Vísir - 25.10.1965, Page 16
VISIR
Manudagur
október 1965
Landsmálafundnr
í Hafnarfirði
Landsmálafélagið Fram í Hafnar
firðl heldur fund í Sjálfstæðishús-
inu í kvöld kl. 8,30. Alþlngismenn
imir Matthías Á. Math’esen og
Sverrir Júlíusson hefia umræður
um landsmál, ennfremur verður kos
Sð f fulltrúaráð.
Allt' sjálfstæðisfólk er hvatt til
þess að fjölmenna á fundinn .
Aukin hagræiing við lestun oglosun
— er eitt helzta framtióarverkefni Eimskipafélagsins, sagði Óttarr
Möller forstjóri, um borð i Reykjafossi við komu skipsins til Rvikur
— Eitt helzta áhugamál Eim
skipafélagsins er að auka hag-
ræðingu við lestun og losun í
höfnum, sagði Óttarr Möller
forstj. Eimskipafélags Islands
í rreðu um borð f hinu nýja
skipi Eimskipafélagsins, Reykja
fossi, í Reykjavfkurhöfn, er
hann bauð skipstjóra og skips-
höfn velkomin með skipið til
landsins.
— Við reynum að nota nýj-
ustu tæki eftir því sem við
verður komið, en hafnarskil-
yrði á hverjum stað marka okk
ur þröngt svið um alla ný-
breytni, hélt Óttarr áfram. Lest
un og losun er einn helzti lið-
urinn í flutningskostnaðinum
og þess vegna er markmið okk
ar að vélvæða þann lið sem
mest, þannig að mannshöndin
þurfi sem minnst að koma þar
nærri. Það sem við höfum nú
mestan áhuga á að koma okk-
ur upp, eru svonefndir „con-
tainers" eða bretti í lestunum,
en til þess að það sé hægt,
þurfa viss skilyrði að vera fyr
Kjarvalssýning-
in framlengd
Gifurleg aðsókn i allan gærdag — Happdrætt-
ismiðar seldir fyrir 700 búsund krónur
ir hendi í höfnum, og þau skil-
yrði verða að skapast hér í
Reykjavík og fleiri höfnum
landsins áður en larjgfcfBB* Iíð-
ur.
— Framundan hjá fSaginu
er einnig að láta smíða nýtt
farþegaskip og sérstök skip til
sérhæfðra flutninga, um leið og
gömul skip verða endumýjuð.
Takmark okkar er hið sama og
árið 1914, — að bjóða betri
þjónustu fyrir lægra
Svo gífurleg aðsókn hefur
verið að listsýningu Kjarvals I
Listamannaskálanum að ákveð-
ið hefur verið að framlengja
sýninguna um tvo daga eða til
þriðjudagskvölds.
Sýningargestir hafa nú keypt
sýningarskrár, sem jafnframt
eru happdrættismiði, fyrir alls
700 þús. kr. Er það fyrirkomu
lag haft á sýningarskránum að
ósk listamannsins sjálfs, sem
gefið hefur eitt af málverkum
sínum til vinnings, frábært
listaverk. Féð rennur til bygg-
ingar nýs listamannaskála á
Miklatúni.
Óhætt er að fullyrða að al-
drei hefur jafnmargt fólk kom-
ið á listsýningu i listamanna-
skálanum og í gær. Strax kl.
10 f.h. þegar opnað var, biðu
nokkrir menn við dyrnar. Siðan
var sífelldur straumur fólks og
svo margt sótti sýninguna síð
ari hluta dags að loka varð
skálanum um sinn vegna
þrengsla. Var sú ákvörðun tek
in þá að lengja sýningar-
tímann. Er vel til þess að vita,
að borgarbúar skuli hafa sótt
þessa einstæðu listsýningu svo
vel sem raun er á, því þar
gefst frábært tækifæri til þess
að sjá margar af beztu mynd-
um hins aldna meistara, Jó-
hannesar Sveinssonar Kjarvals.
Reykjafoss f höfninni í Reykjavik.
Moksíldveiði eystra í nátt
Inóttina. Svo fór að ktila með í
morgninum.
69 skip med yfir 67 þús. mál og funnur
Uppgripaafli var á sildarmiðun- : i gærkvöldi en veður annars gott | Sfldartökuskipin Sildin og Rub-
um eystra í gærkvöldi og nótt. Frá j og heldur létti þokuna er leið á I ista eru á miðunum.
kl. 9 í gærmorgun til kl. 8.15 i_____________________ __
höfðu 69 sklp fengið samtals 67.
150 mál og tunnur. kv
Bátarnir höfðu legið inni vegna
ógæfta, en fóru að tínast út I gær-
kvöldi. Svartaþoka var á miðunum
Syrtlingur er horfinn í sjó
Syrtlingur, nýja eyjan, sem mynd
azt hafðl við eldgos úr sjó á sið-
astliðnu vori rétt hjá Surtsey er
horfin i sæ og sér nú ekkl urmul
af henni eftir.
Þetta var orðin þó nokkur eyja,
þvi þegar hún var síðast mæld, um
miðjan september, var hún 625
metra löng og 67 metra há. Telja
má fullvíst að hún hafi bæði stækk
að og hækkað eitthvað eftir það.
Syrtlingur skaut fyrst upp koll-
inum sem eyja 28. maí f vor. Nokkr
um dögum áður hafði eldsumbrota
orðið vart í sjó skammt undan
Surtsey og var við því búist að
þá og þegar myndi eyja myndast,
sem og líka varð. En Syrtlingur
varð ekki ýkja langlífur í það sinn,
því að 8. eða 9. júní sópaðist hann
burt í roki og særóti. Þó héldu
eldsumbrotin í sjónum áfram og fá-
um dögum seinna skaut evjan upp
kollinum á nýjan leik og hefur sfð
an stækkað jafnt og þétt þar til
nú, að hún er gjörsamlega horfin.
Efnið í Syrtlingi var vikur, sand
ur og gjall, sem er ekki haldgott í
miklum veðrum og særóti. Undan
fama daga hefur verið látlaust
sunnanrok með þungum sjó og það
hefur eyjan ekki þolað. Er hætt við
— jafnvel þótt henni skjóti upp
aftur — að hún eigi erfitt með
I að standast vetrarveðrin. Hefur
| óhemju mikið magn af vikri komið
'upp við Syrtlingsgosið undanfarna
| mánuði og flotið í hrönnum um all-
an sjó m.a. norður fyrir land.
Dr. Sigurður Þórarinsson jarð-
fræðingur flaug austur yfir Syrt-
ling um þrjúleytið í gær til að full
vissa sig um hvort nokkuð sæist
eftir af eyjunni. En þar var ekkert
að sjá, sagði dr. Sigurður, nema
hvað brotið hafi á nokkru svæði líkt
og á Eldeyjarboðanum á dögunum
þegar menn héldu að þar væri byrj
að að gjósa. Engar spreng-
ingar kvaðst Sigurður hafa séð né
Framh. á 6. sfðu
Mótmæla ferða-
mannaskattinum
Nú um helgina var haldinn
fundur í Skálklúbb Reykjavík-
ur, en það er samband ferða-
málamanna. í samtökum þess-
um taka þátt fulltrúar flugfé-
laga, skipafélaga, hóteleigenda,
ferðaskrifstofa og annarra
þeirra, sem áhuga og hagsmuni
hafa af ferðamálum.
Fundur jsessi var haldinn til
að ræða þann sérstaka 1500
króna skatt sem nú er fyrir-
hugað að leggja á þá sem ferð-
ast til útlanda. Urðu miklar
umræður um þetta og gengu
þær allar í þá átt, að mótmaela
skattinum, hann væri skerðing
á persónufrelsi íslenzkra ríkis-
borgara og miðaði að því að
gera þá ríku rikari og fátæku
fátækari, þar sem menn í verzl
unarerindum gætu sett skatt-
inn á ferðakostnað sinn og
starfsmenn ríkisins í ferðum
erlendis látið stofnanir sínar
greiða hann. Þetta kæmi þann-
ig aðeins niður á hinum al-
mennu ferðamönnum, fólki
með meðaltekjum.
Var að lokum samþykkt til-
laga þar sem skorað var á Al-
þingi og ríkisstjórn að falla frá
því að leggja skattinn á og
voru þrír fulltrúar kjörnir til
að koma máli þessu fram, einn
frá Félagi ferðaskrifstofa, einn
frá Flugfélaginu og sá þriðji
frá Eimskip.
Vegatollurmn kemur til frumkvæmda á morgun
Samgöngumálaráðuneytlð hefur
gefið út fréttatllkynningu í sam-
bandi vlð opnun hinnar nýju Reykja
nesbrautar á morgun, og fer tllkynn
Ingln hér á eftír:
Framkvæmdir við lagningu hinn-
ar nýju Reykjanesbrautar hófust
22. október 1960.
Nú er lagningu vegarins lokið, að
undanskildum stuttum kafla við Set
bergslæk ofan við Hafnarfjörð, og
er nú ákveðið að opna hinn nýja
veg til almennrar umferðar n.k.
þriðjudag 26. þ.m., kl. 10.00 f.h.
Kostnaðarverð Reykjanesbrautar
allrar, að meðtöldwm þeim kafla,
sem frestað hefur verið við Set-
bergslæk, mun verða nær 270 millj.
króna. Yfir 90% kostnaðarins er
greitt með lánsfé.
Steinsteypa 'er endingarbetri en mal
bik, en miklum mun dýrari. Þann-
ig kostar hver kílómetri með stein
steyptu slitlagi á Reykjanesbraut
meira en tvöfalt samanborið við
malbikað slillag.
Þegar lagning vegarins hófst,
var að því horfið að hafa slitlag
hans úr steinsteypu. Sú ákvörðun
var m.a. á því byggð, að hagkvæmt
væri að nýta umframframleiðslu
Sementsverksmiðju rikisins og
spara jafnframt erlendan gjaldeyri
með notkun innlendra hráefna.
Þegar taka skyldi ákvörðun um
gerð slitlags á kaflanum frá Kúa-
gerði til Keflavíkur, snemma á
þessu ári, voru aðstæður verulega
breyttar vegna bættrar tækni við
malbikun, os? kom bá sterklega til
álita að velja malbik, enda þótti ó-
hætt að treysta, að miðað við dag
legt umferðarmagn á Reykjanes-
braut væri slíkt slitlag fiillnægj-
andi og einnig sýndu ha^- r at-
huganir, að arðsemi dýrar :osts-
ins þ.e. steinstevpts slitlags, var
langt undir því marki, sem rétt þyk
íir að setja um slíkar framkvæmdir.
Er á átti að herða, var það sótt
mjög fast af hálfu íbúa byggðar-
laganna á Suðumesjum ,að steypt
| slitlag yrði einnig á þessum hluta
vegarins, enda þótt þeim væri gert
Ijóst, að ef dýrari kosturinn
yrði tekinn, hlyti því að fylgja,
að umferðargjald, sem ákveðið var
að taka, yrði að vera mun hærra
en ella.
Aðalforsenda ákvörðunarinnar um
að nota hina almennu heimild 95.
gr. vegalaga, sem samþykkt var
einróma á Alþingi, og taka umferð-
argjald á Revkjanesbraut, er sú, að
eins og áður er sagt, hefur fjár til
framkvæmdanna að langmestu leyti
verið aflað með lánsfé og verður
því greiðslubyrði af lánum vegna
Frh. á bls. 6.
Kjarvalssýning
Menntaskólanema
framlengd
Kjarvalssýning menntaskólanema
hefur gengið ljómandi vel og hafa
á þriðja þúsund manns séð sýn-
inguna sem haldin er í nýju við-
byggingu menntaskólans í Reykja
vík. Áttl sýnlngunnl að ljúka í gær
kvöldi en ákveðlð hefur verið að
framlengja hana til klukkan 23 í
kvöld.