Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1983, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1983, Síða 4
DV. FÖSTUDAGUR22. JTJLI1983 4 „Það sór okki á sjónum þðtt maður göskst eitthvað áfram á honum," sagir Bogi Einarsson skipstjóri. & V-mynd: HJH. ÞAÐ HEFUR BLASIÐ ÚR ÝMSUM ÁTTUM — segir Bogi Einarsson sem verið hefur skipstjóri á þremur Esjum „Eg held aö þetta sé besti farkost- ur,” segir Bogi Einarsson, skipstjóri á nýju Esjunni. Þetta er þriðja Esjan sem hann er skipstjóri á en sú fjórða sem kringum landið siglir. Hann náði ekki þeirri elstu. „Við förum fyrst eina hringferö kringum landið, leggjum af stað á föstudagskvöld eða laugardags- morgun, en sennilega verðum við síðan á rútunni Reykjavík — Húsavík, og til baka sömu leið, meö viðkomu á ýmsum höfnum þar á milli.” Bogi segir að þaö sé góöur losunar- búnaður á nýja skipinu og mjög sterkar lyftur. Saman ná þær 8 tonnum og auk þess er á skipinu 35 tonna krani. „Þær eru alltaf að stækka þessar einingar sem fariö er fram á að við flytjum. Vinnuvélamar, sem notaðar eru til að gera vegi og hafnir, eru orðnar niöþungar. Rafalar og spennar í virkjanir eru líka stórir gripir.” , ,Eru farþegaklefar á skipinu? ” „Við getum tekið fjóra farþega, höfum tvo tveggja manna klefa. Þeir verða sjálfsagt helst notaðir á veturna, þegar vegir teppast, til að skutla fólki milli hafna. Nú orðið liggur öllum svo mikið á að enginn má vera að því að sigla. Mannfólkið er allt komið í loftið og á vegina. En þungaflutningamir em billegastir á sjónum — og þá sparast líka viðhald á vegum. ” „Þungir vörubílar fara náttúrlega illa með malarvegina okkar. ” „Já, það sér ekki á sjónum þótt eitthvað sé göslast áfram á honum.” Bogi byrjaði sem stýrimaður á varðskipunum 1942. „Það hefur verið hættulegt að sigla þá?” „Maöur hugsaði lítið um það. Náttúrlega voru tundurdufl um allan sjó en þetta vandist.” Hann var á varðskipinu Ægi þegar það flutti Svein Bjömsson, fyrsta forsetann, hringinn í kringum landiö með viðkomu á mörgum höfnum. En frá 1948 hefur hann verið á strand- feröaskipum, síðustu tuttugu árin semskipstjóri. „Þaðhefurgengiðvel?” „ Já, maður hefur verið lukkunnar pamfíll.” „Þiö hafið stundum lent í vondum veðrum á veturna, er það ekki?” , Jú, það hefur blásiö úr ýmsum áttum. En maður hefur alltaf haft vit á aö pota sér í var í verstu illviðr- unum.” „Og hvernig líkar þér á sjónum?” „Alveg prýðilega. I sambandi við flutningana er alltaf margt sem þarf að greiða úr en mér finnst það gaman og hef hingað til verið heppinn.” -ihh. NýbókfráVöku: Sigrún í fullu fjöri Bókaútgáfan Vaka hefur nú gefið út fyrstu alhliöa heilsuræktarbókina sem út kemur á íslensku. Hún nefnist „1 fullu fjöri” og hefur Sigrún Stefánsdóttir, fréttamaður og íþróttakennari, tekið hana saman. Bókin er við það miðuð að hún geti jafnt þjónað ungum sem öldnum, konum og körlum, hverjar sem óskir fólks eða sérþarfir eru í heilsurækt- inni. Af síðum bókarinnar getur fólk valið sér æfingar eftir þörfum sínum um þessar mundir, bætt síðan við öðrum æfingum, og fikrað sig þannig áfram skref fyrir skref undir leiö- sögn Sigrúnar. Æfingaþörfin breytist er aldurinn færist yfir fólk og er fyrir því séð í bókinni þannig að hún á að nýtastáreftirár. Heilsuræktarbókin I fullu f jöri er í Geir Hallsteinsson og Sigrún Stefánsdóttír i einni æfingunni. — ogallirmeð stóru broti, innbundin, með plast- mation Ltd. í Englandi en það fyrir- húöaðri kápu. I henni eru hundruö tæki hefur sérhæft sig í gerð teikninga, skýringarmynda og ljós- myndræns fræðsluefnis fyrir bókaút- mynda, lesendum til glöggvunar. gáfu, fjölmiðla og skóla. Æfingarnar Ljósmyndimar tók Jóhannes Long hafa allar hlotið viðurkenningu en teikningar eru unnar af starfs- lækna og annarra sérfræðinga á sviði mönnum Diagram Visual Infor- heilbrigðismála og heilsuræktar. næstu helgar með læknl Innanborðs. Læknir í lögreglubflnum hjá lögreglunni í Rangárvallasýslu um næstu helgar Lögreglan í Rangárvallasýslu verður með sérstakan viðbúnaö um næstu helgar til að herja á ökumenn sem reyna að fara þar um ölvaðir undirstýri. Veröur lögreglan meö nýjan sérút- búinn bíl og mun halda uppi ströngu eftirliti um alla sýslu, Þórsmerkur- svæðið, Landmannalaugar og upp í Veiðivötn. I bílnum, sem er mjög fullkominn, verður læknir sem mun taka blóðprufu af grunuðum ökumönnum ef með þarf. Þarf þá ekki lengur að aka með þá langar leiðir að næsta stað þar sem læknir er. -klp- Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Olafur Ragnar klessukeyrir í pólitíkinni Það á ekki af Þjóðviljanum að ganga í stjórnarandstöðunni. Árni Bergmann, sem vætti kverkarnar í kampavini i ameríska sendiráðinu áður en hann skrifaði skammaleiðar- ann í blað sitt um Bandarikln, þegar George Bush var hér á ferð, birtir enn elna rollu um fjármálaráðherra og hvað hann sé vafasamur maður fyrir að vUja selja ríkisfyrirtæki. Arni Bergmann samdi m.a. auglýs- ingu í blað sitt, þar sem hann lætur fjármálaráðuneytið bjóða þjóðkirkj- una tU sölu, og er þó meðritstjóri hans tengdur þjóðkirkjunni. Þannig væflast ÞjóðvUjamenn áfram i stjórnarandstöðu, án þess að finna fótum sínum forráð eftir fjórtán launaskerðingar Svavars Gestsson- ar i síðustu stjórn. Bestur er þó Ólaf- ur Ragnar Grimsson, sem um þessar mundir er á góðrl leið með að Ieggja ÖU blöð landsins undir kjaftæðl sltt. t gær skrifar hann í heimablað sitt um niðurfeUingu söluskatts af Tívolí- skemmtunlnni á Miklatúni, kaUar rikisstjórnina TivoU-stjórn og talar um klessukeyrslubrautlna lnnan nú- verandi stjórnkerfis. Ölafur Ragnar gefur athygUs verða vitnisburði um menntunarástand prófessors í stjórnmálafræðum við Háskóla tslands. Ekki eru vltnis- burðir hans minna verðir fyrir Alþýðubandalagið í Reykjavík, sem verður að sæta því að maður utan af Seltjarnarnesi heUi sér yfir fyrrver- andi ráðherra Alþýðubandalagslns með óvlðurkvæmUegum hætti. Hinn 13. mai sl. gaf þáverandi fjármála- ráðherra, Ragnar Arnalds, út reglu- gerð, sem létti söluskattsbyrði af ýmsu samkomuhaldi, sem tU skemmtunar og menningar verður taiið. Ragnar á þökk skUið fyrlr þetta frumkvæði. Þá skrUuðu for- ráðamenn sirkussins danska, sem nú sýnir hér i Reykjavík, ráðherranum bréf og óskuðu eftir niðurfeUingu á söluskatti. Ragnar Arnalds brá vel við og feUdl skattinn niður. Hið sama gerði Albert Guðmundsson, fjár- málaráðherra, þegar ósk barst um það frá leigjendum Tívolí, að sölu- skattur yrði feUdur niður tU að hægt væri að lækka aðgangseyri að sama skapl. Ekkl er kunnugt um hvort niðurfeUlng söluskatts á sirkus hefur komið fram i miðaverði. Ólafur Ragnar Grimsson er eflaust Iaglnn bUstjóri, enda eru honum ekkl aUtaf mlslagðar hendur. En árás bans á Ragnar Arnalds, fyrrverandi fjármálaráðherra, vegna söluskatts- breytinga frá 13. maí sl. er með öUu ómakleg. Ólafur er stórhættulegur allri umferð í Alþýðubandalaghm. Þar klessukeyrlr hann á hverjum degl, og mega menn á borð við Ragn- ar Arnalds þakka fyrlr að sleppa heUlr úr brakinu. Um nafngiftir má það segja, að á meðan Óiafur Ragn- ar er að leika Tarsan i Alþýðubanda- laginu og slöngvar sér i lendaskýlu einnl fata yfir höfðum kjósenda og rekur upp sin frægu óp, sem berg- mála um sirkustjaldið, hlýtur Alþýðubandalaglð að likjast melra sirkus en TivoU. Rikisstjórnin getur unað þvi eftir atvlkum. Hún hefur ekki i hyggju að laga tU á götuhorn- um innan Alþýðubandalagsins tU að Ölafur Ragnar losni við að klessu- keyra, eða auka umferðarmerkin þar í flokki. Og hún mun varla fara að breyta þeim reglum, sem þegar hafa verið settar hvað söluskattlnn snertir. Ólafur Ragnar og sirkus- flokkur hans fær þvi þær undanþág- ur sem fært er að veita. Þótt Ólafl Ragnari þykl svo þröngt um sig innan sirkusflokksins, að Hann sjái engin önnur ráð en að keyra keppinauta sina niður og láta sem Hnnn viti ekki um hin skárri verk þeirra, ber vegferð hans utan sirkusflokksins fyrst og fremst öll merkl eyðlmerkurgöngu. Hann hefur valið sér þann kostinn að gerast hrópandlnn á torgum, en þar eru hlustendur fáir og fallvaltlr. Blt er að þurfa að vera tíunda þau mistök, sem prófessor í stjómmálafræðum verða á, þegar hann kemur á vett- vang stjómmálanna og þarf að fara að tala samkvæmt kennslubókinni. Hann hefur hvað eftlr annað heitið Islendingum atómsprengju, og nú vfll hann alls ekki aðskilnað vamar- liðs og flugstöðvar á Keflavíkurflug- velli. Framundan er svonefnd Kefla- víkurganga til stuðnings atóm- sprengju-stefnunni og sambýli við vamarliðið. Meðan á þelrri göngu stendur er nokkur von tfl þess að for- ustumenn sirkusflokksins fái að vera í frlði fyrir Seltlraingl í blöðum. Svarthöfðl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.