Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1983, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1983, Blaðsíða 10
Útlönd Útlönd Útlönd • Útlönd Útlönd DV. FÖSTUD AGUR 22. JtlLl 1983. Almenningsálitiö á Italíu gagnvart Mafíunni er nú aö breytast. Morö hafa fram til þessa veriö tekin sem eölilegur þáttur í tilverunni, aö minnsta kosti hvað varðar Sikiley, og mafíósamir hafa treyst á aö aldargamlir þagnareiðar foröuöu þeim frá réttvisinni. En þess sjást nú ýmis merki að Italir vilji ekki búa við þau ofbeldisverk sem leiðir af starf- semi Mafíunnar. Á undanfömum mánuðum hafa stúdentar, kirkjudeildir og stjóm- málasamtök sameinast um mót- mælaaðgerðir gegn Mafíunni víða á Sikiley. Italska lögreglan er einnig farin að þrengja að þessum glæpa- samtökum með stuðningi nýrrar refsilöggjafar. ,,t>etta er aðeins upp- hafið að viðhorfsbreytingu sem bein- ist gegn starfsemi Mafíunnar,” segir borgarstjóri Palermo, Elda Pucci. ,,En við sjáum fram á langvinna bar- áttu.” Baráttan byrjaöi fyrir alvöru i september síðastliðnum, eftir að Chiesa lögregluforingi, sem mikið hafði unnið gegn Mafíunni, var skot- inn til bana í bíl sínum á götu í Pal- ermo. Blöðin komust yfir lögreglu- skýrslu um málið í síðustu viku og hún staðfesti þaö sem grunur lék á. Moröiö hafði verið skipulagt af nokkmm fjölskyldum mafíósa í því skyni að stöðva Chiesa áður en hann stöðvaði þær. En þar brást stjómlist Mafíunnar. I stað þess að skjóta lög- reglunni skelk í bringu vakti morðið gífurlega reiði almennings sem aftur hvatti lögregluna til að herða aö- gerðir sínar. Mafian leitar nýrra leiða Italska þingið samþykkti skömmu síðar ný lög sem heimiluðu lögregl- unni aðgang að bókhaldi þeirra sem grunaðir voru um glæpastarfsemi og leyfi til aö leggja hald á eigur þeirra. Lögin heimiluðu lögreglunni einnig aö hlera síma grunaðra og veita vitn- um sínum vemd. Lögin hafa leitt til handtöku hundraöa mafíósa á Sikil- ey og í Napólí. I krafti þessara laga hef ur lögreglan handtekiö 59 mafíósa í síðasta mánuöi sem grunaöir eru um dreifingu á heróíni. Mafíósafjölskyldurnar hafa reynt aö finna nýjar leiðir til að komast hjá þessum hertu lögregluaðgerðum. Sumar fjölskyldur hafa fjárfest stærri hluta af hagnaöi sínum á Norður-Italíu og erlendis til að kom- ast hjá hinu aukna eftirliti á Sikiley. En breytingin er mest í heróín- versluninni, sem hefur lagt grund- völlinn að byggingarframkvæmdum og verslun á Sikiley síöastliðinn ára- tug. Mafíósar keyptu áður morfín frá Suövestur-Asíu og unnu það sjálfir á Sikiley en kaupa nú aðeins hreint heróín frá Suðaustur-Asíu. Þessi breyting gerir þaö að verk- um að ekki er lengur þörf fyrir leyni- legar efnavinnslur til aö breyta morfíni í heróín, en lögreglan gerir nú sérstaka leit að slíkum stöðum. Þetta eykur einnig hagnað Mafíunn- ar þar sem kostnaðurinn við að framleiða heróín er tvöfalt meiri en við dreifingu þess. En eiturlyfjalög- reglan leggur nú áherslu á aö leita uppi aöflutningsleiðir heróínsins og leitar í skipum áður en þau koma til Sikileyjar. Fyrir tveimur mánuðum var lagt hald á 208 kíló af heróíni sem voru á leið til Sikileyjar frá Thai- landi með grísku skipi. Áföll sem þessi hafa leitt til auk- inna átaka milli einstakra fjöl- skyldna og ætta sem tilheyra Mafí- unni. Fjölskyldur sem misst hafa forystumenn sína og ættir sem hafa verið slegnar út í samkeppninni um heróínsöluna berjast nú viö sterkari hópa til að ná aftur fyrri völdum. Á síðasta ári létu 151 lífið í slíkum átök- um. Sumar f jölskyldur hafa jafnvel gengið inn í aörar stærri ættir og valdameiri, en oftast án þess að ná þeim árangri sem til var ætlast. Antonio Sorci sneri fyrir tveimur árum baki við hnignandi fjölskyldu sinni og tók upp samstarf við-stærri ætt sem rak öfluga heróínverslun. Hann var skotinn til bana er hann var á ferð um miðborg Palermo ásamt syni sínum. Að líkindum hafa morðingjarnir verið úr fýrri fjöl- skylduhans. Umsjón: Ólafur E. Fríðriksson og Baldur Hermannsson Kviðdómar óvirkir vegna óttans En þrátt fyrir allt heldur Mafían enn áfram að hafa áhrif á dómstóla á Italíu. I apríl siðastliðnum varö að fella niður ákæru gegn þremur mafíósum sem sakaöir voru um að hafa myrt lögreglumann í borginni Monreale á Sikiley árið 1979. Lögreglan hafði vonað að breytt af- staða almennings gagnvart Mafíunni myndi leiða til þess að kviðdómurinn myndi dæma mennina seka og þannig yrði gefið fordæmi fyrir slíkum réttarhöldum í framtíðinni. En kviödómendur lágu undir stöðug- um hótunum og guggnuðu á endan- um. Mafíósamir voru sýknaðir. Tveimur mánuðum síðar vora þrír lögreglumenn skotnir til bana. Engin vitni gáfu sig fram. „Fólk er hrætt. Ef einhver talar er hann samstundis dauður,” er haft eftir verslunareig- anda í Palermo. Engu að síður neita embættismenn aö gefast upp í baráttunni. Mikil áhersla er lögð á að setja nýja lög- gjöf sem komi í veg fyrir að mál er varða Mafíuna fari fyrir kviðdóm. Þeir sem berjast fyrir því telja aö hefndaraðgerðir Mafíunnar gegn vitnum og kviðdómendum komi í veg fyrir að réttlætið nái fram að ganga. „Það er ekki hægt aö gera ráð fyrir að venjulegir borgarar vilji verða hetjur,” segir Pucci, borgarstjóri í Palermo. Hann hefur hafið krossferð gegn Mafíunni og berst fyrir þvi að sett verði svipuð lög um mafíósa og sett hafa verið um skæruliða, þannig að þeir mafíósar sem veittu lögregl- unni upplýsingar fengju vægari dóma. „Þetta væri eina leiðin til aö ná árangri í baráttunni gegn Mafí- unni,” segir Rocco Chinnici, sak- sóknari í Palermo. Breytt almennings- ólit er árangur Andófið gegn Mafíunni er nú farið að skipta sköpum í stjórnmálum. I síðustu þingkosningum á Italiu tap- aði Kristilegi demókrataflokkurinn miklu fylgi og er það skýrt á þann veg að kjósendur séu orðnir leiðir á aðgeröaleysi flokksins gagnvart glæpastarfsemi Mafíunnar. ,JCjós- endur snerust gegn okkur vegna þess að þeir voru ekki sannfærðir um að við ætluöum í raun að gera einhverjar breytingar,” segir Leoluca Orlando, borgarráðsmaður kristilegra demó- krataíPalermo. Italir vilja hertar lögregluaðgerðir og breytta löggjöf sem samræmist áliti þeirar á undirheimastarfsemi Mafíunnar. „Fyrir áratug leit almenningur á hvem sem tengdur var Mafíunni með mikilli virðingu og hann var álitinn hugrakkur maður. I dag er sami maður álitinn hættuleg- ur og talið best aö halda sig frá honum,” segir jesúítapresturinn Ennio Pintacuda. Þaö getur tekið langan tíma fyrir itölsku lögregluna að stöðva starf- semi mafíósanna. En þessi afger- andi breyting á almenningsálitinu gagnvart Mafíunni er í sjálfu sér athyglisverður árangur. (Newsweek). ítalska Mafían á í vök að verjast — almenningsálitið heimtar hertar aðgerðir gegn ofbeidi mafíósanna Ný tösmfðf hmfur veitt lögreglunnl meira frjálatræói vU rannsókn 6 starf- semi Mafiunnar og það hefur loitt tíl þess að hundruð mafíósa hafa verið handteknir. Þar mf voru 59 mafiósar handteknir i síðasta mánuði grunaðir um heróinsmygl. asiiSiS Mafían stóð að baki morðinu 6 Chi- esa iögregiuforingja en það varO tíl þess aO vekja enn meiri andúO 6 Mafiunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.