Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1989, Blaðsíða 27
ÞRIÐJW'DAG'UR 17. OKTÓBER 1969.
21'
Fólk í fréttum
Birgir Armannsson
Birgir Armannsson, sagnfræöinemi
við HÍ, var kosinn formaður Heimd-
allar á miðvikudaginn var.
Birgir fæddist í Reykjavík, 12.6.
1968 og ólst þar upp. Hann lauk stúd-
entsprófum frá MR1988 og stundar
sagnfræöinám við HÍ.
Birgir hefur verið blaðamaður á
Morgunblaðinu sl. ár. Hann var for-
seti Framtíðarinnar, 1985-86, og
inspector scholae 1987-88. Birgir var
kosinn í Stúdentaráð fyrir Vöku
1989 og er ritstjóri Vökublaðsins.
'Birgir á tvær hálfsystur, sam-
mæðra. Þær eru Björg Ólafsdóttir,
f. 1976, og Ólöf Ólafsdóttir, f. 1980.
Foreldrar Birgis: Ármann Sveins-
son, f. 14.4.1946, d. 10.11.1968, lög-
fræðinemi og forystumaður í röðum
ungra sjálfstæðismanna, og Helga
Kjaran, f. 20.5.1947, grunnskóla-
kennari. Stjúpfaöir Birgis er Ólafur
Sigurðsson verkfræðingur, f. 18.7.
1946.
Ármann var sonur Sveins,
múrarameistara í Reykjavík, bróð-
ur Sigurbjörns, föður Gunnars
Rafns, bæjarritara í Hafnarfirði.
Sveinn var sonur Sveins, b. í Garðs-
homi á Höfðaströnd, bróður Guðna,
föður Rósberg G. Snædal skálds.
Sveinn í Garðshomi var sonur
Sveins, b. í Dæb í Fljótum, Sveins-
sonar, og Ingiríðar Þorkelsdóttur.
Móðir Sveins múrarameistara var
Gunnhildur Sigurðardóttir, b. í
Hólakoti á Höföaströnd, Jónssonar,
b. á Arnarstöðum í Sléttuhbð, Jóns-
sonar. Móðir Sigurðar var Gunn-
hildur Habgrímsdóttir. Móðir
Gunnhildar yngri var Guðlaúg Rósa
Þorsteinsdóttir.
Móðir Ármanns, Margrét Lilja, er
dóttir Eggerts, oddvita aö Efri-
Brnnná, bróður Jóns, föður Jóns
Komelíusar úrsmiðs. Eggert var
sonur Theodórs, gullsmiðs að Efri-
Brunná, Jónssonar. Móðir Theod-
órs var Margrét Magnúsdóttir,
prests í Steinnesi, bróður Amórs,
afa Benedikts, afa Guðmundar dóm-
prófasts og Guðmundar, fram-
kvæmdastjóra Sementverksmiðj-
unnar. Magnús var sonur Árna,
biskups á Hólum Þórarinssonar.
Móðir Árna var Ástríður Magnús-
dóttir, prófasts í Hvammi, bróður
Árna Magnússonar handritasafn-
ara. Móðir Ástríðar var Sigríður,
systir Páls Vídalíns lögmanns. Sig-
ríður var dóttir Jóns, b. í Víðidalst-
ungu, Þorlákssonar, lögréttumanns
í Víðidalstungu Pálssonar, sýslu-
manns á Þingeyrum Guðbrandsson-
ar, biskups á Hólum Þorlákssonar.
Móðir Sigríðar var Hildur Am-
grímsdóttir, lærða Jónssonar. Móð-
ir Margrétar var Anna Þorsteins-
dóttir, föðursystir Jónasar Hab-
grímssonar skálds.
Móðir Eggerts oddvita var Margr-
ét Eggertsdóttir, b. á Kleifum, Jóns-
sonar, hreppstjóra á Kleifum, hálf-
bróður Jóns yngra, langafa Karls,
afa Péturs Einarssonar flugmála-
stjóra. Annar hálfbróðir Jóns á
Kleifum var Jón eldri, afi Sesselju,
ömmu Gunnlaugs Ásmundssonar,
framkvæmdastjóra Þróunarfélags-
ins. Albróðir Jóns á Kleifum var
Sigurður, langafi Rósmundu, ömmu
Ingibjargar Þorbergs. Annar al-
bróðir Jóns var Brandur, langafi
Rögnvalds, verkstjóra í Sbppnum,
afa Mörtu Guðjónsdóttur kennara.
Þriðji albróðir Jóns var Vigfús,
langafi Björns Guðfinnssonar próf-
essors, föður Fríöu, framkvæmda-
stjóra BÍ, en systir Björns er Agnes,
móðir Björns, skólastjóra Hagaskól-
ans. Fjórði bróðir Jóns var Guð-
mundur, langafi Kristjönu, ömmu
Garðars Cortes óperasöngvara.
Faöir Jóns á Kleifum var Ormur, b.
í Fremri-Langey, Sigurðsson, ætt-
faðir Ormsættarinnar.
Helga, móðir Birgis, er dóttir Birg-
is Kjaran, hagfræðings og alþingis-
manns. Birgir var sonur Magnúsar
Kjaran, stórkaupmanns í Reykjavík
Tómassonar, b. í Vælugerði, Ey-
vindssonar. Móðir Magnúsar var
Sigríður Pálsdóttir, b. og hrepp-
stjóra á Þingskálum, bróður Júb-
önu, móður Helga, yfirlæknis á Víf-
bsstöðum, fóður Ingvars forstjóra,
föður Júlíusar Vífils óperusöngv-
ara. Júba var einnig móðir Sofiiu
bæjarfubtrúa, ömmu Sveinbjamar
I. Baldvinssonar rithöfundar. Páll
var jafnframt bróðir Jóns, afa Jóns
Helgasonar skálds ogprófessors. Þá
var Páb bróðir Ingiríðar, langömmu
Júbusar Sólnes og ömmu Lýðs,
langafa Þórðar Friðjónssonar for-
stöðumanns Þjóðhagsstofnunar.
Páb var sonur Guðmundar, b. á
Keldum, ættfóður Keldnaættarinn-
ar, bróður Stefáns, langafa Ólafs
ísleifssonar hagfræðings. Guð-
mundur var sonur Brynjólfs, b. í
Yestri-Kirkjubæ Stefánssonar, b. á
Árbæ Bjarnasonar, b. og hrepp-
stjóra á Víkingslæk, ættföður Vík-
ingslækjarættarinnar Habdórsson-
ar.
Móðir Birgis Kjaran var Soffia,
systir Sigríðar, konu Páls Einars-
sonar borgarstjóra. Soffía var dóttir
Franz Siemsen, sýslumanns í Hafn-
arfirði, og Þómnnar, dóttur Árna
Thorsteinsson landfógeta, bróður
Steingríms, skálds og rektors. Árni
var sonur Bjarna, stiftamtmanns og
alþingisforseta Thorsteinssonar, b.
í Kerbngadal, bróður Jóns Stein-
grímssonar eldprests. Móðir Árna
var Þómnn Hannesdóttir, biskups í
Skálholti Finnssonar, biskups í
Skálholti Jónssonar. Móðir Þórunn-
ar var Valgerður Jónsdóttir, sýslu-
manns á Móeiðarhvoh Jónssonar.
Móðir Þórunnar yngri var Soffía
Hannesdóttir Johnsen, kaupmanns
í Reykjavík, Steingrímssonar, bisk-
ups í Laugarási, Jónssonar.
Móðir Helgu Kjaran, Sveinbjörg
Kjaran er dóttir Sophusar Auðuns
Blöndal, kaupmanns og skrifstofu-
stjóra á Sigluflrði, bróður Gunn-
laugs Blöndal bstmálara. Sophus
var sonur Björns Blöndal, læknis á
Birgir Ármannsson.
Hvammstanga, bróður Magnúsar
Bjarna, skálds og ritstjóra Reykja-
víkur. Björn var sonur Gunnlaugs
Blöndal sýslumanns, bróður Magn-
úsar Blöndal sýslumanns, Jóns
Auðuns alþingsimanns og Lárusar,
sýslumanns og alþingismanns,
langafa Matthíasar Johannesen rit-
stjóra Morgunblaðsins, Jóhannesar
Bergsveinssonar yfirlæknis og
þeirra Blöndal-bræðra, Bendikts,
Habdórs og Haraldar.
Móðir Björns Blöndal var Sigríö-
ur, systir Benedikts Gröndal skálds
yngri. Sigríður var dóttir Svein-
bjamar Egilssonar, skálds og rekt-
ors, og Helgu Benediktsdóttur,
Gröndal, skálds og yfirdómara.
Móöir Sveinbjargar var Ólöf Þor-
björg, handavinnukennari Hafliða-
dóttir, hreppstjóra og oddvita á
Siglufirði Guðmundssonar, og Sig-
ríðar Pálsdóttur, í Pálsbæ á Sel-
tjarnarnesi, Mangússonar.
Afmæli
Baldur Ásgeirsson
Baldur Asgeirsson mótasmiður,
Hæðargarði 44, Reykjavík, er 75 ára
ídag.
Baldur er fæddur að Kambi í
Deildardal og ólst upp í Fljótunum
og í Reykjavík. Hann lauk námi úr
Iðnskólanum í Reykjavík og fór tb
framhaldsnáms í Þýskalandi í móta-
smíði 1937-38. Hann hefur lengst
af starfað við leirkera- og móta-
smíði, en hefur einnig verið vél-
sfjóri á togara og verkstjóri hjá
verktakafyrirtæki.
Eiginkona Baldurs er Þóra Helga-
dóttir húsmóðir, f. 20.11.1920. Hún
er dóttir Helga Bachmann og Jónu
Jónsdóttur sem bjuggu í Vest-
mannaeyjum og í Reykjavík.
Börn Baldurs og Þóm eru: Edda
húsmóðir, f. 29.9.1940, gift Garöari
Árnasyni bifvélavirkja og eiga þau
þrjú börn; Helgi, f. 18.10.1942, starf-
ar hjá Eimskipafélagi íslands,
ókvæntur og barnlaus; Sigrún Jóna,
f. 3.4.1951, gift Róbert Jack rafvirkja
og eiga þau þrjú böm.
Albróðir Baldurs er Steinþór
verktaki, kvæntur Þorgerði Þórar-
insdóttur.
Hálfsystkini Baldurs í fóðurætt
eru: Ingunn; Fanney, gift Magnúsi
í Freyju; Björn Ólsen, fyrsti flug-
virki á íslandi og stofnandi Stálhús-
gagna; Jón smiður.
Hálfbræður Baldurs í móðurætt
eru: Hjörtur Leó Jónsson, hrepp-
stjóri á Eyrarbakka; Runólfur, b. á
Brúarlandi; Páll, hótelhaldari á
Höfn og Siglufirði; og Ingóbur, b. í
Nýlendu í Debdardal.
Foreldrar Baldurs voru Magnús
Ásgeir Jónsson húsasmiður og
Hóbnfríður Rannveig Þorgilsdóttir.
Faðir Magnúsar Ásgeirs var Jón,
b. á Þingeyrum í Húnaþingi, Ás-
geirsson, alþingismanns Einarsson-
ar, b. í Kobafjarðarnesi, Jónssonar.
Móðir Ásgeirs alþingismanns var
Þórdís Guðmundsdóttir. Móðir Jóns
Ásgeirssonar var Guðlaug Jóns-
dóttir, sýslumanns á Melum í
Hrútafirði, Jónssonar, og konu
hans, Ingunnar Gunnlaugsdóttur.
Móðir Magnúsar Ásgeirs var Ing-
unn Magnúsdóttir Ólsen, dóttir
Runóbs Magnúsar Ólsen alþingis-
manns, Bjöms Ólsen, umboðs-
manns á Þingeyrum.
Móðir Runólfs Magnúsar var Guð-
rún Runólfsdóttir, b.í Sandgerði.
Móðir Ingunnar M. Ólsen var Ing-
unn Jónsdóttir, sýslumanns á Mel-
um, Jónssonar og Ingunnar Gunn-
laugsdóttur. Ingunn, móðir Ingunn-
ar Olsen, og Guðlaug, móðir Jóns
Ásgeirssonar, vora systur og þau
hjónin þar með systraböm.
Hólmfríður Rannveig var dóttir
Þorgfis, b. á Kambi í Deildardal
Þórðarsonar, b. á Kambi, Sigurðs-
sonar, b. á Ingveldarstöðum í
Hjaltadal.
Móðir Þórðar Sigurðssonar var
Anna Jónsdóttir frá Hringveri.
Móðir Þorgfis var Hólmfríður
Markúsdóttir, b. á Skriðulandi,
Baldur Asgeirsson.
Markússonar.
Móðir Hólmfríðar Rannveigar var
Steinunn Árnadóttir, b. á Grundar-
landi, Ásmundssonar, b. á Bjarna-
stöðum, Jónssonar.
Móðir Steinunnar Árnadóttur var
Þóranna Jónsdóttir.
Ólafur Ólafsson
Ólafur Ólafsson verslunarmaður,
Bogahlíð 18, Reykjavík, verður
fimmtugurídag.
Ólafur er fæddur í Reykjavík en
abnn upp í Vestmannaeyjum. Hann
var rennismiður hjá Magna hf. í
Vestmannaeyjum og lærði þar tfi
verks. Einnig vann hann á véla-
verkstæðinu Þór hf. í Vestmanna-
eyjum í tíu ár. Tfi Reykjavíkur flutti
hann 1980 og starfar nú sem versl-
unarmaður í Fálkanum hf. Ólafur
er formaður íþróttafélagsins Aspar
síðan 1981.
Eiginkona Ólafs er Kittý Stefáns-
dóttir húsmóðir, f. 19.3.1945. For-
eldrar hennar eru Stefán A. Pálsson
og Hfidur E. Pálsson, Stigahlíð 4 i
Reykjavík.
Böm Ólafs og Kittýjar eru Ólafur
verkamaður, f. 9.10.1965, og Helga
Ósk verkakona, f. 13.6.1971.
Systkini Ólafs eru: Hans, kvæntur
Rögnu Einarsdóttur og eiga þau tvö
böm; Guðlaug, gift Steingrími Sig-
urðssyni, eigafjögur böm, og
Oddný, gift Sigjóni Þórhabssyni og
eiga þau íjögur böm.
Ólafur Ólafsson.
Foreldrar Ólafs vora Ólafur Ólafs-
son, skipstjóri í Vestmannaeyjum,
f. 5.12.1900, d. 8.8.1978, og kona
hans, Helga Hansdóttir, f. 27.5.1904,
d.27.3.1966.
Ólafur tekur á móti gestum að
Sogavegi 69, sal Stjómunarfélags-
ins, laugardaginn 21. október milb
kl. 17 og 19.
Til hamingju með
afmælið 17. október
85 ára
Sigurður Sveinsson,
Akralandi 1, Reykjavik.
Guðrún Einarsdöttir,
Hraunhmgu 19, Kópavogi.
70 ára
Kristín Marsibil Aðalbjömsdótt
ir,
Eyrargötu 14, Siglufiröi.
60 ára
Di^á Esther Þorvaldsdó t tir,
Ægisíðu 64, Reykjavík.
Ólafur Þorvaldsson,
Hraunsvegi9, Njarövflt.
50 ára
Alda Aradóttir,
JÖklaseb 25, Reykjavlk.
Aslaug B. Ólafsdóttir,
Furulundi 10, Garðabæ.
Guðmundur J. Sveinsson,
Ennishbð 4, Ólafsvík.
Gunnar Björa Jónsson,
Hrauni, Garðabæ.
Hlöðver Þórarinsson,
Raftahlíð 18, Sauöárkróki.
Kolbrún Leifsdóttir,
Bjarkargrund 13, Akranesi.
Þórir Sigurðsson,
Haukadal 3, Biskupstungnahreppi.
Gunnar Þórir Karlsson,
Skólavörðustíg28, Reykjavík.
Hann verður að heiman á afmæbs-
daginn.
40ára
Anna Kristbjörnsdóttir, Gerð-
hömrum 22, Reykjavik.
Bergþóra Ólafsdóttir,
Seljabraut 36, Reykjavík.
Lárus Hnnnesson,
Klyflaseb 13, Reykjavík.
Ólöf H. Guðmundsdóttir,
Hátúni 10B, Reykjavík.