Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1921, Blaðsíða 23
Kaflar úr fornsögu Austurlanda
23
Kr. Sargon hefur brotist til valda í einhverju smáríki í
Norbur-Babylóníu og hefur svo með herkænsku lagt undir
sig hvert landiö af öðru, uns hann varö einn af liinum
voldugustu konungum, er sögur fara af. Sargon fyrsti
lagði undir sig alla Mesopótamíu, Sýrland og nokkuö af
Litluasíu, ennfremur Fönikíu og Palæstínu, á strandlengj-
unni við Miðjarðarhafið vann hann 32 borgir. Verslunar-
borgir þessar, sem löngu síðar voru kendar við Fönikíu-
menn, hafa þá þegar verið í blóma og átt mikinn versl-
unarflota, sem gengið hefur um Miðjarðarhafið, því þar
feklc Sargon sjer skip, fór herferð um »Vesturhafið« og
var á þeim leiðangri í þrjú ár; hvert hann hefur farið og
hvaða lönd hann hefur unnið, vita menn ekki, en hann
flutti þaöan fjölda af hernumdu fólki. Sargon hefur ef
til vill herjað á Krít og aðrar grískar eyjar, og líklega
gert strandhögg á Grikklandi og ef til vill í Norðurafríku,
en allmikið hlýtur hann að hafa byltst í völdum, úr því
hann var svo lengi í herferðinni, og ef til vill hefur hann
stofnað nýlendur. Sfðar lagði Sargon undir sig Elam og
nokkurn hluta af Persíu og Armeníu og ennfremur Ara-
bíu að sagt er; hefur Babylónarríki hvorki fyrr nje síðar
náð yfir svo mikið svæði.
Pessar herferðir Sargons hljóta að hafa unnið mjög
að útbreiðslu babylónskrar menningar og trúbragða, því
hvorutveggja var samfara og allar herferðir jafnan gerðar
í nafni einhvers guðs eða einhverra trúbragða. Sonur
Sargon’s Naram-Sin virðist líka hafa verið mikill herkon-
ungur, en eftir dauða hans mun hið mikla ríki hafa dott-
ið í mola og oröið nábúunum að bráð. Löngu síðar
hugsuðu Babylónarmenn og Assyríumenn sjer þetta
glæsilega tímabil sem nokkurskonar gullaldar- og para-
dísartíma í forneskju, en Sargon fyrsti var í endurminn-
ingunni nokkurskonar Karlamagnús, sem jafnan var vitnað
til, þegar einhvers var getið, sem var voldugt og glæsi-