðu getað viðað að
sér. Það var vissulega rfkjandi
mikill áhugi á að vita meira.
Marco Polo hefur farið sína
miklu landkönnunarferð austur
til Kína og kortin sýna að mönn
um er vel kunnugt um Rauða
hafið, Arabíuskagann, Persa-
flóann, Indland og Kína. Sumt
mikla menn fyrir sér eins og t.
d. hinn mikla fjölda eyja í Ind-
landshafi sem eru mjög áberandi
á báðum uppdráttunum, en þar
eru í rauninni aðeins hinar ör-
smáu en mörgu Maldive-eyjar
sem nýlega voru að fá viður-
kenningu sem sjálfstætt rfki og
svo Ceylon sem hefur fengið
sitt sæti á hinum ftölsku landa-
bréfum.
Þessi tvö heimskort sem hér
birtast eru: Það stærra er sá
uppdráttur sem nýlega hefur
fundizt og vakið hefur svo
mikla athygli og hefur íkiíð^
gefið heitiö* -■V'fntandskdlttð.''*^
Hinn uppdrátturinn er heimskort
ítalska kortagerðarmannsins
Andrea Biancos sem hann teikn
aði árið 1436 í Feneyjum.
Við nána athugun á ótal smá-
atriðum og samanburði við
fjölda annarra landabréfa hafa
bandarísku vísindamennimir
við Yale-háskólann komizt að
þeirri niðurstöðu, að þessi tvö
landabréf séu skyldust. Þeir
þykjast sjá það, að „Vínlands-
kortið“ er teiknað á grundvelli
landabréfs Biancos Og við það
hafa þeir m. a. miðað tíma-
setningu Vínlands-kortsins. Það
hlýtur að vera teiknað seinna
en kort Biancos kom út og
bendir margt fleira til þess, að
það hafi verið gert á kirkju-
þingi sem haldið var í Basel sem
qú er í Svisslandi kringum ár-
ið 1440.
'C’n höfundur „Vínlands-korts-
ins“ hafði í höndunum frek-
ari upplýsingar en Andrea
Bianco þegar hann var að teikpa.
sitt kprtjjsuður í Feneyjum. Ög '
í sarffeBtt ^ið^þaSl- breytif hann ■1
kortinu. Hann gerir t.d. rétti-
lega ráð fvrir því að Arabíu-
skagi sé stærri en Bianco
ímyndaði sér og réttilega fækk-
ar hann eyjunum í Indlandshafi
og dregur upp stórar eyjar fyr-
ir austan Asíu, sem hann nafn-
greinir að vísu ekki, en koma
allvel heim við Japan eða Fii-
ippseyjar, sem Marco Polo hefur
e.t.v. fengið hugmyndir um.
Ekkert af þessu hefur þó
vakið neina athygli. Er talið að
þessir uppdrættir af fjarlægum
eyjum austast í Asíu séu gerðir
meira og minna út í loftið. En
það sem hefur vakið mesta
furðu, er að á landabréfi ó-
þekkta landakortateiknarans í
Basel er að finna fyrstu merki
þess að Evrópumönnum hafi
verið kunnugt um að land væri
einnig til fvrir vestan haf. Og
meira en það. Við eyjuna stóru
sem sést lengst tii vinstri á
landabréfi hans hefur hann
skrifað með greinilegum stöf-
um á latínu „Vínland, sem
Bjami og Leifur fundu“. Og þar
skammt frá er annar lengri
texti þar sem sagt er frá þvi
að Eiríkur Gnúpsson Græn-
landsbiskup hafi að boði Róm-
arpáfa farið í leiðangur til að
kanna Vínland betur.
TWu er það. að vísu rétt, sem
•, m. a. kom ffam í samtafi
Yísis fyrir 1 nokkru við Bjöm
Þorsteinsson sagnfræðing, að í
augum okkar íslendinga eru
þetta hvorki mikil né ný tíð-
indi. Hér á landi hafa frá því
á söguöld varðveitzt munnmæii
og sagnir um landafundi íslend-
inga til foma. Sjálfir vitum við
allra manna bezt. að íslendinga-
sögumar eru bókmenntir þess
eðlis, að þær segja ekki frá öðrn
en því sem hefur að geyrr.a
sögulegan kjama. Við höfum að
vísu deilt um {>að, hvort allir
þeir atburðir sem sagt er frá i
Njálu hafi í raun og veru gerzt,
hvor þar sé ekki vafið skáldskap
inn í. En um hitt efumst við
ekki að Njáll á Bergþórshvoli
og Gunnar á Hlíðarenda eða
Höskuldur Hvítanesgoði hafi
verið til.
Alveg eins kemur okkur ekki
til hugar að efast um sannleiks-
gildi hinna íslenzku fomsagna
um Bjama Herjólfsson, Leif
heppna, Þorfinn karlsefni o.s.frv
eða að Vínland hafi fundizt. Við
vitum það óhaggandi af reynslu
okkar af fslendingasögunum, að
bama er verið að segja frá
sögulegum staðreyndum,
Hins vegar hefur ekki reynzt
auðvelt að telja öðrum þjóðum
trú um þetta, þar á meðal þeirri
hafði nýjar heim-
ildir, sem geta
aðeins verið
komnarfrá íslandi
þjóð sem þetta skiptir mestu
máli, Bandaríkjamenn. Þeir gáfu
okkur að vísu I heiðurskyni á
Alþingishátíðinni myndastyttu
af Leifi heppna, en þrátt fvrir
það er hætt við að þorri fólks
þar í landi hafi aðeins litið á
sögumar af Leifi heppna sem
sagnaskáldskap.
Þess vegna var það mjög
mikilvægur atburður, þegar
norska ferðakappanum Helga
Ingstad tókst fyrir nokkmm
ámm að grafa fram I dagsljósið
fyrstu leifamar sem óvefengj-
anlega eru frá norrænni byggð
í Ameríku. Þessi fundur hefur
þegar gerbreytt áliti manna I
Vesturheimi og fundur þessa
gamla og merkilega Vínlands-
korts kemur til með að styrkja
mjög þá viðurkenningu.
‘V'ið skulum bera lítið eitt nán-
ar saman Víniandskortið og
heimsuppdrátt Biancos. Lítum
t.d. á Atlantshafseyjarnar. Þær
Iramh. ð 7 siðu
• í fréttum þeim sem birzt hafa í blöðunum um hinn merkilega landabréfa- ;
• fund, Vínlands-kortið hefur aðeins verið stiklað á því stærsta. Vísir !
• •
l mun á næstunni segja í nokkrum greinum frá helztu atriðum í rannsókn J
; j
; um hinna bandarísku vísindamanna, sem fundu kortið. Greinar þessar •
; •
• verða sniðnar eftir heimildum í bók vísindamanna „The Vinland Map“, l
: :
: sem blaðið hefur nú undir höndum. •
Uppdráttur gerður eftir heimskorti Andrea Bianco 1436.
Tlér á síðunni blrtast eftir-
myndir af tveimur gömlum
landabréfum. Þetta eru helms-
landakort, eins og menn I Suð-
ur- og Mið-Evrópu imynduðu
sér á 15. öld, að heimurinn Bti
út.
Við sjáum að heimsmynd
þeirra tima innihélt hinar þrjár
gömlu heimsálfur Evrópu, Asíu
og Afríku. Við nánari athugun
kemur í ljós, að enn hafa menn
á þeim tíma gert sér rangar og
óljósar hugmyndir um ýmis
höfuðatriði landafræðinnar.
Þegar þessi kort eru gerð hafa
menn ekki gert sér fyllilega
ljóst, að heimurinn er hnatt-
laga og þeir ímynda sér norður-
hluta jarðarinnar sem hluta
frosts og freða meðan að i suðr-
inu sé andstæðan, þar muni á
endanum komið að vítislogum.
Þá vissU menn ekki að þegar
sunnar kæmi færi veðráttan
aftur kólnandi og menn höfðu
hvorki hugmynd um að hægt U(,^u.»nu, ... , „„di^uu,„,,u u> <mu in».
Vínlandskortið og heimskort feneyska
landfræðingsins Andrea Bianco
Kortagerðarmað-
urinn í BASEL
/