Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Blaðsíða 20
20 DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NOVEMBER1982. DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NOVEMBER1982. ROSA OG ÁSTA TIL SVÍÞJÓDAR — til að kynna sér aðstæður hjá knattspyrnuliðinu Oxaböck Tvær bestu knattspyrnustúlkur Breiöabliks og íslenska landsliðs- ins — þær Rósa Valdimarsdóttir og Ásta B. Gunnlaugsdóttir, eru á förum til Svíþjóðar, þar sem þær munu dveljast um viku tima hjá sænska liðinu Oxaböck frá Boras, sem hefur boðið þeim að koma og kynna sér aðstæður hjá f élaginu. F.ins og DV hefur sagt frá hafa félög frá Noregi og Bandaríkj- unum einnig áhuga að fá Rósu tB liðs við sig. Þær stöllur fara tfl Sví- þjóðar á mánudaginn kemur. -SOS. Mile eða Kissing til KA? Rósa Valdimarsdóttir KA frá Akureyri hefur enn ekki ráöið þjálfara, en þeir hafa haft samband við Mile, sem hefur þjálfað Njarðvikinga undanfarin tvö ár og þá hafa þeir einnig rstt við Fritz Kissing, sem hefur þjálfað Breiðablik sl. tvö ár. -SOS. Stúlkurnar stóðu sig vel á Spáni þar sem þær höfnuðu í öðru sæti. Lögðu V-Þýskaland og Italíu að velli íslenska kvennalandsliðið í hand- knattleik stóð sig með miklum sóma i fjögurra landa handknattleiksmóti, sem haldið var í Granada á Spáni um helgina. Höfnuðu þar i öðru sæti eftir hörku úrslitaleik við Spán. Illa hefur gengið aö fá upplýsingar um mótið eða úrslit í leikjunum. Ekkert var vitað um síma eða annað hjá stúlkunum því þær gleymdu að skilja slíkar upplýsingar eftir heima og skrifstofa Handknattleikssam- bandsins eða forráöamenn HSI vissu ekkert um úrslit eða annað. Okkur tókst þó að grafa það upp að íslensku stúlkumar hefðu sigrað landslið Italiu og Vestur-Þýskalands nokkuð örugglega en síöan tapað fyrir spánska liðinu í siðasta leiknum. Þar mun þeim hafa nægt jafntefli til að Sigra í mótinu þvi þær spönsku sigruðu ítölsku dömumar en gerðu síðan jafn- tefli við þær vestur-þýsku. Ekki vitum við hvemig lokatölumar urðu í einstaka leikjum, en vitum þó að Guðriður Guðjónsdóttir varð marka- hæst í keppninni ásamt spánskri senjó- rítu — þær skomðu báðar 18 mörk. -klp- Sverrir bestur hjá Fram Sverrír Einarsson, miðvörður Fram í knattspyrnu, var um helgina útnefnd- ur Knattspymumaður ársins 1982 hjá Fram. Sverrir var jafnbesti leikmaður Fram sl. sumar. -SOS Firmakeppni Víkings í innanhússknattspyrnu verður í íþróttahúsi Keflavíkur laugardaginn 20. og sunnudag- inn 21. nóvember næstkomandi. Þátttaka tilkynnist Sigurði í síma 1088 milli kl. 13 og 21 til fimmtudagskvölds. Knattspyrnumaður óskast Norskt knattspymufélag á vesturströnd Noregs óskar eftir mönnum sem vilja spila með áhugamannaliði í Noregi. Liðið er í f jórðu deild og hefur metnað til að standa sig vel. Réttur leikmaður fær húsnæöi, fasta vinnu auk hæfilegs bónuss fyrir frammistöðuna á vellinum. Gjörið svo vel að hafa samband við: EGERSUNDS IDRETTSKLUBB FOTBALLAVDELINGEN V/JAN INGE SKÁT0Y HYVINGEVEIEN 6 4370 EGERSUND NORWAY Viðar Þorkelsson átti frábæran leik fyrir Fram gegn KR í gærkvöldi en það dugði ekki tfl. Viðar sést hér skora tvö af 30 stigum sinum í leiknum. DV-mynd Friðþjófur. 205 stig skorað er KR vann Fram — Frábær leikur Jóns og „Stu” Johnson er KR lagði Fram 104-101 Guðrfður Guðjónsdóttlr deildi markadrottningarnafnbótinni með spánskri stúlku á handknattleiks- mótinu á Spáni. „Við verðum að gera betur en þetta ef við ætlum okkur að vera með í topp- baráttunni i vetur,” sagði Birgir Örn Birgis, liðsstjóri hjá Fram, eftir að KR hafði sigrað Fram í úrvalsdeildinni i körfuknattleik í gærkvöldi með 104 stigum gegn 101 — staðan i leikhléi var 49—44Framívil. „Sóknin hjá okkur var mjög góð en vömin aftur á móti mjög léleg og það I I I I I I Reynolds áfram með nýliða Þórs i i i i i i i i i i & — Það eru miklar líkur á því að Douglas Reynolds verði áfram hjá okkur, sagði Guðmundur Signr- bjömsson, formaður Knattspymu- deildar Þórs—nýliðanna í 1. deildar- keppninni. Guðmundur sagði að Reynolds kæmi til Akureyrar þriðjn- daginn 23. nóvember til viðræðna og yrði þá gengið frá málunum. — Allir þeir leikmenn sem lékn með okknr sl. keppnistímabil verða áfram með í 1. deildarslagnum og það gæti vel farið svo að við fengjum liðstyrk, sagði Guðmundur. -SOS. Douglas Reynolds. gerði útslagiö h já okkur,” sagði Birgir. Leikurinn var mjög vel leikinn hjá báðum liðum og mikil spenna rík jandi í lokin. Þegar ein og hálf minúta var til leiksloka var staöan 96—96 en þá skoraði Stewart Johnson úr tveimur vítaskotum fyrir KR. Símon jafnaði en Kristján Rafnsson skoraði úr tveimur vítum fyrir KR og staðan 100—98 KR í vil. Val Brazy fékk síöan tækifæri til að jafna metin fyrir Fram úr tveimur vitaskotum en hitti aðeins úr öðru og staöan því 100—99. Stewart Johnson skoraði síðan með glæsilegu langskoti 102—99 en þegar 41 sek. var til leiks- loka skoraði Brazy fyrir Fram og minnkaði muninn í eitt stig 102—101. Allt var nú á suðupunkti og það var Jón Sigurðsson sem innsiglaði sigur KR er hann skoraöi stórkostlega körfu 9 sek. fýrir leikslok. Lokatölur urðu því 105— lOlfyrirKR. Eins og á lokamínútunum var leikur- inn mjög jafn allan timann ef frá er skilinn kafli sem Framarar tóku um miðjan síöari hálfleik er þeir skoruðu 10 stig í röð og breyttu stöðunni úr 75— 75 í 88—78. En KR-ingar gáfust ekki upp og í lokin, sem í öllum leiknum, sýndi allt KR-liðið mikinn baráttu- anda. Stewart Johnson átti nú einn sinn besta leik lengi fyrir KR. Ekki nóg meö að hann skoraði 39 stig heldur tók hann sig á í vöminni og hirti mikið af frá- köstum. Jón Sigurðsson fann sig vel í þessum leik og var hreint frábær. Hitti mjög vel eins og raunar allir leikmenn í báðum liðunum. Jón skoraði 29 stig og þar af 21 í síðari hálfleik en þá var hann óstöövandi. Markmaöur þeirra KR-inga í knatt- spyrnu, Stefán Jóhannsson, komst mjög vel frá leiknum. ,3g er nokkuð ánægður með minn hlut. Við börðumst allir mjög vel. Það var alveg endalaus baráttuvilji í KR-liðinu í kvöld. Ef við höldum svona áfram þá verðum við í toppbaráttunni,” sagði Stefán eftir leikinn. Hann skoraði 13 stig fyrir KR í gærkvöldi. Viðar Þorkelsson var maður þessa leiks hjá Fram og skoraði 30 stig, þar af 19 í fyrri hálfleik. Val Brazy var einnig mjög góöur í þessum leik, eins og venjulega liggur manni við að segja, og skoraöi 34 stig. Símon skoraði 17 stig, Jóhannes Magnússon 14 og lék hann mjög veL Leikinn dæmdu þeir Kristinn , Albertsson og Gunnar Valgeirsson. 1 -SK. Thompsonbestur íBretlandi Tugþrautarkappinn Daley Thompson var i gær útnefndur íþróttamaður ársins 1982 í Bretlandi. Thompson setti tvö heimsmet í tugþraut á árinu. „Erfitt að eiga við Lárus” — segir Hollendingurínn Spelbos Frá Kristjáni Bemburg—fréttamanni DVíBelgíu: — Láms Guðmundsson fékk mjög góða dóma hér í blöðum eftir leflc Water- schei gegn FC Brugge. Hollendingur- inn Ronald Spelbos, sem fékk það hlnt- verk að hafa gætur á Lárusi, sagði að það hefði verið mjög erfitt að gæta ts- lendingsins. — Hann er mjög hreyfan- legur leikmaður og staðsetur sig mjög vel. íslendingurinn var erfiðari heldur en Eddy Voordeckers, sagði Spelbos. Ragnar Margeirsson lék sinn fyrsta leik með CS Brugge — kom inn á þegar 8 min vom til leiksloka, þegar CS Bragge vann Waregem, 2—1. Þess má geta að Lárus Guðmunds- son var valinn í lið vikunnar í Belghi í sl. viku og er það í annað sinn sem hanner í liði vikunnar. Amór Guðjohn- sen hefur einnig verið tvisvar sinnum í liði vikunnar. -KB/-SOS Urklippan hér fyrir ofan, sýnir lið vikunnar í Belgíu. 1 r . i Láras Guðmundsson i Landsliðið mætir V-Þjóðverjum og Frökkum ; ” ;> ' í , i . • K «•>,' Z? Hilmar hefur fengið upp- lýsingar um Andrés — frá þjálfara GUIF frá Eskilstuna Þorbergur Aðalsteinsson—langskytta úr Vikingi. — Ég hef spurst fyrir um Andrés Kristjánsson, sem leik- ur með GUIF, og rætt við þjálf- ara hans. Andrés kernur heim um jólin og mun ég þá sjá hann leika, sagði Hilmar Bjömsson landsliðsþjálfari. Eins og DV hefur sagt frá hefur Andrés ieikið mjög vel að undanfömu með GUIF og skor- að 30 mörk af línunni í sjö leikj- um liðsins í „AUsvenskan”. Hilmar sagði að það væri slæmt að Andrés hefði ekki leikið hér heima tvö sL ár og því lítið sést til hans.— Andrés er svipuð „týpa” og aðrir línu- menn landsliðsins. Okkur vant- ar nú illilega línumenn sem geta blokkerað fyrir skyttunum okkar, sagði Hilmar. -sos ..Við eram að æfa nviar leikaðferðir” — sem ganga út á það að opna leiðina fyrir skotmönnunum, sagði Þorbergur Aðalsteinsson, fyrirliði landsliðsins í handknattleik — Hilmar Bjömsson hefur verið að láta okkur æfa upp ýmsar nýjar leikaðferðir og þá sérstaklega leikaðferðir sem opna leiðina fyrir langskyttum- ar, sagði Þorbergur Aðalsteins- son, fyrirliði íslenska landsliðs- ins. Liðið er byrjað að æfa af fuilum krafti og búa sig undir HM í Hollandi. Þorbergur sagði Lokeren að leita að nýjum miðherja Frá Kristjáni Bemburg, fréttaritara DVíBelgin: — Danski landsUðsmaðurinn Preb- en Elkjær Larsen, sem leikur með Lokeren í belgísku knattspymunni hef- ur nú loks árætt að fara í skurðaðgerð vegna slæmra meiðsla sem hann hefur átt við að stríða að undanfömu. Hefur hann dregið það að fara undir hnífinn í allan vetur og ekkert hlustað á óskir forráðamanna Lokeren um að hann fari á sjúkrahús til að fá bót meina sinna. Eftir landsleik Dana og Luxemborg í siðustu viku fann Larsen það mikið til að hann var drifinn yfir til Belgíu þar sem hann var skorinn strax upp. Hann mun verða frá í einar 8 vikur og er þaö mikill skaði fyrir Lokeren þvi hann hefur verið einn besti maður Uös- ins. Lokeren er nú að leita eftir nýjum miðherja í hans stað en hver verður fyrir valinu er óráðið enn. KB/-klp- Þorgils Ottar. að þessum nýju leikaðferðum yrði þó ekki beitt í rikum mæU í landsleikjunum gegn V-Þjóð- verjum og Frökkum. — Við er- um ekki búnir að ná nægilega góðum tökum á þessum leikað- ferðum, en það verðum við bún- ir að gera fyrir HM, sagði Þor- bergur. Þorbergur sagði að áhuginn væri mikiU hjá leikmönnum landsUðsins fyrir verkefnum vetrarins. — Strákamir í lands- Uðshópnum eru ákveðnir að gera sitt besta tU að halda merki Islands hátt á lofti, sagöi Þorbergur. V-Þjóðverjar erfiöir — Leikirnir gegn V-Þjóð- verjum um næstu helgi veröa tvimælalaust mjög erfiðir, því það er aUtaf strembið að leika gegn þeim. V-Þjóðverjar em með mikiö af langskyttum, sem eru stórhættulegar. Annars leika V-Þjóðverjar rólegan handknattleik sem hentar okk- ur, sagöi Þorbergur. v » m \ Hilmar Bjömsson. „Þorgils Óttar einn sterkasti línumaður heims” — segir Hilmar Björnsson landsliðsþjálfari - „Þorgils Ottar Mathiesen er tvimælalaust einn af sterk- ustu línumönnum heimsins. Það hefur hann sýnt að undan- förau og á Norðurlandamótinu hér á dögunum var hann einn af markhæstu leikmönnum móts- ins og kom sterklega til greina að verða útnefndur besti leik- maður NM.” Þetta sagði Hilmar Bjöms- son, landsUðsþjálfari i hand- knattleik, þegar hann ræddi um islenska iandsUðið og um lands- leikina gegn V-Þjóðverjum. -SOS — Hvað með vamarleikinn hjá ykkur? — Við þurfum að ná mun betri tökum á vamarleik okk- ar. Það er alltaf mjög þýðingar- mikið að vömin sé sterk, því að ef hún er þétt fyrir þá em markverðimir góðir, sagði Þor- bergur. Of smávaxnir Hilmar Bjömsson landsliðs- þjálfari sagði aö hann væri hræddastur við varnarleikinn. Okkur vantar stóra og sterka vamarleikmenn á miðjuna. Við höfum nóg af Utlum leikmönn- um sem leika yfirleitt í hornun- um í vörn. Skyttur eins og Sig- urðúr Gunnarsson og Sigurður Sveinsson hafa ekki leikið mik- ið í vöminni með sínum félags- Uöum, sem er m jög slæmt. -SOS Og Sigurður komust ekki Bjarni Guðmundsson og Sigurður Sveinsson, landsUðs- menn í handknattleik, sem áttu upphaflega að koma til Reykja- vikur í dag komast ekki fyrr en á föstudaginn þar sem þeir þurfa að leika með Nettelstedt nú í vikunni — leik sem var frestað á sinum tíma. -SOS íþrótt íþróttir íþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.