Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1995, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995
Vísnaþáttur____
Guttormur J.
Guttonnsson
Guttormur J Guttormsson fædd-
ist að Víðivöllum viö íslendinga-
fljót í Kanada 21. nóvember 1878,
skömmu eftir að foreldrar hans
festu sér þar byggð, þá nýfluttir
þangað vestur um haf. Sjö ára gam-
all missti Guttormur móður sína
og föður sinn tíu árum síðar. Vann
hann þá á næstu árum við járn-
brautarlagningu, skógarhögg og
hveitiþreskingu og fleira böðuls-
bjástur. Þá gerðist hann landnáms-
maður í Grunnvatnsbyggð í Mani-
toba og bjó þar um þriggja ára skeið
en hraktist á ný til Winnipeg og
gerðist þar umferðarsah og bréf-
beri. Ekki undi hann þar í borgar-
ysnum og fluttist aftur á landnáms-
jörð síná í Grunnvatnsbyggð en
seldi jörðina tveim árum síðar og
gerðist meðeigandi í verslun í
Manitoba. Árið 1911 festi Guttorm-
ur kaup á landnámsjörð foður síns
á Víðivöllum og bjó þar til elli.
Ástarvísu þessa orti Guttormur
undir annars nafni fyrir borgun.
Vonandi hefur sú greiðsla skilað
sér betur til höfundar en þá Ólafur
Kárason Ljósvíkingur orti ástar-
vísumar fyrir Nasa forðum. Vísan
hljóðar svo:
Til þín ennþá, elskan mín,
augunum renni ég glaður.
Upp ég brenn af ást til þín.
Ég er kvennamaður.
Jón Thoroddsen yngri gaf út ljóða-
kverið Flugur 1922. Bar ótímabært
lát hans að með þeim hætti að hann
varð fyrir sporvagni úti í Kaup-
mannahöfn og varð hann mörgum
samferðamanninum mikill harm-
dauði. Eftir hann kveður Guttorm-
ur.
Laufgrein brotin er nú af
íslands skáldameiði.
Ég finn ilminn yfir haf
upp af hennar leiði.
Ljóðakver Guttorms, Bóndadóttir,
kom út 1920. Á eintak Klettafjalla-
skáldsins Stephans G. ritaði Gutt-
ormur þessa vísu:
Þegar nótt á land og lá
leggst og hljótt er inni,
blundaðu rótt á beði hjá
bóndadótturinni.
Til Káins kveður Guttormur svo:
Þegar K.N. kom til mín
kærri en vissi nokkur,
Bíldfells klára kampavín
kunnuga gerði okkur.
Næsta vísa er heimsádeila og hggur
Guttormur ekki á skoðun sinni á
auðmennsku og okkur hinum bet-
ur stæðu. Vísa hljómar þannig:
Þó þeir gangi gleiðir í
góðverkanna kápu,
skila þeir aldrei aftur því
atgervi sem þeir drápu.
Eitthvað hefur meðalmennskan
veriö Guttormi til angurs þó nú sé
hún tignuð og hið eina rétta. Er
Guttormur aö fára fram á slíka
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
smámuni sem þá að eitthvað þurfi
aö búa meira í þeim er ganga
menntaveginn. Svo kveður piltur:
Skólafræðsla mörgum manni er
veitt
mikil eöa lítil, sama er eitt:
O’n í daufan Geysi sápa er sett,
svo hann geti tómri froðu skvett.
Næsta vísa ber yfirskriftina Öfug-
mæli en er kannski ekki svo mikil
öfugmæli ef að er gætt:
Betra er að vera af guöi ger
greindur bóndastauli,
heldur en vera hvar sem er,
hámenntaöur auli.
Vel kveðin sléttubönd eru alltaf til
yndisauka. Þannig kveður Gutt-
ormur:
Riddu gandi Ijóða létt,
léttu anda dráttinn.
Bíddu landi! Sláðu slétt
sléttubandaháttinn.
TIL SÖLU
FORD F-350 double cab, 4 dyra,
árgerð 1992, ekinn 19 þús. mílur, 38" dekk,
351, bensín, leðurklæddur, o.fl. o.fl.
„Einn glæsilegasti bíll landsins".
Uppl. hjá P. Samúelssyni hf., s. 634450.
Matgæðingur vikurmar
Lundir á aust-
urlenska ví su
„Þar sem ég er að vinna ahán
daginn í verslun minni reyni ég að
hafa fljótlegan mat virka daga og
læt þá ímyndunarafhð ráða hveiju
sinni. Mér finnst leiðinlegt að eyða
alltof löngum tíma í matargeröina,
vh heldur hafa kvöldið lengra. Það
er þó skemmtilegt þegar maður er
með matarboð.
Þessi uppskrift sem ég býð upp á
er mjög fljótleg og einföld. Ég læt
kjötið ekki alltaf marinerast í hálf-
tíma enda var ég ekki nema um
fjörutíu mínútur að útbúa svona
máltíð núna í vikunni og hafði þá
líka hvítlauksbrauð með,“ segir
Edda Sverrisdóttir, matgæðingur
vikunnar og verslunarmaður.
„Mér líkar alltaf best að nota
þumalputtaregluna þegar ég elda
þannig að mælieiningar höföa ekki
til mín. Mér finnst líka að fólk geti
breytt og bætt eftir sínu höfði. Ég
nota fljótsteikt kjöt í þessa upp-
skrift og steiki ahtaf í potti. Mér
finnst oft gott að hafa fínan mat
tvisvar í viku til að stytta vikuna,
sérstaklega á vetrum. Þá hefur
maður frekar snarl á laugardög-
um,“ segir Edda.
Hún segist hafa mjög gaman af
að prófa nýja rétti og les mat-
reiðslubækur sér th skemmtunar.
„Ég er lítið fyrir fastsettar upp-
skriftir en reyni frekar að fá hug-
myndir með því að lesa þær enda
er ég alltaf að breyta þeim. Þessi
uppskrift sem ég gef hér er dijúg
og dugar vel fyrir fjóra. Ef óvænta
gesti ber að garði ætti frekar að
bæta við gijónin heldur en kjötiö,"
segir Edda enn fremur en hér kem-
ur uppskriftin.
500 g beinlaust kjöt, t.d. svína-,
Edda Sverrisdóttir, matgæðingur
vikunnar og verslunareigandi.
DV-mynd ÞÖK
nauta- eða lambalundir, innanlæri
eða kjúkhngabringur.
2 msk. sojasósa
2 msk. ostrusósa
4-5 dropar tabasco-sósa
1 tsk. marinn hvítlaukur
1/2 msk. mulið koriander
1/2 tsk. karrí „paste“ (blautt karrí)
salt eftir smekk
Öllu blandað saman í víða skál.
Kjötið skorið mjög þunnt í sneiðar
(á stærð við tíkall) og sett í marin-
eringu. Ath! að dreifa marinering-
unni vel yfir kjötið. Látið standa á
borði í hálfa klukkustund. Þó er
það ekki nauðsynlegt ef fólk er að
flýta sér.
Kjötið er síðan steikt í 50 g af
kókósfeiti (Cream Coconut) og 1
tsk. af rifinni ferskri engiferrót.
Sósa
200 g hthr heilir sveppir eru brún-
aðir í mataroliu þar til þeir eru ljós-
brúnir. Þá er 1-2 msk. af ostrusósu
og slurk af sojasósu dreift yfir þá
og brúnað áfram smástund eða þar
til sveppirnir eru þaktir í sósunni.
Þá er ijóma, svona einum og hálf-
um dl, heht yfir sveppina og látið
sjóða í augnablik.
„Með þessum rétti ber ég fram
hrísgijón og meðlæti sem er mjög
gott með kjöti jafnt sem fiski en það
eru smátt skorin hálf agúrka, smá-
vegis sojasósa og rauðvínsedik og
u.þ.b. matskeið af sesamfræjum
yfir. Þessi blanda er mjög góð og
passar nánast með hveiju sem er.“
Regnbogasalat
lambhagasalat
radicchio rosso salat
tómatar
gul paprika
Salatið rifið niður, tómatar og
paprika skoriö í bita og lagt í skál.
Dressing eftir eigin smekk. Best er
að bera fram salatið á eftir heita
réttinum því þá meltist það mun
betur.
„Ég ætla að skora á Steingrím
Guömundsson, trommuleikara og
verslunareiganda, að vera næsti
matgæðingur en hann er sá flink-
asti sem ég þekki að búa til úr tofu.
Hann er eldklár að elda austur-
lenskan mat,“ segir Edda Sverris-
dóttir, matgæðingur vikunnar.
Marinering
Hinhliðin
Ólafía Hrönn er
uppáhaldssöngkonan
- segir Hávar Sigurjónsson leikstjóri
Havar Sigurjónsson leikstjóri
sýnir á sér hina hliðina að þessu
sinni. Hann er nýbúinn að setja upp
leikritiö Taktu lagið, Lóa! sem feng-
ið hefur góða dóma.
Hávar lærði leikstjórn úti í Lon-
don og kom heim frá námi 1983.
Fyrstu árin eftir heimkomuna
starfaði hann viö auglýsingagerð
og blaðamennsku jafnhliða leik-
stjórn. Síðustu þrjú árin hefur
hann eingöngu fengist við leik-
stjórn og hefur verið fastráðinn
leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu frá
1993.
Fullt nafn: Hávar Siguijónsson.
Fæðingardagur og ár: 3. september
1958.
Maki: Hhn Sveinbjömsdóttir.
Börn: Siguijón, 10 ára, Hróhur, 5
ára, og tvíburarnir Auður og Svein-
björn, 8 mánaða.
Bifreið: Mercedes Benz, árg. ’77.
Starf: Leikstjóri.
Laun: Aldrei nóg.
Áhugamál: Fyrir utan leikhúsið
eru þaö hestar og svo þykir mér
gaman að gera við bíhnn minn.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Nei.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að leika við bömin mín.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Þegar ég þarf að setjast niöur
undir morgun til að klára eitthvað
sem ég var búinn að lofa fyrir
löngu.
Hávar Sigurjónsson.
Uppáhaldsmatur: Lambasteik.
Uppáhaldsdrykkur: ískalt vatn.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Mér líst ágætlega á
Magnús Scheving.
Uppáhaldstímarit: Se og hör.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Auður
dóttir mín er ógurlega sæt.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Andvígur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Eg myndi gjaman vilja eyða
tíma með Peter Brooks leikstjóra.
Uppáhaldsleikari: David Thewhs,
aöalleikarinn í kvikmyndinni
Naked, er ágætur.
Uppáhaldsleikkona: Franska leik-
konan Juhette Binoche.
Uppáhaldssöngvari: Ólafía Hrönn
er í miklu uppáhaldi hjá mér þessa
dagana.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Svav-
ar Gestsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Ég
á enga.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Taggart.
Uppáhaldsveitingahús: Við Tjörn-
ina.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Næsta bók sem ég ætla að lesa er
Grandavegur 7.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 1 er ágæt.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Enginn
sérstakur.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég horfi bara á Sjón-
varpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Eng-
inn sérstakur.
Uppáhaldsskemmtistaður/krá: Ég
fer ekki á svoleiðis staði.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ekkert.
Stefiiir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að halda mínu striki.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
var mestan tímann heima með ný-
fæddu tvíburunum og æfði mig að
skipta á þeim.