Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Blaðsíða 37
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NOVEMBER1982. 37 DÆGRADVÖL DÆGRADVOL DÆGRADVÖL Hann var ekki i vandræðum með þennan bolta hann Ólafur Skúlason. MeðspHari hans i gegnum árin, Guðjón Eyjólfsson, er greinilega spenntur og tilbúinn að svara efþeir fá „smash "á móti sór. Þetta er hollið sem Ólafur spilar nú i. Talið frá vinstri Kristinn Guðmundsson, Jón Karlsson, Guðjón Eyjólfsson og kappinn sjólfur, Ólafur Skúlason. Að sjálfsögðu þakka menn fyrir drengilega keppni. „TÆMIR HUGANN” — Ólafur Skúlason með bakhandarsveiflu í badmintoninu „Badmintonið er bráðhressandi og einstaklega skemmtilegt,” sagði Ölaf- ur Skúlason dómprófastur er við rák- umst á hann inni í TBR-húsi. Hann var þá að spila meö félögum sínum Guð- jóni Eyjólfssyni, Jóni Karlssyni og Kristni Guðmundssyni og það var létt yfir mannskapnum, enda hressir menn. „Við spilum fyrst og fremst til að liðka okkur, enda er nauðsynlegt að hreyf a sig. Við stundum þetta hins veg- ar alls ekki sem keppnisíþrótt. Það skemmtilega við badmintonið er að það tæmir hugann af öllum áhyggjum dagsins,” sagði Olafur ennfremur. Olafur byrjaði að stunda badminton fyrir um tuttugu árum. Ymsir hafa spilað með honum í gegnum árin, menn eins og öm Qausen, Þórður Eydalogfleiri. „Við Gaui stöndum einir uppi,” sagði Ölafur og er þá að tala um vin sinn Guðjón Eyjólfsson endurskoð- anda, en þeir hafa spilað saman allan tímann. Aðspurður sagði Olafur að þeir fé- lagar spiluöu tvisvar í viku og þá eina klukkustund í senn. A sumrin værí þaö svo sundið sem heillaði. „Gaui, þú átt þennan" Á meöan samtal okkar fór fram mátti sjá menn á öllum aldri slá kúl- una. Eg spuröi því Oiaf hvort ekki væri erfitt að stunda íþróttina á efri árum? „Það er nú einmitt kosturinn við þessa íþrótt aö fólk getur spilað fram eftir aldri. Það velur sér sjálft hraðann og þaö er um að gera að ofkeyra sig ekki. Sjálfur er ég kominn á sextugsaldur- inn,” sagði Ölafur og hélt áfram aö taka á móti föstum sendingum frá þeim Jóni Karlssyni og Kristni Guðmundssyni. Um leið og við kvödd- úm heyrðist í Olafi: „Gaui, þú átt þennan.” Fjaðrafok húsmæðra — þær slá í gegn með spöðunum „Það er mjög gaman að koma hingað inneftir og spila badminton. Við öskr- um og fáum mikla útrás þegar við spil- um og það má segja að flestar okkar sleppi algjörlega fram af sér beislinu,” sagði ein húsmæðranna sem spila badminton reglulega inni í TBR húsi þegar við litum inn til þeirra fyrir stuttu. Við höfðum fengið fregnir af að álit- legur hópur fagurra fljóða væri meö fjaðrafok eftir hádegi tvisvar í viku í TBR húsinu og það væru engin vettl- ingatök þegar þær handléku spaöana. Hæfilegur keppnisandi Þær sögöu okkur að flestar kæmu með vinkonum sinum í fyrstu. Hjá þeim ríkti „hæfilegur keppnisandi” sem væri nauðsynlegur til að hafa gaman af þessu, en engin væri þó sár þótt hún tapaöi. Og ein þeirra sagði: „Við sleppum öllu ööru frekar en badminton.” Garðar Adolpsson, leiðbeinandi „stúlknanna”, sagði að sumar þeirra væru búnar aö vera í badminton í ein þrjú til fjögur ár. „Og þær eru allar mjög elskulegar og hressar,” bætti hann við. En það eru ekki bara heimavinnandi húsmæður sem sveifla spaðanum, því margar þeirra vinna hálfan daginn úti. Sumar eru kennarar, aðrar vinna á skrifstofum og í hópnum er ein flug- freyja. Og í samtali okkar við þær kvinnur kom fram að eitt sinn var flugfreyjan með það mikla sveiflu að hún gat eng- an veginn hætt aö spila. Þegar loksins var hálftimi eða svo í brottförina geystist hún af staö i baö og síðan lá leiðin beint út á flugvöll. Ekki vitum við hvað farþegamir sögðu en okkur finnst gaman að svona hressumkonum. „Af hverju ætli hún mamma öskri alltaf svona þegar hún spilar „bambin- tonið" með hinum konunum? Ég ætla að segja pabba frá þvi þegar hann kyssir mig góða nótt i kvöld." Já, krakkarnir fylgjast auðvrtað með mömmunum i spilinu. Þeir eru góðir áhorfendur. Þetta eru skvisurnar sem valda öllu fjaðrafokinu. Þegar við birtumst inni i TBR-húsi sögðum við: „Nei komið þið sælar stúlkur," og ætluðum að taka ihendurnar á þeim, en þá réttu þær bara spaðana fram. „Þœr halltu djusi yfir is. Ég fókk mér sæti við rimlana og hugleiddi málið. Þær tóku siðan við að spila. Eg só strax aðþettagat orðið erfiður dagur. Jó, það var stæll á þessum skvisum."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.