Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Blaðsíða 25
DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 25 Þarsem Allah gleymdi olíunni Ég leit við í Tanger í Marokkó um daginn og rakst þar á íslenskan mann á götu. Hann sagði mér að hassið væri ódýrara þarna en víð- ast hvar annars staðar og menn frekar afslappaðir gagnvart hassr- eykingum. Hann var búinn að vera þarna í hálft ár og var ekki á heim- leið. Það er kannski tímanna tákna að menn eru hættir að fara til Nepal og Indlands til að leita að sannleika og ódýru hassi. Nú fara menn til Marokkó þar sem engum dettur í hug að nokkurn sannleika sé að finna en nóg er af hassi. Marokkómönnum er vel ljóst eftir hverju norðanmenn eru að slægjast í Tanger. Manni er boðið hass þar á hverju horni en allnokkrar til- raunir mínar til þess að komast inn í moskur enduðu með undrun og skapvonsku heimaríkra trúmanna en engri innsýn í sannleika Mú- hameðs. Alltfalt Auk hassins eru allar venjulegar ferðamannavörur þriðja heimsins falar í þessari borg, minjagripir, fatnaður og konur. Einn maður byrjaði á því að bjóða mér kaffi og síðar te þegar kaffiboði var hafnað. Því var einnig fálega tekið og þá bauð maðurinn hass og leðurvörur en ég kvaðst ekki í verslunarhug- leiðingum. Maðurinn kvað það bærilega í lagi en spurði hvort ég vildi ekki konu. Ég setti upp lúter- skan rétttrúnaðarsvip við þessu boði en maðurinn afsakaði sig þá fyrir misskilninginn og spurði hvort ég vildi þá ekki eitthvað annað en í sömu veru. Þegar því var þunglega tekið var spurt hvort ég vildi alls ekki kaffi eða te eða hass. Svo eru menn að karpa um opn- unartíma sölubúða á íslandi og hvort sjoppur megi selja þetta eða hitt. Þetta er miklu frjálsara þarna suður frá. Eiginlega paradís neyt- andans, samkeppni, þjónusta og vöruval. Marokkó miðjulaus Konungurinn þarna, Hassan, er líka frjálslyndur maður um margt en allstrangur um annað. Hann segir landið ekki einungis vin Vesturlanda heldur beinlínis hluta af Evrópu. Hann hefur gert ítrek- aðar tilraunir til þess að fá inn- göngu i Efnahagsbandalag Evrópu. Þegar ég var þarna um daginn var þessi skilningur kóngsins á landa- fræði, stjórnmálum og menningu ítrekaður í blaði og því haldið fram að Marokkó ætti að vera hluti af þremur heimum, Evrópu, Afríku og arabaheiminum. Hassan kóngur lætur sér ekki þessa þrjá heima nægja, því hann er að eigin sögn trúarlegur leiðtogi þjóðar sinnar og með merkilegri spámönnum á seinni tíð. Þetta og ýmislegt fleira bæði við Hassan og Marokkó þykir frekar Jón Ormur Halldórsson skrifar frá Haag óevrópskt í höfuðborgum Efna- hagsbandalagsins. Fyrir kónginn og menn hans snýst þetta hins vegar ekki um skyldleika í menningu, lýðræði eða eitthvað úr þeirri áttinni heldur um stórfelld efnahagsleg vandræði, sem munu versna með inngöngu Spánar og Portúgals í Efnahags- bandalag Evrópu. Marokkó er eina landið meðfram strönd Norð- ur-Afríku þar sem Allah kom ekki fyrir olíu undir sandinum. Menn erfa þetta ekki við Allah og virðist moskuræknir í besta lagi og til- búnir að verja guðshús sín fyrir heiðingjum að norðan. Þetta veld- ur hins vegar almennum vandræð- um í landinu og fátækt, sem er svona álíka og það sem skást gerist sunnar í álfunni en mun verri en annað við Miðjarðarhaf, þó að Egyptalandi kannski slepptu. Egyptar eru heldur skár settir en ekki munar miklu og útlitið til lengri tímá þar sennilega raunar enn verra. Marokkómenn hafa selt mikið af ávöxtum til Efhahagsbandalagsins en með inngöngu Spánar í banda- lagið um síðustu áramót versnar aðstaða til þeirrar verslunar. Dýrt stríð Það sem þó er dýrara og daprara fyrir landsmenn er það stríð sem þeir hafa að forsögn kóngsins kosið að heyja um það land sem áður hét Spánska Sahara og þeir innlimuðu þegar Franco dó en lítt reyndur kóngur kom í staðinn. I þetta stríð fer ógrynni fjár sem að hluta kemur raunar frá vestrænum ríkjum. Fyrir Marokkómenn er þetta hins vegar spurning um þjóðarstolt og fyrir svoleiðis hluti eru menn oft tilbúnir að svelta fátækari hluta þjóða sinna. Það sést vel á milli Spánar og Marokkó. Það virðist ekki lengra á milli en úr vesturbænum upp á Akranes. Þegar farið er á milli má svo sjá merki Evrópusögunnar, Gíbraltar undir breskum fána. Þessir fáeinu kílómetrar af sjó skilja hins vegar tvo heima. Það eru víða glögg skil milli þjóða en óvíða gleggri í þessum heimshluta. Marokkó er ekki hluti af Evrópu í neinum skilningi, hvað sem kóng- inum finnst. Landið er hluti af þriðja heiminum og er sá hluti hans sem næst liggur Vestur-Evrópu. Þó ástandið þarna sé skárra en víða um heiminn má strax kenna það sem skilur þriðja heiminn frá hin- um tveim. Götulíf í Tanger; þar falbjóða menn margt sem ekki fæst á frjálsum markaði annars staðar. Vinnandi menn! Á rútustöðinni í Tanger vinna átta manns við að koma fólki inn í eina rútu. Þrír öskra á fólk og hóta vondum málum ef menn hypja sig ekki inn í rútuna sem síðan bíður tímunum saman eftir fleiri farþegum. Hinir fimm skiptast á við að opna og loka liurðum eða gefa skipanir um framkvæmd slíkra verka. Þeir eru þó öllu fleiri, ungu mennirnir í blóma lífsins, sem hanga i kring og horfa á þessa vinnandi menn. Og enn fleiri bíða til sveita eftir að komast í borgirn- ar. Efnahagskerfið er hins vegar ekki sniðið að því þarna frekar en annars staðar að veita mönnum vinnu. Þetta er tímasprengjan sem tifar um þriðja heiminn allan. Og kannski í Evrópu líka, þar sem áttundi hver maður er nú atvinnu- laus. Það er hins vegar vel hægt að koma til Marokkó án þess að sjá þriðja heiminn. Það er búið að byggja þarna ósköpin öll af hótel- um fyrir túrista og þar er meginá- 'hersla lögð á að menn hafi ekki grun um hvar í veröldinni þeir eru staddir. Sú formúla hefur reynst vel annars staðar. Fyrir þá sem eru þreyttir á gömlu ströndunum sín- um er þó boðið upp á þægilega skammta af meintri menningu landsins, sem auðvitað á ekkert skylt við lífið í landinu. fTFffT^fTi vandaðaðar vörur Hleðslutæki 6,12 og 24 volta. Margargerðir. BENSÍNSTÖÐVAR SKELJUNGS Skeljungsbúðin Síðumúla33 símar 681722 og 38125 vandaðaðar vörur Verkfæra- kassar Fyrirliggandi BENSÍNSTÖÐVAR SKELJUNGS Skeljungsbúðin Síðumúla33 símar 681722 og 38125 ♦ ■ ■ Oryggið í ÖNDVEGI MEÐ PHILIPS BÍLPERUM Á bensínstöövum Shell fást ódýrar og endingargóð- ar Philips bílperur í öll Ijós bifreiðarinnar. Skeljungur h.f. Heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI3 - 20455- SÆTÚNI 8- 15655

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.