Alþýðublaðið - 18.04.1967, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 18. apríl 1967 48. árg- 86. tbl. - VERÐ 7 KR.
Þingnefnd á móti þjóðarhúsi
FJÁRVEITINGANEFND Alþing
Is hefur skilaff áliti um tillöguna
varðandi llðO ára afmæli íslands
byggðar. Nefndin snýst á móti
huffmyndinni um þjóðarhús á
Heimta að
Kínaforseti
sé drepinn
PEKING, 17 apríl
(NTB-Reuter).
Veggblöö í Pcliing kröfuðst þess
í dag að Liu Shao-chi forseti yrði
dæmdur til dauða fyrir að gera
samsæri um að steypa Mao Tse-
tung af stóli og taka völdin í
sínar hendur. Veggblöðin halda
því fram, að Liu forseti og aöal-
ritari flokksins, Teng Hslao-ping
Framhald ó 13. síðu.
Þingvöllum og 58 binda heildar
útgáfu á íslenzkum bókmennt-
um. Má því telja víst, að þessar
hugmyndir séu úr sögunni.
Sérstök hátíðarnefnd hafði skil
að störfum, eins og frá var skýrt
fyrir nokkru. ÞingsályktimartiIIag
an framlengir Iíf þeirrar nefndar
og felur henni að vinna áfram.
Vill fjárveitinganefnd. að svo
verði og styður tillögur nefndar
innar aðrar en þær tvær, sem
áður voru nefndar.
Allir níu fjárveitingarnefndar-
menn, sem eru úr öllum þing-
flokkum. eru sammála um þetta
álit. Þeir segja: „Nefndarmenn
eru ekki fylgjandi hugmyndinni
um þjóðarhús á Þingvöllum, en
telja hins vegar, að gera þurfi á-
tak til þess að bæta þar, eða í
nágrenninu, aðstöðu til gistingar
og annarrar fyrirgreiðslu við
ferðafólk, og að athuga þurfi nán
ar á hvern hátt þetta verði bezt
gert.“
Þá segir f járveitinganefnd:
„Koma þarf einnig til athugun-
ar, hvernig alfriðun staðarins lal listamannabúðir, ef reistar
verði tryggilegast framkvæmd og j yrðu.
hvaða byggingar verði leyfðar í j Nefndin er hlynnt bókaútgáfu
næsta nágrenni hans, þar á með Framhald á 14. síðu
í úrskurði ráðuneytisins er
hvert kæruatriðanna talið fyrir
sig, rakin rök kærenda og gagn-.
rök meirihluta bæjar.stjórnar í
Hafnarfirði. Tekur ráðuneytið sið-
an afstöðu með kærendum í öll-
um þremur kæruatriðunum. Um
aukningu á útistandan-di útsvör-
um segir í úrskurðinum: „Lög-
Framliald á 13. síðu.
Bætt aðstaða sjúkra-
sjóða verkalýðsféiaga
ALÞINGI gerði í gær að lög-
um frumvarp þeirra Benedikts
Gröndal, Sigurðar Ingimundar-
sonar og Birgis Finnssonar
þess efnis, áð greiðslur at-
vinnuveitenda í sjúkra- og
styrktarsjóði verkalýðsfélaga
skuli framvegis vera lögtaks-
hæfar. Voru þessi lög sett til
að greiða fyrir málum sjúkra-
sjóðanna og koma i veig fyrir,
að greiðslur til þeirra safnist
fyrjr hjá atvinnuvéitendum.
Árið 1961 sömdu nokkur
verkalýðsfélög um það við at-
vinnurekendur að greiða 1%
af kaupi verkamanna og kvenna
í sjúkra- og styrktarsjóði fé-
laganna. Síðan hafa flest verka
lýðsfélög á landinu samið um
og stofnsett sjúkra- og styrktar
sjóði á sambærilegan h'átt.
Vinnuveitendur ihalda nú eft
ir 1% af kaupi fólksins og skila
því til verkalýðsfélaganna. t
seinni tíð hefur þó orðið nokk-
ur misbrestur á þessari inn-
heimtu. Er vonandi að hin nýja
löggjöf hafi þau áhrif, að
sjúkrasjóðunum gangi betur að
innheimta.
Sjúkrasjóðir verkalýðsfé-ag-
anna eru merkileg tryggingar-
starfsemi, sem hefur þegar gert
margvíslegt gagn, og er aðstað®
þeirra styrkt verulega með hin-
um nýju lögum.
Býður Hannibal
fram í Reykjavík?
Alþýðubandalagsfólk, sem
ekki unir hreinum kommún-
istalista í Reykjavík, hélt
fund í Lindarbæ á sunnu-
dagskvöld, og var hann fjöl-
mennur. Urðu þar miklar
umræður og kom fram mik-
il beizkja í garð kommún-
ista, en ekki fékkst niður-
staða um, hvað fólk þetta
tekur til bragðs. Var rætt
um þrjá möguleika:
1. Að bjóða fram annan lista
í nafni Alþýðubandalags-
ins og mundu þá atkvæðl
hans notast bandalaginu
til úthlutunar uppbóta-
sæta.
2. Að bjóða fram lista í
nafni nýrra vinstrisam-
taka.
3. Aö bjóða ekki fram sér-
stakan lista.
Ræðumenn voru milli 15
og 20 og vildi yfirgnæfandi
meirihluti þeirra bjóða fram
og taldi ekki unandi við þá
meðferð, sem kommúnistar
veittu þeim á Tónabíósfund-
inum. Meðal ræðumanna
voru Hörður Bertgmann, Jón
Hannibalsson, Vésteinn Ól-
afsson, Bergur Sigurbjörns-
son, Ólafur Hannibalsson,
Sigríður Hannesdóttir, Berg-
mundur Guðleifsson, Teitur
Þorleifsson. Guðrún Helga-
Framhald á 13. síðu.
unnar.
Fjárhagsáætlun Hafn-
arfjarðar dæmd ógild
4Reykjavík, — KB.
Félagsmálaráðuneytið hefur úrskurðað fjárhagsá*
ætlun Hafnarfjarðar fyrir árið ’67 ógilda og lagt fyrir
bæjarstjórn að taka hana aftur til síðari umræðu og
lögmætrar afgreiðslu. Úrskurður þessi er rökstudd-
ur með því að þeir gallar hafi verið á lokaafgreiðslu
áætlunarinnar að ekki verði hjá því komizt að ógilda
hana.
laga var samþykkt og var af-
greiðslu áætlunarinnar hagað 'í
samræmi við það. Bæjarfulltröar
minnihlutans, Alþýðuflokks og Al-
þýðubandalags, mótmæltu þá þeg-
ar þessum afgreiðslumáta og
kærðu hann síðan til félagsmála-
ráðuneytisins.
Kæra minnihlutans var í þrem-
ur liðum. í fyrsta lagi var kært
yfir framangreindum afgreiðslu-
máta á breytingartillögunum; I
pðru lagi töldu kærendur ólög-
mætt að taka inn í fjárhagsáætlun
Iið undir eignabreytingum, merkt-
■m gjöld „vegna aukningar ó úti-
standandi útsvörum"; og í þriðja
lagi töldu þeir óheimilt að telja
með undir liðnum verklegar fram-
kvæmdir 6,6 milljónir sem ekki
verði varið til verklegra fram-
kvæmda á árinu, heldur fari til
greiðslu á lánum fyrir fram-
kvæmdir, sem þegar hafa verið
Þessi sovézki skuttograri lá
við bryggju hér í Reykjavík
í gær, en hér er staddur um
þessar mundir eins og kunn
ugt er fiskimálaráðherra Sov
étríkjanna í boði Eggerts G.
Þorsteinssouar sjávarútvegs
málaráðherra. Sové2ki ráð-
herrann mun heimsækja A1
þingi a morgun og líta inn
í nokkur söfn, en á fimmtu
dag mun hann fara í sjóferð
á Faxaflóa. Heimieiðis held-
ur hann á föstudag.
Þegar fjárhagsáætlun Hafnar-
fjarðar var til afgreiðslu í janú-
arbyrjun bar meirhluti bæjarráðs
fram tillögu um að vísa frá öllum
breytingartillögum minnihlutans í
einu lagi, en bera þær ekki hverja
fyrir sig undir atkvæði. Þessi til-
♦----------------------------------
r
\
\