Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 10
10 DV. LAU GARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTjANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og OSKAR MAGNÚSSON Auglysingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn. skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLT111 Prentun: ÁRVAKU R H F. - Áskriftarverð á mánuði 450 kr. Verð í lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Krónan er marklaus mynt Vel hefur komið í ljós á síðustu dögum, hversu mikil- væg er skráning gengis krónunnar í tilraunum stjórn- valda til að halda friði í þjóðfélaginu. Ef þeim tekst að komast hjá gengislækkun, spara þau sveiflu á verð- bólguhjólinu og létta af kaupkröfuþrýstingi. Að þessu sinni var fyrsta krafa Alþýðusambandsins, að gengi krónunnar yrði fryst. Þetta var gert með stuðn- ingi Vinnuveitendasambandsins. Ríkisstjórnin var ekki sein á sér að lofa þessu umfram annað. Hún hagnýtti sér þar með hagstæðar breytingar á ytri aðstæðum. Verðhrun olíu og verðhækkun fiskafurða á erlendum markaði hefur linað þrýsting útflutningsgreina á geng- islækkun. Talið er, að útgerð og fiskvinnsla hafi undan- farnar vikur verið rekin nokkurn veginn taplaust. Gengisfrysting setur þau ekki á höfuðið að sinni. Aratugum saman hefur eitt meginmarkmiða hverrar ríkisstjórnar á fætur annarri verið að halda afkomu sjávarútvegs í núlli. Þetta hefur verið framkvæmt á þann veg, að afkoman hefur verið höluð úr taprekstri upp í núllið, oftast með síðbúnum gengislækkunum. Þær hafa svo reynzt ríkisstjórnum þungbærar, því að þær hafa aukið verðbólguna og kallað á kaupkröfur, sem hafa meira eða minna étið upp árangur lækkaðs krónugengis. Þannig hafa gengislækkanir verið eitt auðþekktu sporanna í verðbólgudansinum. Það er hátíð í bæ ráðamanna, þegar þeim tekst að komast hjá gengisfellingu, svo sem tekizt hefur í vetur. Enn meiri er gleðin nú, þegar breytingar ytri aðstæðna gera þeim kleift að horfa fram á gengisfryst ár. Þetta sparar þeim ótrúlega mikið af vandræðum. Slíkir hamingjutímar standa sjaldan lengi. Ytri að- stæður sveiflast til og frá. Fyrr en varir standa stjórn- völd andspænis roknatapi útflutningsatvinnuvega og neyðast þess vegna til að lækka gengi krónunnar og þá venjulega meira en lítið hverju sinni. Nú eru liðin tíu ár síðan fyrst var lagt til í leiðurum þessa blaðs, að stjórnvöld væru losuð við þetta dýr- keypta hagstjórnartæki, sem raunar er ekkert annað en vanabindandi og hættulegt deyfilyf. Tímabundnar þjáningar eru linaðar á kostnað útflutningsgreina. Hin opinbera gengisskráning er skýrasta dæmi ís- lenzkra efnahagsmála um heimatilbúið vandamál, sem bakar meiri erfiðleika í náinni og íjarlægri framtíð en sem svarar þeim þjáningum, er hún linar á líðandi stund. Verst er, hversu handhæg og freistandi hún er. Fyrir tíu árum var hér í blaðinu bent á, að góð lausn þessa vanda fælist í að leggja krónuna niður og taka upp einhvern alþjóðlegan mælikvarða, eins og við tók- um á sínum tíma upp metrakerfið í staðinn fyrir álnir vaðmáls og fjórðunga fiska. Hugmyndin hefur loks náð þeirri útbreiðslu, að Alþýðubandalagið og Morgunblaðið hafa sameinazt um að vara við henni. Þessir hugsjónabræður telja hana vera uppgjöf í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. íslenzk mynt sé forsenda efnahagslegs sjálfstæðis okkar. Staðreyndin er hins vegar sú, að íslenzka krónan er ímynduð og marklaus mynt. Gengisskráning hennar hefur ekki hið minnsta gildi í útlöndum, hefur þvert á móti orðið okkur til siðferðilegs og efnahagslegs hnekk- is og spillt stöðu okkar á báðum sviðum. Margar fjölmennari og ekki síður virtar þjóðir nota aðra mynt en sína og losa sig þar með við freistingu, sem hefur valdið okkur efnahagslegu ósjálfstæði. Jónas Kristjánsson Af heimsendi fsmeygileg er lýsingin á heims- endi í Nýjatestamentinu, í stað þess að útmála tortíminguna í smáatriðum snýst textinn upp í að vorkenna þeim sem eftir lifa. „En vei þeim sem þungaðar eru, og þeim sem börn hafa á brjósti, á þeim dögum,“ segir í Matteusi. Endalok- in koma fyrirvaralaust og óvænt og allt er um seinan: „Sá sem er uppi á þakinu, fari ekki ofan til að sækja það sem er í húsi hans; og sá sem er á akrinum, snúi eigi aftur til að taka yfirhöfn sína.“ Segja má að heimsendir sé inn- byggður í kristnina sem eins konar áróðursbragð eða patent til að hræða menn til átrúnaðar með útmálun á yfirstandandi eyðingu og vísu athvarfi á himni: „Og þá munu menn sjá manns- soninn komandi í skýjum með miklum mætti og dýrð. Og þá mun hann senda út englana og hann mun safna saman sínum útvöldum frá áttunum fjórum, frá endimörk- um jarðar til endimarka himins." (Markús 13) Löngum olli það kristnum mönn- um miklum heilabrotum að miða út þennan yfirvofandi heimsendi og búa sig undir hann. Árið 1000 þótti lengi líklegt sem heimsendaár, en þegar það brást hengdu menn hatt sinn á 1033, þ.e.a.s. þúsund árum eftir líflát Krists. En það virðist hafa farið á sömu leið. Síðan voru menn út allar miðaldir á útkikki eftir halastjörn- um og öðrum uppákomum í himna- gangverkinu sem væru líklegar til að boða endapunktinn. Matteus sýnist þó vera alveg klár á kenningunni, heimsendir kemur þegar allir menn hafa meðtekið boðskapinn: „Og þessi fagnaðarboðskapur um ríkið mun prédikaður verða um alla heimsbygðina, til vitnisburðar öllum þjóðum; og þá mun endirinn koma.“ (Matteus 24) Eftir því að dæma, ber kristni- boðið endalokin í sér. Ragnarök heiðninnar eru ólík kristnum heimsendi að því leyti að þau virðast fyrst og fremst bitna á goðunum, það er þeirra heimur sem ferst, og taka afganginn af móverk- inu með sér í fallinu. Pétur Gunnarsson ITALFÆRI Voldugar endalokamyndir eru dregnar upp í Völuspá um 1000: Sól tér sortna sígur fold í mar hverfa af himni heiðar stjörnur geisar eimi og aldurnari leikur hár hiti við himin sjálfan En að ragnarökum afstöðnum og fimbulvetri, rís ný jörð úr sæ með nýrri gullöld sem virðist draga dám af sjálfvirkniparadís tölvualdar: menn þurfa aldr ei framar að dýfa hendiíkaltvatn. Það er svo ekki fyrr en á „vorum dögurn" að heimsendir er mættur til leiks sem ber enga umbun í sér. Alger tortíming og þarflaust að spekúiera eða spá í hvenær hann muni koma, guð og goðin eru hér orðin að utangátta áhorfendum, það eru mennirnir sem hafa heims- endi í hendi sér, hann er af manna- völdum. Hann er bara þarna, hversdags, svo yfirþyrmandi að ögrar velsæmi að minnast á hann. Því rækilegar hefur hann tekið sér bólstað í undirvitund hvers og eins og brýst upp á yfirborðið jafn- an þegar snurða hleypur á þráðinn eða vanagangurinn fipast. Ekki þarf nema að lyfta festist milli hæða eða skammhlaup verði í raf- magni, þota sprengi hljóðmúrinn og mönnum ber saman um að allra- fyrst hafi þeim komið í hug kjarn- orkusprenging. Ótti sem grúfir yfir, hamfarir sem eru svo yfirnáttúrlegar að umfangi að menn takast ekki einusinni á við þær í huganum, ekki frekar en hinn keppnisglaði Jón Páll gerði sig líklegan til að lyfta Esjunni. Algerleiki þessara endaloka felst ekki í því að öllu sé lokið heldur einmitt hinu: hve þeir sem eftir lifa eru illa settir. Að lokinni sjónvarpssýningu „ÞRÁÐA“ á mánudagskvöldið var sátu menn eins og lamaðir og komið geislavirkt bragð af köldu kaff inu. Augnablik sem brenndu sig í vitundina og bjuggu um sig til frambúðar. Einna eftirminnilegust held ég að mér verði setning úr munni'- forsvarsmanns almannavarna í forspjallinu. Hann hafði látið reikna það út að ef hvellurinn hefði orðið í Keflavík þá um morguninn hefði, þvert ofan í spár sem taka mið af ríkjandi vindátt, hluti af Reykjavík hugsanlega sloppið. Hann sá í því ljósan punkt, maðurinn. I því sambandi mætti velta því fyrir sér hverjar lífslíkur okkar væru ef hér væru engin víghreiður. Eða er herstöðin orðin svo rótföst í þjóðarvitundinni að menn veðja helst á hagstæða vindátt til að sleppa lifandi?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.