Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1921, Blaðsíða 103
Mannfjelagssiðferði
*o3
við hag fyrri kynslóða. Hann gengur heim til sín eftir
upplýstum og steinlögðum vegi; hann þarf eigi að ganga
vopnaður, af því að lögregluþjónar gæta hans; hann þarf
eigi að sækja eldivið daglega út í skóg og vatn út í læk,
því að vatn, ljós og hiti er leitt inn í hús hans, og jafn-
framt er alt skolp leitt á þrifalegan hátt í burtu frá heim-
ili hans. Ef hann verður sjúkur, er hann fluttur í besta
íbúðarhús í uppbúið ágætt rúm og iær bestu læknishjálp
og hjúkrun. Ef uppskeran bregst, er engin hætta á því
að hann verði að deyja úr hungri, því að fæða er þá
flutt að úr öllum áttum á járnbrautum og eimskipum. Og
til þess að hressa sig líkamlega, þarf hann eigi annað en
að senda barnið sitt til kryddsalans á götuhorninu og fa
hjá honum tóbak, áfengi, nýlenduvörur og annað góð
gæti, sem forfeðurnir höfðu eigi minstu hugmynd um.
Og til andlegrar hressingar skýra blöðin honum dag-
lega frá tíðindum víðsvegar á jörðunni, frá þjóðum og
hag manna og ástæðum, en alt slíkt var lokuð bók fyrir
forfeðrum vorum fyr á tíðum. Aðrir menn taka að sjer
að kenna börnum hans, fæða hina öldruðu foreldra hans,
konu hans, ef hún verður veik, og börn o. s. frv.
Og hvernig hefur hann komist svona langtf Hvernig
hafa undanfarandi kynslóðir getað hafið hann á þetta
háa efnalega og andlega stig, og það þótt íbúar landsins
sjeu nú miklu fleiri en áður? Hvernig hefðu t. a. m.
landsmenn getað bygt járnbrautir og gufuskip, — að
vera án þeirra mundi nú valda hungurdauða miljóna
manna í Európu, — hvernig hefðu landsmenn getað
bygt vatns-, gas-, rafmagnsleiðslu, lokræsi, sjúkrahús,
skóla, háskóla og margt annað, ef kynslóð eftir kynslóð
hefði eigi unnið og safnað saman höfuðstól.
Núverandi kynslóð litir á vinnu þessari og höfuðstól.
Höfum vjer þá leyfi til þess að eyða á vorum dögum
þeim höfuðstól, sem vjer höfum tekið á móti, og til end-