Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1985, Blaðsíða 4
4
DV. FIMMTUDAGUR1. AGUST1985.
Harkalegur árekstur varð á mótum Höfðatúns og Borgartúns. Range
Rover, sem var ekið suður Hátún og inn i Borgartún, rakst á bíl sem
ekið var austur Borgartún. Range Roverinn kastaðist i hálfhring og
valt. Engin slys urðu á mönnum.
DV-mynd S
Skorturá hjúkrunarfræðingum:
RÆTIST VONANDI
ÚR MÁLUM
Á NÆSTA ÁRI
— að sögn Ingibjargar R. Magnúsdóttur, deildar-
stjóra íheilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu
„Eg vil leggja áherslu á að það er
ekki eðlilegt að sjúkrahúsin geti haldið
uppi fullri starfsemi yfír sumarmánuð-
ina. Hjúkrunarfræöingar eru mjög sér-
hæfður starfskraftur og það er ekki við
því að búast að sjúkrahúsin hafi að-
gang að varaliði til að fylla upp í þær
eyður sem skapast vegna sumarleyfa
á fjögurra mánaða tímabiii,” sagði
Ingibjörg R. Magnúsdóttir, deildar-
stjóri í heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytinu, í samtali við DV. Svo sem
skýrt hefur verið frá er deildum víöa
lokað á sjúkrahúsum í sumar, einkum
vegna skorts á h júkrunarfræðingum.
Að sögn Ingibjargar eru hér að baki
fleiri en ein ástæða. „Ég álit aö Há-
skóla Islands hafi ekki verið gert kleift
að brautskrá nógu marga nýja hjúkr-
unarfræðinga til starfa og þar að auki
varð uppbygging heilbrigðiskerfisins á
undanförnum árum hraðari en búist
var við. Svo eru það launamálin:
meirihluti ungra hjúkrunarfræðinga
giftist og eignast börn og fer af vinnu-
markaðnum um tíma, þaö er síðan
misjafnlega aðlaðandi fyrir þær að
koma inn á hann aftur og mörgum
finnast launin lág.”
Ingibjörg sagði að á næsta ári yrði
Hjúkrunarskóla Islands lokað og hóp-
urinn sem útskrifast þaðan verður sá
síöasti. En á næsta ári útskrifast
hjúkrunarfræðingar frá þremur stöö-
um. Hjúkrunarskólanum, Háskóla Is-
lands og Nýja hjúkrunarskólanum. Sá
síðasttaldi er að mestu leyti fram-
haldsmenntunarskóli. Heildarfjöldinn
verður á annað hundrað.
Að sögn Ingibjargar verður ástandiö
á sjúkrahúsunum erfitt í vetur, þegar
svo margir eru enn í námi, en á næsta
ári myndi vonandi rætast eitthvað úr
málum. „Þegar allt hjúkrunamámið
verður komið á einn stað og ef búið
verður vel að háskólanum í kennslu og
starfsaðstöðu ætti námið að verða eft-
irsóknarvert,” sagði Ingibjörg.
-pá
Skatta-
skoðun
DV
1985:
Aðilar vinnu-
markaðarins
Skattaskoðun DV beinirspjótumsín-
um í dag að forystumönnum vinnuveit-
enda og verkalýðs. Hæstur þeirra
fimmtán sem athugaðir eru er Víg-
lundur Þorsteinsson, formaður iðnrek-
enda, með um 880 þúsund krónur í
skatta alls, og um 1,9 milljónir í árs-
tekjur. Mótherji hans við samninga-
borðið, Bjarni Jakobsson, formaður
Iðju, er hins vegar næstlægstur, með
um 130 þúsund krónur í skatta alls, og
um hálfa milljón í árstekjur. Aðalheið-
ur Bjarnfreðsdóttir, formaður Sóknar,
greiðir lægstu skattana, eða um58 þús-
undkrónuralls.
Og enn skal tekið fram aö hér er um
álögð gjöld aö ræöa þannig að ein-
hverjar tölur gætu breyst ef viðkom-
andi kærir og kæran er tekin til greina.
Einnig gæti sums staðar verið um
áætluð gjöld að ræða.
Smærri gjöld, eins og kirkjugarös-
gjald, falla undir „annaö,” en barna-
bætur og persónuafsláttur undir „frá-
drátt.”
EA
Tekju- Eigna- skattur: skattur: Útsvar: Annað: Aflstöðu- Frá- gjöld: dráttur: Samtals:
1. Viglundur Þorsteinsson, Sævargörflum 4, form. Fél. isl. iflnrekenda 643.414 17.092 189.700 37.925 0 9.375 878.756
2. Gunnar G. Schram, Frostaskjóli 5, form. Bandal. háskólamanna 452.999 20.799 155.890 28.437 0 0 658.125
3. Kristján Ragnarsson, Seljugerði 7, form. Landssamb. ísl. útvegsm. 448.604 23.720 153.200 27.965 0 3.750 649.739
4. Magnús Gunnarsson, Þernunesi 10, frkvst. Vinnuveitendasamb. ísl. 371.036 17.179 126.250 22.154 0 9.375 527.244
5. Magnús L. Sveinsson, Geitastekk 6, form. Verslunarmf. Rvíkur 303.188 11.500 111.920 18.953 0 0 445.561
6. Þorsteinn Ólafsson, Eikjuvogi 22, stjórnarform. Vinnumáiasamb. samvinnuf. 294.204 0 124.180 21.565 0 9.375 430.574
7. Indriði H. Þorláksson, Nökkvavogi 60, form. samninganefndar rikisins 257.543 641 112.440 19.164 0 9.375 380.413
8. Björn Þórhallsson, Brimalandi 17, varaforseti Alþýðusamb. isl. 209.466 8.060 86.830 14.313 4.050^ 0 322.719
9. Þröstur Ólafsson, Bræðraborgarstíg 21b, form. verkamannaf. Dagsbrúnar 228.267 0 88.130 14.438 0 28.125 302.710
10. Guflmundur J. Guflmundsson, Fremristekk 2, form. Verkamannasamb. isl. 194.014 5.492 81.760 12.736 0 0 294.002
11. Kristján Thorlacius, Bólstaðarhlið 16, form. Bandal. starfsm. ríkis og bæja 145.861 2.578 68.280 9.573 0 0 226.292
12. Ásmundur Stefánsson, Njörvasundi 38, forseti Alþýflusamb. isl. 130.350 2.202 68.980 10.184 0 9.375 202.341
13. Óskar Vigfússon, Álfaskeiði S, form. Sjómannasamb. Ísl. 119.383 0 58.320 7.873 0 0 185.576
14. Bjarni Jakobsson, Ásbúfl 13, form. Iðju, fél. verksmifljufólks 63.949 15.586 48.030 5.851 0 0 133.416
15. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Kleppsvegi 134, formaflur Sóknar 26.139 0 30.270 2.119 0 0 58.528
j dag mælir Pagfari_____________j dag mælir Dagfari______ í dag mælir Dagfari
LSD með pósfinum
Lögreglan hefur haft hendur í hári
fólks sem hefur smyglað inn miklu
magni af LSD ofskynjunarefni. Það
er fagnaðarefni. Hitt er heldur
óhugnanlegra, hvernig að þessu
smygll var staðið. Fólkið pakkaði
eiturefninu inn í bréf og sendi þau
síðan á aðskiljanlegar adressur vítt
og breitt um bæinn þar sem öruggt
var að enginn móttakandi fyrirfynd-
ist með því nafni sem bréfið var
merkt. Þar voru bréfin lögð til hliðar
og skilin eftir af póstburðarfólki og
smyglararnir áttu auðveldan eftir-
leik að hirða bréfin þar sem þau lágu
á glámbekk.
Þannig er sagt að eiturlyf upp á
nær þrjár milljónir króna bafi legið
fyrir hunda og manna fótum i fjöl-
mennum blokkum. Sjálfsagt finnst
flestum það óprúttinn business að
smygla slíku magni af LSD inn til
landsins, en businessinn verður að
biræfni þegar pósturinn er notaður
til dreifingar á smyglinu með svo
samviskulausum hætti.
Maður spyr sjálfan slg, hvort það
sé kannski algengt, að pósthúsið sé
notað sem dreifingaraðili fyrir
smyglgóss sem auðvitað er þægileg
aðferð og ódýr fyrir glæpamenn af
þessu tagi þegar smyglið er orðið að
umfangsmiklum innflutningi?
Bæjarbúar ættu sömuleiðis að hafa
augun hjá sér þegar póstbréf liggja á
glámbekk í heimahúsum þeirra því
aldrei er að vita nema þar megi
finna nokkra vikuskammta af eitur-
lyf jum eða öðrum varnlngi sem ekki
er f áanlegur í verslunum.
Eins þurfa menn að hafa gætur á
ókunnugum, sem eru á ferli í
kringum híbýli þeirra, því ekki er að
vita, nema þar sé á ferð glæpa-
hyskið sem bíður eftir póstinum
sínum.
Nú gerir maður ráð fyrir að
lögreglan hafi efnagreint LSD efnið
en ekki væri síður ástæða til að sál-
greina hyskið sem viðurkennt hefur
á sig glæpinn.
Það er sosum hverjum og einum
frjálst að byrla sér eitur og sökkva
sér í ógæfu eiturlyfjanna ef þeir hafa
ekkert betra að gera við líf sitt. En
það fólk hlýtur að vera, ekki aðeins
biiað á geðsmunum, heldur forstokk-
að til sálarinnar sem befur samvisku
til að hafa eiturlyfjaneyslu annarra
að féþúfu. Sagt er að hér eigi meðal
annarra tvær systur hlut að máli.
Eitthvað hlýtur fjölskyldulifið á því
heimili að hafa skolast til þegar
systur bindast samtökum um að
troða eiturefnum upp á samborgara
sína og leggja lif sitt og æru að veði.
Hún er reyndar ekki mikils virði
æran sú en skyldi nokkur geta lagst
lægra í sóðaskap en einmitt að
smygla eitri til að leggja líf og heilsu
annarra í rúst?
önnur systranna situr nú bak við
lás og slá en á hina hefur verið sett
farbann. Osköp eru það væg viðurlög
fyrir fólk sem hefur það í ábataskyni
að murka úr fólki liftóruna með
smyglf og sölu á eiturlyf jum. Er það
frekar ónotaleg tilfinning að vita til
þess að skítapakk af þessu sauðahúsi
gangi laust í bænum. Ekki kemur
farbannið í veg fyrir það að þessi
manneskja safni saman þeim óskila-
pósti sem enn llggur á glámbekk i
blokkunum.
Svona fólki á að stinga inn í dýfliss-
ur til eilífðar. Það er hættulegt um-
hverfi sínu. Fangelsisvistin gæti von-
andi kennt þvi að smygl á LSD efnl
borgar sig ekki í þjóðfélagi þar sem
borgaramir þurfa ekki á
ofskynjunarefni að halda til að
kunna skil á glæpum og ekki
glæpum.
Og svo geta þær skrifast á syst-
urnar og meðreiðarsveinar þeirra.
Þau kunna að minnsta kosti að koma
bréfum í póst.
Dagfari