Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1983, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1983, Side 28
DV. FÖSTUDAGUR 22. JULl 1983. 36 Menning Menning Menning Menning Menning SOLDIÐ SVEITÓ AUkt BmkMnadótdr og Kriat/tn RmnkKn mrvmmða/þaJrrm wii komafram í Lotca-dagtkré StúthntmhJkhúitkis: KUHnn btokkur, timgMOrautt Mynd: hrar Brynjóffsson. Stúdentaleikhúsið: KLÁRINN BLAKKUR, TUNGLIÐ RAUTT. Dagskrá úr verkum Federico Gercíe Lorca. Leikstjóm og samantekt: Þórunn Sigurðar- dóttir. Tónlistarumsjón: Valgeir Skagfjörð. Sú var tíöin aö Garcia Lorca var mikið skóld á Islandi. Er hann það kannski enn? Þetta var i þá daga sem þýöing Magnúsar Ásgeirssonar á vögguljóðinu úr BlóðbruUaupi var nýskeð komin út á prent og söng í hvers manns huga sem séð hafði eða heyrt. Og vegna dauða sins i borgarastyrjöldinni á Spáni stóð skáldiö mönnum fyrir hugskotssjón- um sem hetjuleg ímynd frelsisins, kæft i blóði og lifir þó allt af. Síðan eru ýmsir tímar liðnir. Ýmsir hafa síðan spreytt sig ó aö þýða ljóð eftir Lorca, með misjafnri niöurstööu, og tvö leikrit hans hafa verið sett hér á sviö, Blóöbrullaup i Þjóðleikhúsinu og Hús Bernörðu Alba í Iðnó. Það finn ég raunar að er sýning sem loðir kyrr í hug manns þótt tímar líði. I dagskrá Stúdentaleikhússins upp úr verkum García Lorca er ekki farið með Vögguþulu í hinni sigildu þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar. Engin ástæða að finna að þeirri ákvörðun, ljóðið kemur hér fyrir á, sínum stað í Blóðbrullaupi, og eðli- legt við svo búið að viðhafa leik- þýðinguna eftir Hannes Sigfússon. Af þeim brotum leiksins sem hér voru flutt er raunar svo að heyra að þýðing Hannesar sé magnþrungið verk, og væri gaman að eiga kost á aö lesa hana. Hefur Blóðbrullaup nokkuð verið prentað? En ekki öðlast Leiklist ÖlafurJónsson ljóðmál hans vængi i líkingu viö kvæði Magnúsar, hvað sem öðrum kostum þýðingarinnar liður. Það er kannski aðeins þar sem García Lorca er talandi skóld á islensku enn þann dag i dag? Og af leikatriðunum i Stúdenta- leikhúsinu að dæma, brotum úr Blóö- brullaupi og Yermu, er svo að sjó sem ansi mikil víöátta sé á milli ungra íslenskra leikara og sjólfra þessara leikja, raunsæislegra alþýðulýsinga og ljóðrænna tilfinningamála sem þar bendlast saman. Án þess að þekkja nánar til efnisins er ég samt sem áður viss um aö ekki tjóar að leika Yermu upp á „þjóðlegan íslenskan” móð líkt og leikurinn gerðist á grasafjalli og baðstofu. Var það samt ekki nokkurn veginn þetta sem Kristin Olafsdóttir, Ragnheiður Amardóttir og þau hin voru að reyna við leiösögn Þórunnar Sigurðardóttur? Og varð þá soldið einsogsveitó. Þýðing Hannesar Sigfússonar á Blóðbrullaupi hljómar, eins og ég var aö segja, ansi vel og áheyrilega. En í flutningi var eins og alúð leik- endabeindist öll að bragnum, þvíað koma kveðskap til skila svo hann hljómaöi hátt og snjallt, en hið dramatiska frásagnarefni og mann- lýsingar sem öll þessi kveðandi snýst um færðist í þessum meðförum allt í aukana með ýkjum og ósköpum. Áreiöanlega er samt ástriðan í þessum harmleik innan í en ekki utan á þátttakendum hans. Helst var að Andrési Sigurvinssyni auönaöist að gæða ljóðmæli mánans raunveru- legu tilf inningagildi og merkingu. Það er eflaust ansi vandasamt aö fara með leiki eins og Yerma, Blóð- brullaup svo að hljómi rétt og satt, svo langsóttir og framandi okkur sem þeir á ýmsa lund eru, fyrir utan tæknileg vandkvæði í flutningi leik- ljóða. Smáljóö eftir Lorca, Kveðið ó hestbaki og Tataraljóð sem Kristjón Franklín Magnús og Andrés Sigur- vinsson fluttu í dagskránni, hvor- tveggja í þýðingu Helga Hálfdánar- sonar, þurfa ekki á aö halda og mega raunar ekki við leikaralegum til- burðum, dramatisku gervi um fram- sögnina: líf þeirra liggur í sjálfum hinum einfalda texta, í og milli orð- anna, ef þau öðlast líf á íslensku. Það sem best tókst í Lorca-dag- skrá Stúdentaleikhússins hygg ég að hafi verið tónlistin, sem Arnaldur Ámason og Valgeir Skagf jörð gítar- leikarar og Gunnþóra Halldórsdóttir fiðluleikari fluttu svo einkar áheyri- lega. Allténd gítarinn hljómaöi spænskt í Félagsstofnun. Og peria sýningarinnar var raunar söngur Valgeirs um Don Perlimplin og þeirra Kristínar Olafsdóttur um hanana tvo, annan rauðan og annan svartan. En það er ekki þar fyrir: það er eins og endranær dágóð kvöld- skemmtun i boði i Stúdentaleikhús- inu, enda var henni virktavel tekið á annarri sýningu á mánudagskvöld. Hörku Rally-Cross keppni á Húsavík: HAFSTEINN HAUKS- SON SIGRAÐIÁ ESCORT Síðastliðinn sunnudag var haldin bíll hans bilaði í Húsavíkurrallinu dag- Rally-Cross keppni á braut Bifreiða- inn áður lét hann slag standa og dreif íþróttaklúbbs Húsavikur ofan við sig bara í keppnina. Varð keppnin milli Húsavíkurkaupstað. Þessi keppni var hans og Þórðar mjög tvisýn og spenn- liður í Islandsmeistarakeppninni í andi, og í tveim fyrstu riðlunum, þar til þessari grein bílaíþrótta og voru 9 í síðasta hring, að Hafsteinn tók foryst- keppendur skráðir til leiks. Þar á una og hélt henni síðan til loka keppn- meöal var Þórður Valdemarsson, sem innar. I fyrsta riðli tókst tveimur kepp- nú er efstur að stigum til Isiandsmeist- endum að velta bilum sínum í sömu ara, og Hafsteinn Hauksson sem gerði beygjunni en engin meiðsli urðu á garðinn frægan í skoska rallinu um mönnum, enda eru öryggiskröfur í daginn. Reyndar ætlaði hann ekki að keppni af þessu tagi mjög strangar. keppa i þessu ralli, en þar sem Escort Urslit urðu, sem áöur segir, þau að Hafsto/nn Hauksson ekur hir Ford Escort bt sknan tk sfgurs í RaHy-Cross kappntnn! 6 Húsavlk um sÍOustu he/gl. Mynd:ÓQ. Hafsteinn Hauksson sigraöi á Ford Escort, i öðru sæti varð Þórður Valde- marsson á VW og í þriðja sæti varð Er- ik Carlsen ó Fiat 125. Fjöldi óhorfenda fylgdist með keppninni þrátt fyrir óhagstætt veður, rok og kulda. Næsta Rally-Cross keppni verður á sunnudag- inn kemur á Akureyri á vegum Bíla- klúbbs Akureyrar. -ÓG. \3 VtKAH mfgest3 ígíBfS®- MEÐAL EFNIS í ÞESSARIVIKU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.