Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1985, Síða 28
28
o
DV. FIMMTUDAGUR1. ÁGUST1985.
HÖGG
EYFAR|
í , hárfrghf.|
• Skeifunni 5a — Sími 8*47*88:
FYRIR
VERSLUNARMANIMAHELGINA
GJALLARHORN
Einnig eru komnar bongótrommur,
trommusett, gítarar o.fl.
Sendum um land allt.
HLJÚÐFÆRAVERSLUN POUL BERNBURG
Rauðarárstíg 16 - sími 20111
Seljum í dag
Saab 900 GLE ár<
1983,
4ra dyra, blágrár, sjálf-
skiptur, vökvastýri,
topplúga, litað gler,
sportfelgur og fleira.
Skipti möguleg á ódýr-
Saab 99 GL árg. 1982,
2ja dyra, rauður, bein-
skiptur, 4ra gíra, ekinn
84 þús. km, gott verð.
Saab 900 GLE árg.
1980,
5 dyra, Ijósgrænn,
sjálfsk. + vökvastýri,
ekinn 80 þús. km, góð
kjör.
Saab 99 GL super árg.
1978,
4ra dyra, hnetubrúnn,
beinskiptur, 4ra gíra, ek-
inn 140 þús. km, góður
bíll.
TOGGURHF.
SAAB UMBOÐIÐ
BÍLDSHÖFÐA 16
Menning
Menning
Menning
NORRÆN
TÓNLISTARHÁTÍD
í SKÁLH0LTI
Sumartón lo ikar í Skálhoki, 27. júlf.
Flytjendur: Ketil Haugsand semballeikari, og
Lauronce Dreyfus gömbuleikari.
Efnisskrá: Johann Sebastian Bach: Aria meö
ýmsum tilbrigðum fyrir sembal með tveimur
hljómborðum BWV 988; Sónötur fyrir viola da
gamba og sembal: nr. 1 í G-dúr BWV 1027, nr. 2
( D-dúr BWV 1028 og nr. 3 í G-moll BWV 1029.
Sumartónleikar í Skálholti eru tíu
ára og vart hefur það farið fram hjá
neinum sem fylgist með því sem
gerist í tónlistarlífinu að þar er
haldin mikil hátíð í sumar. Tilefnið
er líka margfalt því auk afmælisins
er ár tónlistarinnar í Evrópu og
Bach, Hándel og Scarlatti fæddust
fyrir þrjú hundruð árum. Okkur
Islendingum gleymist það gjaman
að Skálholtsdómur er heilög norræn
kirkja og fer því vel á að norræn tón-
listarhátíð skuli fylla dagskrá
Sumartónleikanna á þessu merkis-
ári. Tvennum fyrstu tónleikunum í
röðinni missti undirritaður af —
lagðist í landshornaflakk og átti þess
því engan kost að komast í Skálholt,
því miður.
Þaö var norski semballeikarinn
Ketil Haugsand sem sá einn um fyrri
hluta tónleikanna. Goldberg-
tilbrigðin, það stórkostlega tónaflúr,
voru á dagskrá. Tónleikarnir töfðust
nokkuð og var það í sjálfu sér ágætt,
því að þá fengu menn nasasjón af
fyrirhöfn samballeikarans við að
Tónlist
Eyjólfur Melsted
stilla hljóðfærið. En biöin var lika
ríkulega launuð því Ketil Haugsand
er semballeikari í allra fremstu röð.
Leikur hans er mjög litrikur, flúriö
smekklega unnið og hann kann að
setja sitt eigiö mark á verkið án þess
að brjóta í nokkru góðar barokkhefðir.
Honum var vorkunn þótt harrn
sleppti allvíða endurtekningum því
hann átti eftir að leika með Laurence
Dreyfus í sónötunum fyrir gömbu og
sembal. Ymsir hefðu talið að Gold-
berg-tilbrigðin ein væru ærinn
skammtur í eitt mál, en Ketil
Haugsand lét sig ekki muna um fleiri
stórvirki á þessu laugardagssíðdegi.
Að loknu góðu kaf fihléi hélt veislan
áfram þar sem gömbusónöturnar
voru á dagskrá. Laurence Dreyfus
gefur Katli Haugsand ekkert eftir
hvað leikni snertir svo að þama
fengu tónleikagestir að njóta mikils
gæðaleiks. I hrööum köflum gripu
þeir flugið og kom þar hvaö best i
ljós þeirra frábæra samstilling og
leikni. En meir fannst mér þó koma
til hægu kaflanna því þar fengu
menn virkilega að heyra hversu
fagurt má syngja á gömbuna.
Einkanlega fannst mér það koma vel
fram i Andante kaflanum i Annarri
sónötunni i D-dúr. Hiö eina sem á
skyggði var að heyrð Skálholtsdóms
reyndist hér viðsjál sem stundum
áður og jafnvægi í styrk hljóð-
færanna var ekki nógu gott þar sem
sembalröddin kom of sterkt fram.
En það breytir því hins vegar ekki að
leikurinn var f irna góður.
EM
Menning
Menning
Menning
SÍMAR 81530 OG 83104