Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1983, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1983, Blaðsíða 26
34 DV. FÖSTUDAGUR 22. JULl 1883. Andlát Guðfinna Gnðmunda Arnfinnsdóttir er látin. Hún fæddist 11. janúar 1899 aö Lambadal í Dýrafirði. Foreldrar hennar voru Amfinnur Jónsson og Ingibjörg Sigurlinnadóttir. Hún giftist Stefáni Brynjólfssyni og þeim hjónunum varð fimm bama auðið. I dag kl. 15 fer útför hennar fram frá Neskirkju. Afgreiöum stimpla með stuttum fyrirvara. Stimplagerð Félagsprentsmiðjunnar hf. Spítalastíg 10 — Simi 11640 BÍLALEIGUBILAR HÉRLENDIS OG ERLENDIS REYKJAVlK AKUREYRI BORGARNES: BLÖNDUÓS: SAUÐÁRKRÓKUR: SIGLUFJÖRÐUR: HÚSAVlK: VOPNAFJÖRÐUR: EGILSSTADIR: HÖFN HORNAFIRÐI: 91-86915/41851 96-23515/21715 93- 7618 95- 4136 95- 5223 96- 71489 9&41260/41851 97- 3145/ 3121 97- 1550 97- 8303/ 8503 interRent Katrin Bjamadóttlr, til heimilis að Meðalholti 3, lést 10. júli sl. Hún fæddist 19. desember 1908 í Stykkis- hólmi. Foreldrar hennar voru Bjami Júlíus Kristjánsson og Elísabet Hildur Gisladóttir. Eiginmaður hennar var Jónatan Finnbogason frá Bolungavík á Ströndum. Þeim varð tveggja barna auðið. Jarðarförin hefur farið fram i kyrrþey að ósk hinnar látnu. Uirica Margareta Aminoff listakona lést i Landspítalanum að morgni 14. júli sl. Hún fæddist í Viborg í Finnlandi 4. ágúst 1906. Foreldrar hennar vora Ingrid Nýberg og Brúnó Aminoff. Otförin verður gerð frá Kópavogs- kirkju í dag, 22. júlí kl. 10.30. Jóhann Guðmundsson frá Þrasastöð- um verður jarðsunginn frá Siglu- fjarðarkirkju laugardaginn 23. júli kl. 14. Útför Eðvarðs Sigurðssonar, fyrrv. formanns Verkamannafélagsins Dags- brúnar, fer fram frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Skeifunni 17, Sími 83240/41 Heildsölubirgðir ALMENNA VARAHLUTASALAN S.F. Motorcraft Laycock kúplingshlutir í flestar gerðir bíla. í gærkvöldi______ í gærkvöldi Eru rúsínur nauðsynlegar? Af því að mér líkar orðið dagskrá útvarpsins almennt vel allan daginn alla daga, nema þegar hún er leiðin- leg, þótti mér hún hitta mig illa í gær- kvöld. Eins og dagskrárstjóm útvarpsins hefði skyndilega hrapað ein fimm ár aftur í timann. Eða hef ég ef til vill ómeðvitað lært aö hlusta venjulega aöeins á þaö sem mér líkar og láta hittlöndogleið? Kvölddagskrá útvarpsins byrjaði „Við stokkinn”. Þótt ég sé alls ekki bam sem lesa þarf í svefn um átta- leytið, bæði of gamall og of ungur, greip þessi þáttur athygli mina þegar hann var fyrst á dagskrá í vor. Þá las Guöni Kolbeinsson. Síðan hef ég æfinlega gefist upp á að hlusta eins og aðrir nái ekki til min nándar nærri með líkum hætti. Sannast sagna álykta ég aö bestu barnasög- urnar séu að efni og flutningi þær sögur sem eru ekki allt of barnalegar og væmnar. Sögukaflinn í gær féll ekki aö mínum smekk. Þátturinn ,,Bé einn” í umsjá Auðar Haralds og Valdisar Oskars- dóttur fór gersamlega fram hjá skilningi mínum á þvi sem ég ímynda mér frambærilegt útvarps- efni. Leikritið var raunar ekki svo vitlaus della að ekki mætti leggja eyrun að því fram yfir upphafið. En þá er það þessi undarlegi íslenski út- varpsleikur sem líkist mest steypi- regni. Kappmælska leikenda verður að suði og loks þungum nið. Ofsahröö orðaskiptin kippa öllum stoðum undan raunveraleikanum í viðræð- um venjulegs fólks, að dómi manns sem er ekki nema i meðallagi áhrifa- gjarn og fremur raunsær í eðli sínu. Blásarakvintett Carls Nielsens var ábyggilega leikinn fyrir hlustenda- könnun útvarpsins. Þeir fáu sem hlusta á slíka tónlist á hásumrí hafa sjálfsagt slökkt og sett plötu á stereo- græjurnar sínar. Hinir hafa slökkt af eintómu áhugaleysi. Smásögunni sleppti ég til þess að hlusta á græjumar slá útvarpinu ögn lengur við. Og fimmtudagsumræð- unni sleppti ég, nema með öðru eyranu, af því að mér fannst efnið svo yfirmáta furðulegt: ,Jilru kven- félög stjómmálaflokkanna nauðsyn- leg?” Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör, segir máltækið. En þegar svona er spurt, getur enginn svarað neinu svo nokkurt vit sé i, segiég. Annars er útvarpið ágætt, eins og ég tók fram í upphafi. Herbert Guðmundsson. Jóhanna Valdís Helgadóttir, Háaleitis- braut 39 Reykjavík, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 23. júli kl. 17. Utför Jóns Gunnarssonar, Grund Villingaholtshreppi, fer fram frá Villingaholtskirkju iaugardaginn 23. júlíkl. 13.30. Áslaug Þorleifsdóttir, Tangagötu 26, Isafirði, verður jarösungin frá Isa- f jarðarkirkju, laugardaginn 23. júli kl. 15. Þorvaldur Jónasson andaöist 20. júlí. Jón Einarsson, Fannborg 1 Kópavogi, fyrrverandi bifreiðarstjóri, andaðist 21. júlí í Landakotsspítala. Ragnar Pálsson fyrrverandi bóndi, Arbæ Mýrasýslu, andaöist 16. júlí í sjúkrahúsinu á Akranesi. Otförin fer fram frá Borgameskirkju kl. 14 laugardaginn 23. júlí. Jón S. Helgason andaðist i Borgar- spitalanum sunnudaginn 17. þ.m. Otförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 25. þ.m. kl. 15. Slgurlina M. Jónsdóttlr lést á Elli- heimilinu Grund 20. júlí. Otförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 28. júli kl. 1.30. íþróttir íslandsmeistaramót aldursflokkanna 14ára(69)ogyngrií • f rjálsíþróttum 1983 Meistaramót Islands 14 ára (1969) og yngri í 1 frjálsíþróttum 1983 fer fram i Reykjavík dag- ana 23. og 24. júli í umsjá frjálsiþróttadeildar IR. Keppt verður á frjálsiþróttavellinum i Laugardal. Keppnisgreinar eru: Laugardaginn 23. júli: Piltar: Hástökk, kúluvarp og 4X100 m boðhlaup. Telpur: Langstökk, 800 m hlaup og 4X100 m boðhlaup. Strákar: 60 m hlaup, hástökk og kúluvarp. Stelpur: 60 m hlaup, hástökk og kúluvarp. Félög mega senda 3 þátttakendur í hverja grein en þó fleiri ef allir hafa náð 800 stigum eða meira í greininni, samkvæmt stigatöflu FRl fyrir böm og unglinga, miðaö við aldur keppenda. Þátttökutilkynningar þurfa að berast til Hafsteins Oskarssonar IR eða á skrifstofu FRl á þar til gerðum keppniskortum ásamt 20 kr. þátttökugjaldi fyrir hverja einstaklings- grein og 50 kr. fyrir boðhlaupssveit í síðasta lagi að kvöldi laugardagsins 16. júlí. Sunnudaginn 24. júli: Piltar: 100 m hlaup, 800 m hlaup, langstökk og spjótkast. Telpur: 100 m hlaup, hástökk, kúluvarp og spjótkast. Strákar: 800m hlaup, langstökk og 4X100 m boðhlaup. Stelpur: 800 m hlaup, langstökk og 4X100 m boðhlaup. SPENNUM, BELTIN sjálfra okkar vegna! UM _ 4 r Tilkynningar Fréttatilkynning Háls-, nef- og eymalæknir ásamt öðrum sér- fræðingum Heymar- og talmeinastöövar Is- lands verða á ferð um Suðurland og Austfirði dagana 3,—11. ágúst nk. Rannsökuð verður heym og tal og útveguð heymartæki. Farið verður ó eftirtalda staði: Vík í Mýrdal 3. ágúst Kirkjubæjarklaustur 4. ágúst Höfn i Homafirði 5. og6.ágúst Djúpivogur 7. ágúst Fáskrúðsfjörður 8. ágúst Neskaupstaður 9. og 10. ágúst Ákveðiö hefur verið að fara á Eskifjörð, Reyðarfjörð og Egilsstaði í okt. nk. Afmæli Stefán Helgason Sextugur varö hinn 19. júlí síöast- liöinn Stefán Helgason húsvöröur hjá Rikisútvarpinu viö Skúlagötu. Kona hans er frú Fjóla Þorsteinsdóttir. Þá verður sextugur hinn 31. þessa mánaöar Runólfur Þorkelsson sjó- maður í Grundarfirði. Þeir eru mágar og ætla aö taka á móti afmælisgestum sinum á morgun, laugardaginn 23. júlí, á heimili Stefáns og Fjólu í Krumma- hólum 10, Breiðholtshverfi. Runólfur Þorkelsson Leiðrétting: AnnarGuð- mundur íbankanum 1 úrskurðamefnd um lánskjaravísi- tölu situr dr. Guömundur Guðmunds- son fyrir hönd Seðlabankans en ekki Guðmundur Hjartarson bankastjóri. I frétt blaösins í gær um lánskjara- visitölumál var hinu gagnstæða haldiö fram, vegna misskilnings. Eru viö- komandi beðnir afsökunar. -HERB. Féll f ram af Skeiðarárbrú og beið bana Þýsk kona, sem hér var f erðamaður, lést af slysförum á Skeiðarársandi í gær. Konan var í ferðahópi á leið í Skaftafell og hafði staönæmst viö Skeiðarárbrú til að skoða sig um. Konan hætti sér of nálægt brúninni og féll hún fram af henni, i urð tiu metram neðar. Haft var talstöðvar- samband viö Skaftaf ell og beöiö um aö- stoð og fór læknir frá Kirkjubæjar- kiaustri ásamt björgunarsveitinni þar á staöinn. Þyrla frá vamarliöinu var einnig send á vettvang en þegar hún var hálfnuð þangað kom tilkynning um aö konan væri látin og var þyrlunni þá snúiðviö. -klp- Bella Stjömuspádómar geta verið nokkuð fóðir. Eftir að ég fór að fara eftir þeim efur lífið breyst mikið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.