Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1989, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1989, Blaðsíða 16
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1989! lfr - Oliver Twdst frumsýndiir í kvöld: Kurteis og góður strákur - segir Gissur Páll Gissurarson, 12 ára, sem leikur söguhetjuna Hinn sígildi og klassíski söngleikur Oliver Twist veröur frumsýndur í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Tólf ára drengur, Gissur Páll Gissurarson, stígur þá sín fyrstu spor á sviði Þjóö- leikhússins. Hann leikur sjálfan Oli- ver Twist. Annar en þó mun vanari sviðsmaður er einnig aö stiga sín fyrstu spor á sviði Þjóðleikhússins en það er Þórhallur Sigurðsson, bet- ur þekktur sem Laddi. Hann fer með hlutverk Fagins. Þá eru sextán strák- ar í hinum margvíslegu hlutverkum og fæstir hafa áður stigið á svið. Það er því mikil þolraun sem bíður þeirra félaga í kvöld. „Benedikt Ámason leikstjóri sendi bréf í alla skóla og óskaði eftir uppá- stungum um góðar söngraddir. Það endaði þannig að ég var valinn,“ sagði Gissur er hann var spurður hvað hefði komið til að hann hafi fengið þetta hlutverk. „Ég hef sungið með skólakór Kársnesskóla í tvö ár. Reyndar byrjaði ég þar þá því áður bjó ég í Vestmannaeyjum. Þar var enginn kór. Mér fmnst mjög gaman að syngja og ákvað því að byrja í kómum. Ég var alveg í skýjunum þegar ég fékk hlutverk Olivers Twist,“ segir Gissur. Hann segist hafa farið á flestar barnasýningar Þjóðleikhússins en ekki hvarflað að honum að hann ætti eftir að standa sjálfur á sviðinu. Hins vegar segist hann aldrei hafá- leikið fyrr. Þegar ég kom hér fyrst fannst mér þaö mjög fint, mikið sport. Nú er ég búinn að venjast því. En þetta er mikil vinna.“ Gissur segist hafa misst úr skólan- um vegna æfinga en strax í næstu viku geti hann hafið nám á nýjan leik. „Við emm eiginlega búin að vera að æfa síðan í vor. Mér fannst bókstaflega vonlaust að læra rulluna fyrst þegar ég sá handritið en þetta kom af sjálfu sér. Ég las þetta ansi oft.“ - Kviðir þú fyrir fmmsýningunni? „Nei, ég hlakka til. - Myndirðu vilja leika í fleiri leikrit- - Hvernig strákur finnst þér Oliver um? vera? „Já, ég væri alveg til í það en ég Laddi og Gissur i hlutverkum sínum sem Fagin og Oliver Twist. „Jú, ég geri það. Hann átti bágt.“ Gissur Páll segist eiga nokkur systkin. Tveir bræður hans, Ragnar og Gunnar, sem eru 7 og 5 ára eru heima. Móðir Gissurar er Þórlaug Ragnarsdóttir og fósturfaöir hans er Þorvarður Gunnarsson en faðir hans er Gissur Sigurðsson, fréttamaður á Ríkisútvarpinu. Laddi er einnig í sínu fyrsta hlut- verki í Þjóðleikhúsinu en hann hefur leikið talsvert á sviði í Gamla bíói með Gríniðjunni. Laddi sagði að það væri allt öðmvísi að leika í Þjóðleik- húsinu. „Mér finnst mjög skemmti- legt að vera kominn hingað. Hér er öðruvísi andi en í áhugaleikhúsi, meira skipulag á hlutunum. - Nú ert þú í hlutverki sem er frekar alvarlegs eðlis en ert vanari grín- hlutverkum - er það ekki dálítið frá- brugðiö? „Jú, það má segja það. Þetta er reyndar bæði alvara og gaman. Það er mjög skemmtilegt þegar Fagin bregður á leik.“ - Hvemig leggst hlutverkið í þig? „Ákaflega vel, ég held bara það sé eitt skemmtilegasta hlutverk sem ég hef leikið." - Kvíðir þú frumsýninguhni? „Ég kvíði henni ekki, hlakka frekar til. En það er viss spenna sem fylgir þessu og hún á að vera.“ - Hvernig kanntu við Fagin? „Hann er ágætur að mörgu leyti. Samt sem áður kann ég ekki við svona persónur - en hann er þjófótt- ur og undirförull. Auk þess er hann ekki fríður ásýndum." - Hefur þú lesið söguna? „Ég las hana sem strákur og hafði mjög gaman af,“ sagði Þórhallur Sig- urðsson. -ELA „Mér finnst hann kurteis og góður strákur. Hann er eiginlega bara mjög líkur mér enda emm við orðnir part- ur af hvor öörum.“ - Þú þarft að syngja mikið: „Já, ég er á sviðinu allan tímann í fyrsta þætti og þarf mikið að syngja enda er þetta söngleikur. Mér finnst til dæmis í öllu falli miklu betra að syngja en tala. Ég er ekkert feiminn.“ held aö ég vildi ekki gera þetta að framtíðarstarfi mínu. Þetta er erfitt og ekkert ofsalega vel launað. Ég ætla aö verða flugmaður." - Hvað segja vinir þínir við leikar- ann? „Sumum finnst þetta æðislegt en aðrir geta verið svolítið afbrýðisam- ir.“ - Er kannski hrópað á eftir þér: Oli- ver Twist? „Nei, nei, enda tæki ég það ekki nærri mér. Ég er Oliver Twist.“ - Hefur þú lesið söguna um Oliver Twist? „Hún var lesin fyrir mig þegar ég var pínulítill og þá fannst-mér hún æðisleg. Þegar ég var svona sjö fannst mér hún hundleiðinleg." - VorkennirþúekkertOliverTwist? mm; imwm ——- ■ Alls eru sextán strákar í söngleiknum um Oliver. Hér er hluti þeirra og voru sumir orðnir spenntir fyrir frumsýn- ingu. Þeir heita: Bjarni Óskar, Halldór Sveinsson, Björn Kristjánsson, Elmar Freyr Vernharðsson, Gissur Páll Gissurarson, Árni Sigurður Ingvason og Ólafur Egill Egilsson. DV-myndir GVA Hugrún Iinda á leið í Miss World: Erfitt að koma á eftir Lindu og Hófi Stulkurnar tíu sem tóku þátt í Miss Scandinavian í Finnlandi. Hugrún er númer eitt og Hildur Dungal númer 6. Hugrún Linda Guðmundsdóttir, feguröardrottning íslands 1989, er nýkomin heim frá Finnlandi þar sem hún tók þátt í keppninni Miss Scand- inavia. Hugrún Linda hafnaði í öðru sæti í þeirri keppni. Undanfarið hef- ur Hugrún starfað í tískuversluninni Sautján en er hætt þar sem hún er á förum til London tíl aö taka þátt í keppninni Miss World, sem fram fer 16. nóvember. „Næstu þijár vikur fara í æfingar hjá mér auk þess sem ég þarf að undirbúa mig varðandi fatnað og annað sem ég þarföað hafa með mér,“ sagði Hugrún. „Ég á eftir að láta sauma kjól á mig en ég hef ákveðið að hafa hann svipaðan og þann hvíta sem ég var í á úrslita- kvöldi Fegurðarsamkeppni íslands. Ég hef loforð frá manni sem heitír Michael aö sauma kjólinn en ég hef ekki ennþá hitt á hann. Vona bara að hann sé enn hér á landi,“ sagði Hugrún. - Er ekki erfitt aö taka þátt í þessari keppni nú þegar íslenskum þátttak- endum hefur vegnað svo vel síðustu ár? „Jú, það er mjög erfitt. Það eru áreiðanlega gerðar miklar kröfur til mín. Annars finnst mér verst að þurfa að fara ein til London. Ég reikna ekki með að Gróa Ásgeirs- dóttir, framkvæmdastjóri keppninn- ar, og Linda Pétursdóttir, Miss World, komi fyrr en á síðustu dög- um.“ - En fékkstu ekki einhverja þjálfun í Miss Scandinavia-keppninni? „Sú keppni var hálfhallærisleg. Við vorum í endalausum ferðalögum og kokkteilboðum og mér fannst eins og alltaf væri veriö að sýna okkur. í eitt skiptíð héldum við að við værum að fara á blaðamannafund sem reyndist vera eitthvert karlasam- kvæmi á hóteh. Viö þurftum að kynna okkur fyrir körlunum, ganga um og sýna okkur. Síðan kusu þeir fallegustu stúlkuna," sagði Hugrún. Þess má geta að hún sigraði það kvöldið. „Daginn áður var einnig keppni og þá sigraði sænska stúlkan sem síðar sigraði í keppninni. Mér fannst eins og miklu meiri virðing væri borin fyrir sýningunni hér heima en í Finnlandi. Á úrshtakvöld- inu þurftum við að dansa í sund- bolum," sagði Hugrún og grettí sig. „Ógeðslega hahærislegt." Hún sagði að Miss World keppnin væri miklu flottari og betur skipu- lögð. Ekki segist hún hafa haft mikiö að gera vegna títils síns sem fegurð- ardrottning. „Ég var á Akureyri í sumar og hef ekki gert mikiö fyrir fegurðarsamkeppnina. Hins vegar sagði ungfrú Svíþjóð mér að hún væri í föstu starfi sem fegurðar- drottning þar til næsta krýning fer fram.“ Hugrún verður í rúman mánuð erlendis vegna Miss World keppn- innar. „Við verðum annaöhvort í Taiwan eða Hong Kong áður en keppnin sjálf fer fram, þá við mynda- tökur og æfingar. En ég á eftír að ræða við Lindu Pétursdóttur tíl að fá upplýsingar og ráðgjöf hjá henni.“ -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.