Þjóðviljinn - 20.11.1969, Page 1
Nýi álsamningurmn lagður fyrir Alþingi
Ríkisstjórnin lagði í gær fraim
á Alþingi „frumvarp til laga um
lagagildi viðaukasamninga milli
ríkisstjórnar fslands og Swiss
Aluminium Ltd., um álbræðslu
við Straumsvík.“
Efni frumvarpsins er það að
staðfesta og veita laigaigildi saimn-
ingi þeim seim rikisstjórnin gerði
við hið svissneska auðfélag, og
hennar hálfu 28. október sl. Fyr-
ir Swiss Aluminium undirrita
samninginn Emianuei R. Meyer
og Paul H. Mulfler.
f greinargerð frumvarpsins er
aðalefni þess lýst svo:
„Samningurinn, sem nefndur
er fyrsti viðauki við aðalsamn-
inginn, fjalfer um tvennt að
ari áfanga álbræðslunnar, þ.e.
síðairi kerslkálans og þeim miann-
vii'kjum, sem honum .fylgja,
verði hraðað tifl verulegra muna
frá því, sem fyrri skuldbinding-
ar stóðu til. Skal þeirri upp-
byggingu að fullu lokið hinn 1.
sc-ptember 1972, en fyrri frestur
náði til ársins 1975. Hins vegar
er svo um samið, að fraimieiðslu-
Fimmtudagur 20. nóvember 1969 — 34. árgangur - — 256. tolublað. Jóhann Halfstein -undirriitaði a£ því slegid föstu, að bygging síð- Framhald á 3- síðu
*
Alþýðubandalagið í Reykjavík Alþýðubandalagið í Kópavogi
Kynnið ykkur rök EFTA-andstæðinga
• Hvað um EFTA og iðnaðinn?
® Hvað um ísland utan EFTA?
9 Hvað um EFTA og atvinnuna?
9 100 miljóna markaðurinn — hvað um hann?
9 Af hverju er Alþýðubandalagið eini flokkur-
inn sem berst á móti aðild að EFTA?
Opinn borgarafundur um ísland og EFTA verður hald-
inn í Austurbæjarbíói annað kvöld og hefst hann kl. 21.
Ræðumenn á fundinum verða Bjarni Einarsson, for-
maður Félags dráttarbrauta- og skipasmiðjaeigenda,
Hjalti Kristgeirsson hagfræðingur, Magnús Kjartans-
son, ritstjóri og Þröstur Olafsson, hagfræðingúr.
Lúðvík Jósepsson sem á sæti í EFTA-nefnd svarar fyr-
irspurnum fundarmanna.
Guðmundur J. Guðmundsson, varaform. Verkamanna-
félagsins Dagsbrúnar er fundarstjóri á fundinum.
Bjarni Einarsson
■ A éií
Hjalti Krlstgcirsson
Magnús Kjartapsson
Þröstur Ólafsson
Lúðvík Jósepsson
Guðmundur J. Guðmundsson
Stórátaks er
ö Fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar' um úrbætur
vegna neyðarástandsins í sjúkrahúsmálum geð-
sjúklinga eru alltof smávaxnar, 9agði Magnús
Kjartansson í. umræðum á Alþingi í gær, eftir að
heilbrigðismálaráðherra Jóhann Hafs'tein hafði
lýst því hvað stjórnin hefði framundan í því máli
að auka sjúkrahúsarými fyrir geðsjúklinga. Nú
þegar er brýn þörf 200 - 300 sjúkrarúma, og mikið
vantar á að fyrir því sé séð með hinum smávöxnu
framkvæmduim sem fyrirhugaðar eru. Taldi Magn-
ús að ríkisstjórn og Alþingi, og þjóðin öll, ættu
að leggjast á eitt um stórátak í þessum málum.
Ráðherrann taldi að nú mætti
reikna með 240 sjúkrarúmum ó
Kleppi, og með útitoúum þeim sem.
spítalinn höfur víðsvegar um land
á spítölum og hælum, séu til reiðu
345 rúm fyrir geðsjúklinga, og þar
við bætist 32 á Borgarsjúkrahús-
inu-
Fyriiihuguð væri 90—100 manna
deild í sambandi við Landspít-
alann, en þar vært enn eftir að
skipuleggja hina nýju lóð spítal->
ans- Hins vegar væri Kleppsspít-
alanium ekki ætlað að standa til
frambúðar og yrði brátt að ta'ka
ákvörðun um hvort eigi að byggja
sérstakan aðalspítala eða hafa
desldir í teingslium við aðra spítala.
Ráðherrann viðurkenndi að brýn
þörf væri á auknu sjúkrarými
geðsjúkliinga og hefði heilbrigð-
isstjórnin talið að kvennaspítali og
fæðingardeild og svo geðsjúkl-
ingaspítali hlyti að verða næstu
stórframkvæmdirnar þegar Land-
spítalanum væri lokið.
Um endurhæfingarskilyrði
minnti ráðherramn á vinnustof-
umar á Kleppi þar sem 56 sjúkl-
ingar ynnu árið um kring að ým-
is konar handavinnu- Á Reykja-
lundi hefðu komizt upp fyrir for-
göngu Geðvemdairfélagsins vinnu-
stofur fyrir um 30 fyrrverandi
geðsjúklinga, unnið væri að því
að gera Hvítabarjdið að endur-
hæfingarstöð íyrir tauiga- og geð-
sjúklinga og yrðu þar um 32 plass,
og í athugun væri að stofna geð-
verndardeild fyrir börn og ung-
linga í húsnæði isem Reykjavíkur
borg á við Dalbraut.
f framsöguræðu sagði Magnús
m-a-: Ég ber hér fram við heil-
brigðismálaráðherra svohljóðandi
fyrirspurn: „Hvað hyggst níkis-
stjórnin að gera til þess að auka
sjúkrarýmd handa geðsjúklingum
og tryggja þeim bæ'tta aðstöðu til
enduúhæfingar?“
Þessi fyrk’Sipurn er ekiki borin
fram að ástæðulausu. Geðsjúk-
dómar eru langalgenguistu sjú'k-
dómar hér á landi og raunar Ihvar-
vetna um hei-m. Hins vegar fér
því mjög fjarri að . viðbúnaður
okkar til þess að annast geðsjúkl-
inga og lækn-a þá, eftir því sem
geta hrekkur til, sé í samræmi
við þörfdna- Sérfræðingar telja að
þörfin á sjúkrarými vegna geð-
sjúklinga sé nú 600 rúm- Á aðal-
Framhald á 3- síðu
Siysvið rafsnðu
á Akureyri
Slys varð í Slippstöðinni á Ak-
ureyri rétt fyrir hádegi í gær, er
tunna, sem maður var að rafsjóða
pall á, hófst skyndilega á loft og
í mannion og slengdi honum á
gólfið- Lenti tunnan á andliti
manns.ins og slasaðist hann nokk-
uð, ekki þó hættulega. og liggur
hann nú á sjúkrahúsi-
Hafði tunnan sem maðurinn
var að rafsjóða á verið verið not-
uð undir vinnupalla og átti að
sjóða á hana flöt til að fáta spýt-
urnar vera á, en þess ekki eætt,
að í tun-nunni var affallsolía af
bílum og sennilega kornið benzín-
gas saman við og mun hafa vald-
ið slysinu.
Míljónatjón í bruna í
□ í gærkvöld kl. 9,25 kviknaði í Fiskimjöls-^
verksmiðjunni í Njarðvík og stóð hún í Ijósum
logum, þegar blaðið fór í prentun um miðnætti í
nótt. Stóðu eldslogar út um alla glugga og slökkvi-
lið frá Keflavíkurflugvelli og Keflavík réði ekki
við eldinn sökum erfiðleika við vatnsöflun og
voru allar horfur á því, að verksmiðjan myndi
brenna til kaldra kola. Er það tjón alít að 15
miljónum króna að mati Magnúsar Kristinssonar,
eins af eigendum verksmiðjunnar.
Þegar komu á vettvang 4 til | flugvelli og úr Keflavík. Um það
5 slökkviliðsbílar af Keflavíkur- I leyti, sem þeir komu á vettvang
fór rafmagnið af Innri-Njarðvík
og gerði dælustöðina í kauptún-
inu óvirka.
Þá var brugðið á það ráð að
flytja vatn að á 20 til 30 tonna
tankbílum til þess að slökkva
eldinn. Reyndist það ónógt vatn
þar eð eldurinn var svo magn-
aður. — Fiskimjölsverksmiðjan
stendur á sjávarbakka og kom
til greina að nota sjó, en há-
f jara var um 22-leytið í. gær-
kvöld. Þá kom til greina að
sækja vatn í brunn þarna ná-
Iægt, en þar lækkar vatnið og
hækkar við flóð og fjöru. Var
ekkert vatn þav að fá vegna
fjörunnar. Virtust þaimig allar
bjargir bannaðar til þess að
slökkva eldinn og var gert ráð
fyrir, að verksmiðjan myndi
brenna til kaldra kola, og um
23 leytið var kviknað i mjöl-
birgðum verksmiðjunnar. Það
voru 100 til 200 tonn. sagði
Magnús Kristinsson. Lýsistank-
ur og frystihús eru þarna í ná-
grenninu. Var talið líklegt að
verja mætti þau eldinum. Talið
var í gærkvölcS, að kviknað hefði
í út frá rafmagnstöflu niðri í
veYksmiðjunni. Var unnið í gær-
dag í verksmiðjunni við frá-
gangsvinnu. Vinna um 6 til 7
manns í verksmiðjunni að stað-
aldri.
t