Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1982, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1982, Blaðsíða 9
MEINLOKURNAR í KFJtFIM Dagurinn er farinn aö styttast, en sumargleöi flestra landsmanna er enn framundan. Þúsundir trimma á trimmdegi. Þúsundir sitja kvöld eftir kvöld límdir viö sjónvarpstækin °8 fylgjast meö heimsmeistara- keppninni í knattspymu. Hörmulegt er, að viö skulum nú hafa tæknina en fá ekki aö njóta þess aö sjá leikina beint. Okkur finnst viö enn vera utanveltu, þótt Bjami Fel gæti þess í lýsingunum aö láta ekki í þaö skína, hvemig leikirnir fari. Það vita flest- allir fyrirfram. Jafnhörmulegt er, að sjónvarpiö fari í frí, þegar hæst stendur. Hér vantar á, aö videotækni á vegum einstaklinga megni aö veita þá þjónustu aö sýna okkur einfald- lega þessa leiki, úr því ríkis- sjónvarpiö bregzt á því sviöi sem víðar. Má semja um kaup/ækkun? Ymislegt gengur á í þjóöfélaginu, meöan landsmenn reyna aö njóta sumarsins. Talsveröur hópur manna situr flesta daga og margar nætur í hinu alræmda karphúsi og reynir (væntanlega) aö semja um kaup og kjör í landinu. Fulltrúar launþega- hafa teygt sig langt og eiga nokkurn heiöur skilinn. Þeir hafa boöizt til aö semja um fremur litlar kaup- hækkanir og jafnframt 2,5% skerð- ingu á vísitölu 1. september næst- komandi. Þetta gera þeir, vegna þess hve illa horfir í efnahagsmál- um. Slíkt tillit til aöstæöna er einstakt í kjarasamningum. Vinnuveitendur hafa því miöur gengið of langt í sínu síöasta tilboöi. Þaö virðist fela í sér verri samninga en launþegar hafa í dag. Til hvers ætti aö semja um kauplækkun? Upphlaup síðustu daga má þó ekki skyggja á þá staðreynd, aö samningarnir hafa komizt í frekar farsælan farveg. Menn hafa skiliö, aö þjóðarkakan stækkar ekki í ár. Því veröur ekkert meira en áöur til skiptanna. Kauphækkun þarf því aö vera lítil, ef einhver, því aö ella fer hún eingöngu til að auka verðbólgu og veröur aö engu. Launþega- foringjarnir munu vilja semja um, hver vísitöluskerðingin veröi, vænt- anlega meö einhverri baktryggingu frá ríkisstjórn um, aö lengra veröi ekki gengið í skeröingu. En í raun veröur þaö sem fyrr undir ríkisstjórn og Alþingi komið, hvort og hve miklar vísitölu- skeröingar veröa á næstunni. Ein meinlokan í þjóöfélaginu er, aö kjarasamningar aöila vinnu- markaöarins eru oft núll og nix, þeg- ar á reynir. Ríkisstjómir allra flokka ganga hvað eftir annaö á samning- ana og skeröa veröbætur aö vild sinni. Samningar þar um eru mest ónýt pappírsgögn. Samt eru menn aö semja, strita viö þaö og stofna inn á milli til verkfalla, sem skerða framleiösluna og gera kjarabætur ómögulegri. Abyrgðar/eysi Ríkisvaldiö hefur tekiö sér alltof stóran hlut í kjarasamningum. Eölilegast væri, að aöilar bæru sjálfir ábyrgö á þeim, vinnuveit- endur yröu aö greiöa þaö, sem þeir semdu um. Væri svo, heföu fengizt samningar, sem meira vit væri í og byggðust á raunverulegri stööu. Því er ekki aö heilsa. Hlutur ríkis- valdsins hefur einkum veriö sá aö taka aö sér að tryggja, aö of háum kjarasamningum veröi jafnóðum velt út í verölagiö. Ríkisvaldið hefur beinlínis staðið aö því að kynda undir veröbólgunni. Þótt kastazt hafi í kekki, þegar þetta er skrifað, veröur því ekki trúað, aö menn hefji nú skrípaleikinn meö verkföllum og verkbönnum, í staö þess aö nýta þá merkilega hag- stæöu stööu, sem upp var komin, þegar upp úr slitnaði. Alþýðusambandsforingjarnir hafa reynt aö bæta fyrir illt framferöi byggingamanna meö þvi aö taka aftur meö vísitöluskeröingu þaö, sem byggingamenn sömdu viö sjálfa sig og fór fram úr hóflegum kauphækkunum. Vafalaust ættu þeir þess nú kost að skjóta sér bak viö opinbera starfsmenn og sjá, hvort þeir keyri fram kauphækkanir eitthvaö í ætt viö hækkanir hjá hjúkrunarfræöingum. Þá væri illa fariö. Forysta ASl ætti aö standa viö þaö frumkvæði, sem hún hefur Laugardags- pistill Haukur Helgason skapaö, en þá veröa vinnuveitendur einnig aö sýna hófsemi. Á bak ríkisstjórninni Utgeröin stríðir viö vanda. Fiski- skipin eru of mörg, sem sækja í tak- markaöa auölind. Þorskafli hefur minnkaö frá fyrra ári. Loönuveiðar hafa stöövazt. Því spáir Þjóöhags- stofnun 12—20% minnkun á fram- leiðslu sjávarafuröa. Afli hefur síðustu daga glæðzt. Vera má, aö viö sleppum aö einhverju leyti meö skrekkinn. En mikiö má vera, ef stjómmálamennimir reynast svo forstokkaöir, aö þeir viti nú ekki upp á sig skömmina. Sumir landsfeöur lofsyngja „fyrirgreiöslupólitíkina”. En hún er einn mesti bölvaldurinn í okkar kerfi. Menn hafa fagnað nýjum skipum í hinum ýmsu plássum. Nú ætti þó aö skiljast, hverjar afleiöing- ar þess era, aö fiskveiðiflotinn er orðinn of stór. Þriöjungurinn af tapi togara nú er rakinn til þess. Einnig er ástæða til aö óttast, aö þorskurinn hafi verið ofveiddur. Stjómmála- mennimir hafa ekki vit fyrir öðrum heldur hefur rekið undan þrýstingi hagsmunaaðila. Vald kommissara í þessum efnum er enn ein meinlokan í kerfinu okkar. Og hvað gerist? Auövitaö koma hinir sömu útgeröarmenn og fengiö hafa „fyrirgreiöslu”, lán og styrki, af almannafé til aö fá skipin „á bakiö á ríkisstjórninni” og vilja, aö hún bæti þeim þaö, sem nú vantar. Þeir hafa knúiö á um, aö skipin yröu of mörg. Þeir hafa sótt um aö veiða eins mikiö og veitt hefur verið, hvað sem fiskifræöingar hafa sagt. Og aö sjálfsögöu er þaö rökrétt framhald þeirrar hugsunar, að almenningur taki nú á sig nýja skattlagningu til langframa til aö greiöa tapið, sem stafar af framangreindri vitleysu. Menn tala ekki um eigin ábyrgð. Ríkið á að borga, þaö er al- menningur. Hiö sama gildir um landbúnaö. Þar hafa menn um langt árabil vanizt því, aö almenningur í landinu greiði af sköttum sínum fyrir út- flutningsuppbætur og niöurgreiöslur til aö halda í horfinu í of- framleiðslugrein. Meinlokurnar eru ríkjandi í þessu kerfi. En erfitt er aö kenna gömlum hundi aö sitja. Sennilega verður allra erfiðast aö koma vitinu fyrir stjórn- málamennina. Svo samdauna hafa þeir oröiö þessu meinlokukerfi. Mikill er Allah Meðan þessu vindur fram, horfum viö á knattspymu okkur til gamans og hressingar. Við fáum brauð og leiki, sem rétt er, og gleymum bannsettri vitleysunni í stjórnmála- mönnum okkar á meöan. Viö getum veðjað hvort viö annaö um, hvor sé betri, hinn argentínski Maradona eða Zicho frá Brasflíu. Sárt er aö fá þessar þjóöir í sama riðil, þannig að úrslitakeppnin kann aö verða svipur hjá sjón samanboriö við þann fyrirgang, sem hlýtur aö veröa, þegar þær etja kappi. Unun er aö horfa á leikni þessara tveggjaþjóöa Rómönsku Ameríku. Einnig er gaman aö sjá, hvemig knattspyrnumenn frá Kamerún og Alsír og jafnvel Kuwait geta náö árangri gegn hinum „heföbundnari” knattspymuþjóðum. Alsírbúar hafa að minnsta kosti sannaö, meö heitum bænum sínum á vellinum, aö Allah, guð þeirra, er í raun mikill. En viö verðum að sjá til þess, aö þaö gerist ekki oftar á Islandi, aö landsmenn séu afskiptir, meöan aðrar þjóðir hafa getað fylgzt beint meö ólympíuleikum og heims- meistarakeppni í knattspyrnu. Sama gildir raunar um söngva- keppni Evrópu. Islendingar ieiga nú söngvara á mælikvarða annarra þjóða. Viö eigum aö vera meö og horfa á í beinni útsendingu. Haukur Helgason. DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR 26. JUNI1982.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.