Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1995, Qupperneq 6
22
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995
Klæðskiptingarnir og kynskiptingurinn ferðast um óbyggðirnar með rútunni Guy Pearce, sem hér sést léttklæddur i sólinni, þurfti að bregða sér í kjóla
Priscillu. í þessari mynd.
Háskólabíó:
Priscilla: Drottning
eyðimerkurinnar
Háskólabíó frumsýnir í dag grín-
myndina The Adventures of Prisc-
illa: Queen of the Desert eöa Prisc-
illa: Drottning eyöimerkurinnar.
Leikstjóri og handritshöfundur er
Stephen Elliott en í helstu hlutverk-
um eru Terence Stamp, Hugo Wea-
ving, Guy Pearce og Bill Hunter.
í myndinni segir frá þremur sýn-
ingarstúlkum í Sydney, Feliciu, Mitzi
og Bernadettu. Þær fá boö um að
taka þátt í fjögurra vikna kabarett-
skemmtun á feröamannastað í Alice
Springs sem er í miðri eyðimörkinni
í Ástralíu. í fyrstu virðist þetta auð-
velt viðfangsefni þar sem þeim býðst
Leikstjórinn Stephen Elliott.
að skilja öll vandræði sín eftir heima
fyrir. Að komast á staðinn á þó eftir
að réynast þeim erfitt.
Stúlkumar era heldur engar
venjulegar dömur. Felicia og Mitzi
eru klæðskiptingar og Bemadette er
kynskiptingur. Það að hitta karl-
mann í fótum úti í óbyggðum er held-
ur ekkert. venjulegt. Dömurnar
leggja upp í ferðina og nota til þess
rútu sem fær nafnið Priscilla og
óhætt er að segja að ýmislegt gengur
á áður en yfir lýkur.
Myndin var tekin upp á 40 dögum
og að sögn leikstjórans sýndu aðal-
leikararnir, sem allir eru karlkyns,
engan ótta gagnvart hlutverkinu en
enginn þeirra var vanur að klæðast
kjólum eins og gefur að skilja. Fyrir
þá var þetta stórkostlegt tækifæri,
segir leikstjórinn ennfremur.
Terence Stamp, sem leikur Bemad-
ette, hefur leikið í myndum á borð
við The Hit, Wall Street og The Sicil-
ian. Hugo Weaving (Mitzi) lék á móti
Nicole Kidman í The Bangkok Hilton
og Guy Pearce (Felicia) lék í My
Forgotten Man og Heaven Tonight
en íslendingar minnast hans trúlega
best fyrir hlutverk sitt í sjónvarps-
þáttaröðinni Nágrönnum.
Rússneski sendi-
herrann verður
gestur MÍR
Júríj Reshetov, sendiherra Rúss-
lands á íslandi, verður gestur MÍR í
félagsheimilinu að Vatnsstíg 10 á
morgim kl. 15 og flytur tölu um Rúss-
land í dag, nýjustu viðhorf í málefn-
um þessa víðlenda ríkis þar sem
vandamálin hafa hrannast upp mörg
og margvísleg og skoðanir eru skipt-
ar um úrlausnir þeirra. T.d. í efna-
hags- og utanríkismálum. Sendiherr-
ann, sem er nýkominn úr for frá
Moskvu, segir nýjustu tíðindin það-
an en hann flytur mál sitt á íslensku.
Að loknu erindi sendiherrans og
fyrirspumum hefst kvikmyndasýn-
ing kl. 17. Þar verða sýndar tvær
heimildarmyndir um tvö af fremstu
skáldum Rússlands, Fjodor
Dostojevskí og Anton Tsjekhov.
Myndirnar em sýndar í tilefni þess
að verk beggja skáldanna em sýnd
um þessar mundir í leikhúsum í
Reykjavík (Fávitinn í Þjóðleikhúsinu
og Kirsubeijagarðurinn í Leikhúsi
Frú Emilíu).
Kieslowski-hátíð
I lok síðasta árs hófst Kieslowski-
hátíð í Háskólabíói þar sem sýndar
em nokkrar myndir eftir þennan
pólska meistara. Núna er verið að
sýna mynd hans, Tvöfalt líf Verón-!
íku, og lýkur þeim sýningum á
mánudaginn.
Það er eins gott að hafa allt á hreinu áður en stokkið er.
Sambíóin:
Banvænn
fallhraði
- fallhlífarstökkvarar mæta á frumsýningu
Sambíóin frumsýna í kvöld hasarmyndina Banvænan faU-
hraða (Terminal Velocity) þar sem þau Charhe Sheen og Nast-
assja Kinski fara með aðalhlutverkin. í tilefni af þessu ætla
félagar úr Fallhlífaklúbbi Reykjavíkur að sýna svokaUað næt-
urstökk við Sambíóin í Álfabakka í kvöld kl. 20.45. Þar munu
þrír stökkvarar sýna Ustir sínar en sýning myndarinnar hefst
svo kl. 21.
Banvænn fallhraði fjallar um kærulausan fallhlífarstökks-
kennara sem flækist í hringiðu alþjóðlegra njósna og spennu
þegar gullfaUeg og dularfuU stúlka skráir sig í fallhlífarstökk.
Charlie Sheen og Nastassja Kinski í hlutverkum
sínum.
BÍÓBORGIN
Sfml 11384
Kraftaverk á jólum ★*
Jólamynd fjölskyldunnar. Hugljúf og
átakalaus mynd um jófasvein að
störfum i stórmarkaði. -HK
Sérfræðingurinn ★
Stseltir skrokkar og kraftmiklar
Sprengjur, samt grútmáttlaus mynd.
-GB
i bliðu og stríðu ★★
Afengisvandamál og upplausn fjöl-
skyldu í dramatískri kvikmynd sem
ekki fer almennilega af stað fyrr en
eftir meðferð. -HK
Fæddir morðingjar ★★
Amerískir fjölmiðlar og ofbeldisdýrk-
unogOliverStoneáútopnu. -GB
BÍÓHÖLLIN
Sfmf 78900
Martröö á jóium
Sérstök blanda af tekinimyndafigúr-
um og brúðum sem heppnast mjög
vel, auk þess er sagan stórskemmtileg
ogtónlistDannyElfmangóð. -HK
Speed ★★
Ógnarhraðskreið mynd um fífldjarfa
löggu í baráttu við geðbilaðan
sprengjufikil. Ágætskemmtun, -GB
SAGA-BÍÓ
Símí 78900
Skýjahöllin ★★%
Nýjasta islenska kvikmyndin er um
ævintýri Emils og Skunda. Einföld
og öll á haegum nótum en er hin
besta skemmtun fyrír fjölskylduna.
-HK
HÁSKÓLABÍÓ
Stmf 22140
Þrír litir: Rauður ★★★
Frábær endir á þríteik Kíeslowskís um
fánalítina frönsku og einkunnarorð
byltingarinnar, frelsi, jafnrétti og
braeðralag. -GB
Glæstir tímar *★%
Ungur liðhlaupi á upplausnartímum
á Spáni lærir sitthvað um Iffið og
ástina heima hjá gömlum sérvitringi.
-GB
Junior ir'/i
Arnold Schwarzenegger þykknar
undir beltt. Fyndið að hann skyldi
vilja leika I þessari ófyndnu mynd.
-GB
Forrest Gump ★★★
Einstaklega Ijúf og mannleg kvik-
mynd sem lætur engan ósnörtin.
Undraverðar tæknibrellur og stórleik-
ur Toms Hanks er það sem hæst ber.
-HK
Næturvörðurinn ★★★
Framúrskarandi danskur gæsahúð-
artryilir um ævintýri næturvarðar t lík-
húsi. -GB
LAUGARÁSBÍÓ
Stmi 32075
Griman ★★★
Snilldarbrellur, sem samlagast
skemmtilegum tilburðum hjá Jim
Carey, gera Grimuna nánast að ieik-
inni teiknimynd. Góð skemmtun fyrir
alla. -HK
REGNBOGINN
Simi 19000
Bakkabræður í Paradís ★ Vi
Þrir míslukkaðír bófar ræna banka á
aðfangadagskvöld f hálfmislukkaðrí
myndumhinnsannajólaanda. -GB
Reyfari ★★'A
Töff og smart Tarantino um undir-
heimalýð í Los Angeles, ískalt en
ekki nógu gott. -gb
Lilli er týndur ★★
Fjörug mynd um hrakfarir þriggja
bófa sem ræna níu mánaða gömlum
snáða. Teiknimynd með lifandi fólki.
-GB
Atlir heimsins morgnar ★*★
Heillandi, dramatísk kvikmynd um
sannan tónlistarmann, sorg hans,
sköpunargleði og skapbresti sem láta
enganósnortinn, -hk
STJÖRNUBÍÓ
Simi 16500
Aöeins þú ★★
Rómanttsk og stundum væmin gam-
anmynd um leit tveggja kvenna að
ástinni á italiu.
-GB
Það gæti hent þig ★★
Þasgileg og átakalaus skemmtun um
lottóvinningshafa sem gefur gengil-
beinu helminginn. -hk
Bíódagar ★★★
Friðrik Þór hefur gert skemmtilega
og mannlega kvikmynd um æskuár
ungs drengs í Reykjavík og í sveit.