Bókasafnið - 01.04.1997, Blaðsíða 48
Margrét I. Ásgeirsdóttir
Bókasöfn í villta vestrinu
Stundum virðist veröldin tilbreytingalaus. 1 byrjun árs 1996
fannst mér óskaplega langt síðan að ég hafði gert nokkuð spenn-
andi og óvænt sem er náttúrulega algjör vitleysa. Hver dagur er
spennandi því aldrei er að vita hvað á daginn drífur. Barst mér
þá til eyrna að Rotary-umdæmið á íslandi sendi nokkra
einstaklinga til útlanda í svokölluð starfshópaskipti eða Group
Study Exchange Programme fjórða hvert ár. Ég brá skjótt við og
sótti um og átti ekki í erfiðleikum með að færa rök fyrir því að
bókasafnsfræðingur ætti svo sannarlega erindi í ferðina og ekki
yrði nokkurt vandamál að ftnna bókasöfn, skjalasöfn eða aðrar
safnategundir fyrir mig til að skoða og kynna mér, því hvað er
útbreiddara um allan heim
en söfn í einhverju formi.
Ég fékk jákvætt svar og í
maí 1996 var haldið af
stað í GSE ferð eða starfs-
hópaskiptaferð á vegum
Rotary umdæmisins á
Islandi til Rotary um-
dæmis í Bandaríkjunum
sem nær yfir hluta
Colorado fylkis, Nebraska
og Wyoming.
Starfshópaskipti eru
fyrir fólk á aldrinum 25-
35 ára sem hefur lokið
starfsmenntun og starfað í
það minnsta í tvö ár í
faginu og hyggst starfa
þar áfram. Tvær konur og
tveir karlar ásamt farar-
stjóra voru valin til ferð-
arinnar, öll úrmismunandi starfsgreinum (einn markaðsfræðing-
ur, annar blaðamaður, kennari og rithöfundur, þriðji rafmagns-
tæknifræðingur og svo ég bókasafnsfræðingur). í ferðinni
kynntum við land og þjóð ásamt því að vera fulltrúar okkar
starfstétta. Við vorum mánuð á ferðalagi og dvöldumst yfirleitt
þrjá daga á hverjum stað. Einn af þessum dögum var alltaf
skipulagður sem starfsdagur en þá vorum við send hvert fyrir sig
í fyrirtæki og stofnanir á okkar starfssviði. Eitt af skilyrðunum
við þessa ferð er að þegar heim er komið séum við í aðstöðu til
að deila reynslu okkar með öðrum og skal það nú gert.
Það sem ég og þeir sem tóku á móti mér þarna úti vorum
sammála um var að ef einhver er í ókunnum bæ og hefur
heimþrá þá er besta ráðið að heimsækja almenningsbókasafnið í
bænum því þá líður manni strax eins og heima hjá sér svo lik eru
þau um allan heim.
Almenningsbókasöfn er að finna í hverjum bæ og þess vegna
heimsótti ég þá tegund safna oftast en fór þó einnig í heimsóknir
í skólasöfn, skjalasöfn og á gagnasafn á bæjarblaði einu.
Tölvumál
Þar sem umræðan um tölvur og fyrirkomulag þeirra mála vill
oft verða efst á baugi í umræðum um bókasöfn er best að byrja
á þeim málaflokki hér.
1 Wyoming búa um 450 þús manns og er fylkið helmingi
stærra en ísland. Þar hefur verið komið á sameiginlegum gagna-
grunni bókasafna í fylkinu sem nefnist WYLD (Wyoming
Libraries Database) og inniheldur 1) WYLD CAT (Wyomings
Online Public Access computer), rafrænan gagnagrunn um allt
það efni sem er að finna á almenningsbókasöfnum í Wyoming;
2) CARL, gagnagrunn sem bókasöfn háskólanna í Wyoming
geta tengst beint; 3) ERIC, (Educational Resources Information
Clearinghouse) og 4) EXPANDED ACADEMIC INDEX, en
þar er að finna útdrætti úr greinum úr 1500 tímaritum og heilar
greinar úr 500 tímaritum. Til þess að koma til móts við íbúana í
fylkinu sem er mjög strjálbýlt hefur WILL (Wyoming Informa-
tion and Library Link)
verið sett upp. WILL er
samvinnuverkefni og veitir
almenningi heima í stofu, á
skrifstofunni eða í skólan-
um aðgang að rafrænum
upplýsingum ríkisins sem
varða almenning (Ferret)
og aðgang að rafræna
bókasafns- og upplýsinga-
grunninum WYLD. Á öll-
um bókasöfnum liggja
frammi bæklingar þar sem
útskýrt er hvernig hægt er
að nálgast tölvutækar upp-
lýsingar í Wyoming.
I Nebraska og í Colo-
rado er hægt að leita í
gagnagrunnum bókasafna
með beintengingu, í gegn-
um Internetið eða á bóka-
safninu sjálfu. Hvert bókasafn getur einnig leitað í gagnagrunn-
um annarra almenningsbókasafna. Ekki þarf að vera skráður
lánþegi til að leita í gagnagrunnum safnanna.
Á hverju almenningssafni eru nokkrar tölvur ætlaðar notend-
um. Á aðalsafninu í Greeley í Colorado eru sérstakar tölvur sem
ætlaðar eru til leita á geisladiskum. Geisladrifin sem eru með
plássi fyrir nokkra diska í einu eru læst svo ekki sé hægt að
skipta um diska eða stela þeim (t.d. ættfræði Mormóna og
símaskrár). Útprentun kostar alls staðar einhverjar krónur.
í bæklingi almenningsbókasafnsins í Scottsbluff í Nebraska er
kynnt hvaða upplýsingar er hægt að fá af margmiðlunardiskum
í safninu (allt frá alfræði fyrir yngstu börnin til upplýsinga fyrir
atvinnulífið). Sá hluti bókasafnsins er nefndur Electronic
Reference Center. í beinni þýðingu er það rafræn upplýsinga-
miðstöð sem er einmitt orðið sem notað er í tengslum við al-
menningsbókasöfn framtíðarinnar á Islandi í bók Menntamála-
ráðuneytisins í krafti upplýsinga sem kom út í mars 1996.
Ekki er óalgengt að notendur hafi hálfgerða “fóbíu” fyrir
tölvum og neiti alveg að læra að leita í þeim. Þá er ekki aðeins
um að ræða fólk sem komið er yfir miðjan aldur heldur einnig
yngra fólk. Starfsfólk reynir alltaf að vera innan handar með að
kenna notcndum á tölvurnar og aðstoða þá sem þjásl af tölvu-
fælni á ýmsan hátt.
I barnadeildum eru tölvur fyrir yngstu lánþegana. Þær eru
Greinarhöfundur ásamt hókaverði við einn
af bókabílum þeirra í Vesturheimi
48 BÓKASAFNIÐ 21. ÁRG. 1997