Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990.
ÚtLönd
Ekkert bólar á regni í Evrópu
Þurrkar í Evrópu eru þegar farn-
ir aft M-gia rii sin og nú horfast ibu-
ar meginlandsins í augu viö matar-
skömmtun og lélega uppskeru.
Þó dregiö hafi úr hinum miklu
hitum som gengu yítr Evrópu l'yrr
■ sumar bólar ekkeri á regni og
margir orðnir úrkula vonar um
góða uppskeru i ár. í Erakklandi
segja i’inbættísmenn aö tari hanu
aö rigna tljótlega muni þaö
koma niöur á uppskerunni.
í Sviss er farið aö ganga á vatns-
birgðir og saina má segja um Spán.
Þar hefur úrkoma verið íjórðungi
Miklir þurrkar eru nú i Frakklandi minni síðustu tíu mánuði en aö
eins 09 þessi mynd ber með sér. meöaltah sé miðaö viö siöustu þrja-
símamynd Reuter tiu ar. I Hollandi óttast menn sam-
drátt í uppskeru um fjórðung vegna úrkomuskorts. Á Ítalíu segja bændur
aö tjón af völdum þurrkanna nemi þegar 800 milljónum dollara.
Kveiktiíránsfengnum
Maðurinn, sem rændi banka í Þrándheimi i Noregi í gærmorgun, virt-
ist ekki hafa mikinn áhuga á ránsfengnum. Bankaræninginn, sem er
Líbýumaður, var ekki fyrr kominn út úr bankanum með féð en hann
kveíkti í því.
Hann kom inn í bankann rétt fyrir hádegi og ógnaði starfsmönnum
með hnífi. Neyddust allir til að leggjast á gólfið nema einn sem fyllti. plast-
poka með peningum úr þremur kössum. í gærdag var ekki Ijóst hversu
mikið fé það var sem brann til kaldra kola. Ekki var þó talið að um háa
upphæð haíi veriö að ræða. Bankaræninginn var handtekinn fljótlega.
Hann hafði aðeins veriö nokkra daga í Noregi. Sagðí hann norsku lögregl-
unni aö hann hefði komið til Noregs til að fá hjálp geðlæknis sem honum
hefði verið neitaö ura í Ðanmörku.
Búlgarska stjómin segir af sér
Zhetyu Zhelev, nýkjörinn forseti Búigaríu, ásamt aðstoöarmanni sinum,
Atanas Semerddjiev, á þingi í gær. Simamynd Reuter
Sósialistastjómin í Búlgaríu sagði í gær formlega af sér til að ryðja
veginn fyrir fyrstu stjórnina í landinu sem kosin hefur verið í frjálsum
kosninum í meír en fjóra áratugi.
Búfgarska fréttastofan BTA sagðí þó aö þingið myndilíkfega biðja An-
drei Lukanov, fráfarandi forsætisráðherra, og stjórn hans að sitja áfram
þar tif ný stjórn hefði verið mynduð. Stjóm Lukanovs var mynduö í febrú-
ar síðastliðnum og átti hún að sfjóma fandinu þar til ftjálsar kosningar
hefðu farið fram. Búist var við afsögn stjórnarinnar eftir kosningamar
í júni og útnefningu Zhelyu Zhelev í embætti forseta. Zhelev var áður
andófsmaöur og Ieiðtogi stjómarandstöðunnar. Fyrram forseti Búlgaríu,
kommúnistinn Petar Mladenov, sagði af sér embætti í síöasta mánuði.
Skotidámunka
Öryggislögreglan í Burma skaut á friðsamlega göngu sem búddamunk-
ar leiddu í miðborg Mandalay í morgun. Að sögn vestræns stjómarerind-
reka í Rangoon lét fjöldi munka lífiö.
Stjómarerindrekinn haföi þaö eftir sjónarvottum aö fimm þúsund
manns hefðu tekið þátt í göngu tif aö minnast þeirra sem fétu lífið fyrir
tveimur ámm í mótmælagöngu gegn herstjórninni í Burma. Þá var fjöldi
manns skotinn til bana. I fréttum ríkísútvarpsins í Burma í gærkvöldi
sagði að námsmenn hefðu efnt tll mótmæla i Mandalay undanfarna þrjá
daga. Fréttum um að þrír námsmenn hefðu verið skotnir til bana af örygg-
islögreglu var vísað á bug.
Vaxandi spenna í Armeníu
Innanríkisráöuneyti Sovétrikj-
anna segir að þjóðernissinnar í lýð-
veldinu Armeníu haldi áfram árás-
urn sínum á lögregiu og hermenn. :
Forseti Armeníu, sem óttast aö sov-
ésk stjórnvöld grípi inn í vaxandi
spennu í lýðveldinu, hefur hvatt
íbúana til aö sýna stillingu og lagt
að Moskvusljórninni að hlutast
ekki til um málefni lýðveldisins.
Þjóðernissinnar hafa frest. þar til
á morgun að leggja niður vopn
samkvæmt tilskipun Gorbatsjovs
Sovétforseta. Heimildir herma að
forseti Armeníu hafi tarið til fund-
ar við sovéska embættismcnn til
Vaxandí spenna er nú í sovéska að reyna að koma í veg fyrir blóð-
lýðvetdlnu Armeníu. bað eftir daginn á morgun. Þjóð-
simamynd Reuier emissinnar hafa neitað að leggja
niður vopn en Gorbatsjov segir aö hliti þeir ekki fyrirmælum sínum eigi
hann engra annarra kosta völ en beita hervaldi.
Uppreisnarmaður i Líberíu skýtur stjórnarhermann til bana á götum Monróvíu, höfuðborgar Liberíu.
Ættbálkastríðið í Líberíu:
Simamynd Reuter
Þúsundir f lýja
á degi hverjum
Tvö hundruð þúsund flóttamenn -
hungraðir, sjúkir og deyjandi - eru
í Fendell-flóttamannabúðunum rétt
fyrir utan Monróvíu, höfuðhorg Lí-
beríu. Þrjú til fiögur þúsund flótta-
menn streyma í búðirnar á degi
hverjum, allir fómarlömb blóðugra
átaka í landinu.
Borgarastyrjöldin í Líberíu hefur
nú snúist upp í hörmulegar ætt-
bálkadeflur og kostað þúsundir
manna lífið. Hver sá sem vettlingi
getur valdið flýr nú bardagana á göt-
um Monróvíu og leitar úr fyrir borg-
ina. Matarskortur, bardagar og ætt-
bálkamorð er það sem flóttamenn-
imir flýja. En í búðunum er þegar
of mikið af fólki, hreinlætisaðstaöa
fer versnandi með degi hverjum og
ógna þrengslin og óhreinindi nú
heilsu margra.
í borginni fer ástandið einnig
versnandi, rotnandi lík liggja sem
hráviði um stræti og torg og mikifl
matarskortur er farinn að gera vart
við sig. Margir óttast að farsótt kunni
að brjótast út.
Leiðtogar ríkja í Vestur-Afríku
hafa ákveðið aö senda friðargæslu-
sveit til Líberíu til að koma á vopna-
hléi í þessu sjö mánaða stríði. Fast-
lega er búist við að Nígería sjái sveit-
inni fyrir flestum hermönnum en
þrjú nígerísk herskip eru undan
ströndum Líberíu. \ronast er til að
með þessu megi binda enda á átökin
í landinu sem hófust í desember síð-
astliðnum þegar uppreisnarmenn
hófuárásirsínar. Reuter
Pakistan:
Bhutto gagnrýnin
Þúsundir stuðningsmanna
Benazir Bhutto, sem fyrr í vikunni
var sett af sem forsætisráðherra
Pakstian, fógnuðu henni þar sem
hún kom til heimafylkis síns í gær.
Mikil öryggisgæsla var um Bhutto
og þurfti meira að segja maðurinn
hennar að klífa járngrindverk um-
hverfis flugvöllinn í Karachi til aö
taka á móti konu sinni því öryggis-
þjónar vildu ekki hleypa honum
inn á völlinn.
Bhutto fór frá Islamabad, höfuð-
borg Pakistan, í gær í kjölfar þess
að forseti landsins vék henni úr
embætti, leysti upp þing og þoðaði
kosningar síðar í haust. Hún var
fljót að svara fyrir sig og gagnrýndi
mjög ákvörðun forsetans. Hún
sagði ákvörðun hans brjóta í bága
við stjórnarskrána og lögin. í yfir-
lýsingu frá Bhutto segir að hann
hafi farið út fyrir valdsvið sitt með
því að víkja henni úr embætti.
Reuter
Enn deila Þjóðverjar
Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýska-
lands, vill halda al-þýskar kosningar
í október. Simamynd Reuter
Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands,
og vestur-þýsku stjórnarandstöð-
unni tókst ekki að komast að sam-
komulagi um hvenær sameining
þýsku ríkjanna skuli fara fram né
hvenær halda skuli al-þýskar kosn-
ingar. Kohl og fiokkur hans, kristi-
legir demókratar, vilja flýta bæði
sameiningu og kosningum og hefur
lagt til að kosið veröi 14. október.
Jafnaðarmenn, stjórnarandstæðing-
ar, vilja að sameining eigi sér stað í
september en að kosningamar fari
fram eins og fyrirhugað er, það er
þann 2. desemþer næstkomandi.
Lafontaine, kanslaraefni jafnaöar-
manna í komandi kosningum, segir
að sameining hið fyrsta sé nauðsyn-
leg fyrir efnahag Austur-Þýskalands.
Hann hét því að koma í veg fyrir að
kosningar yrðu haldnar í október en
Kohl kvaðst aftur á móti fullviss um
að austur-þýska þingið myndi fallast
á þingsályktun þar sem hvatt yrði til
kosninga þann 14. október. Til að
flýta kosningum þarf stjómarskrár-
breytingu í Vestur-Þýskalandi. Vest-
ur-þýskir ráðamenn koma saman til
fundar í dag og á morgun.
Reuter