Þjóðviljinn - 16.09.1970, Blaðsíða 7
Míðvlfcudaiguír 1«. septemlbter 1970 — ÞJÓBVTUINN — SÍÐA f
SKÚLI GUÐJÓNSSON:
Hann er þá
svona litur,
heilagur andi
„Þegar verið er að tala um skipulagrningu og áætianagerðir í landlbúnaði, vill það venjulega gieymast að forsenda þess að slík
skipulagning lánist og að áætlanir standist er komin undir sól og, regni. Og enn hefur mönnum ekki tekizt að skipuleggja náttúru-
öflin, jafnvel ekki einu sinni að segja fyrir um hvernig þau muni haga sér á næstu dögum“.
I Þjóðviljamuim 13. áigúst birt-
ist viðtal við Guðmiund Þor-
steinsson, bónda á Skálpastöð-
um í Lundareykjadal. Af um-
sögn blaðsins virðist mega ráða,
að viðtal þetta sé efnislega
samlhljóða ræðu um landbún-
'aðarmál, er Guðmumdur hafði
áður filutt á kjördæmisráðsteffnu
Alþýðuibandálagsins í Vestur-
landskjördæmi.
Guðmundur gerist nokkuð
fjölorður um stefnuleysá það,
sem hann telur að ráfct hafi í
landlbúnaði okkar. Slcal þvi út
af fyrir sig ekki mótmælt. Það
er að visu vont, að hafa enga
síefnu. Þó er það illskárra, en
hafa stefnu, sem liggiur inn í
blindgötu, eða beint fram af
hengiflugi. Þegar verið er að
tala um skipulagningu og áætl-
anagerðir í landbúnaði, vill það
venjulega gleymast, að fórsenda
þess að slík skipulagning lán-
ist og að áætlanir standist er
komin undir sól og regni. Og
enn hefur mönnum ekki tekizt
að skipuleggja náttúruöflin,
jalfnvel efcki einu sinni að segja
fyrir um, hvemig þau muni
haga sér á næstu dögum.
Við búum hér við yzta haf,
þar sem allra veðra er von og
hinir ólíklegustu atburðir geta
að höndum borið. Jafnvel Guð-
mundur á Skálpastöðum mun
efcki hafla bréf upp á það, að
hann muni um sína daga verða
undanlþeginn öllum skráveifum
og uppákomum af náttúrumnar
hendi.
1 hreinskilni saigt mun ég
biðja forsjónina um að fá að
búa enn um sinn við stefnu-
leysið og skipulagsleysið í ofck-
ar landbúnaði, heldur en að fá
yfi-r mig stefnu þó, sem Guð-
mundur reynir að boða bænd-
um og öðrum landslýð í áður-
nefindu viðtali. Skal mú nónar
að henni vikið.
Þar kom G-uðmundur ræðu
sinni, að hamn tók. að fjalla um
aflfiramleiðslu íslenzikra búvara.
Einnir þar datt hann ofan á
ráð, er hann taldi að duga
myndi til þess að bægja þessari
vá frá landbúnaðinum.
Báðið var einfalt. Þó á að
leggja í harðindasvæðin í eyði
og korna fólkinú þaðan burtu.
Svo að maður unni Guðmundi
fulls sannmælis, sfcal því ekfci
gleymt, að hann viDl fiaxa að
öllu með gót og auðsýna fyllstu
mannúð og nærgætni, það er
að segja: svelta fólkið burt
upp á flínan og fcristilegan
móta.
Hann vill láta rílúð kauipa
jarðimar af bændum, og meir
að segja fyrir gott verð. Hann
vili láta skrúfa fyrir fjárfest-
ingarlán til hinna dauðadæmdu
byggða. Hann vill aðvara fólk-
ið í táma, svo að það hafi
noktourn frest og ráðrúm til að
leita sér annarrar staðíestu.
Hann viTl meir að segja leyfa
þeim, sem em svo þráir að þeir
þverskallast gegn örlögum sín-
um, að búa í eyðimörkinnd, eins
lengi og þeir kunna að ósfca.
Svo mörg em þau orð og
hefðu þó mótt vera fleiri.
Það hefði t. d. verið gott að
fá nónari skýrimgu á því, hvað
væm harðindasvæði, eða þá að
minnsita kosti einhverja tillögu
um það, hverjum ætti að fá
það vald í hendur, að álkveða
sMfct. Það hefði einnig verið
gött að tá eínhverja ábendingu
um, hvað ætti að gera við fóllk-
ið úr þorpunum, þegar byiggðin
umhverfis þau er fallin í auðn.
Svo sem eins og til að undir-
strika, að hér er full alvara á
ferð en ekkert grín, lsetur Guð-
mundur í ljós vanþóknun sina
yfir þvi, að bændum harðinda-
svæðanna hefur verið veittur
nolkkur styrkur til heyfllutninga
á undanfömum árum og telur
að það hefði frekar verið
ástæða til að veita þeim styrk
til þess að fækfca búpeningi.
En Guðmundur getur sofiið
rólegur á komandi vetri. Nátt-
úmöflin em honum hliðholl.
Þótt allt verði gert til þess að
aiflla heyja inn á harðindasvæð-
in, verða bændur þar að fækka
bústofni sínum á þessu hausti,
svo að um munar, og það án
allra styrkja af opinberri hálfu.
Sé þjóðarheill undir þvíkom-
in, eins og sumir virðast trúa,
að dregið verði úr búvöm-
framledðslu 1 landinu, á ekki
að gera það með því að slátra
larnbi fátæka mannsins. Það
er hægt að hugsa sér aðrar
leiðir, mannúðlegri. Það væri
t. d. hægt að hugsa sér þó leið,
að tryggja hverjum bónda
framleiðslukostnaðarverð, fyrir
ákveðið hárnark afurða. Síðan
gæti hver og ednn gert upp
við siig, hvort hann kysi held-
ur, að selja afganginn á því
verði, sem fyrir hann fæst í
útlandinu, eða draga úr fram-
leiðslunni. Ég hefi gert grein
fyrir þessari skoðun minnj áð-
ur, bæði hér í blaðinu og í
útvarpserindu-m, og fer ekki
frekar út í þá sálma að sinni
Það væri þjóðfélagsleg
glópska, að játast undir byggða-
eyðinigarfcenningu Ouðmundar á
Sfcálpastöðum. Innan flárra ára,
þarf þjóðin á öllu sínu landi að
halda. Þá myndi það reynast
erfiðara og þyngra í vöfum, að
endurbyggja heil hémð, en
halda byggðinni vdð, þótt með
nöfckrum tilfcostnaði væsri.
En við, sem búum í hinum
dauðadæmdu byggðum, munum
berjast gegn þ\d að dauða-
dóminum verði fullnægt afi
öllu því harðfylgi, sem okitour
er afi guði gefið, eins og hver
sá, sem er að berjast fyrir
líifi sínu. Við vitum, að þessi
barátta mun verða erfið, ef til
viil vonlaus.
Við þurfum ekki ednungis,
að berjast við kulda, grasbrest
og öskufall, tómlæti og skiln-
ingsskort stjómvalda, heldur
einnig við stéttarbræður oifckar
sem halda sig vera á grænni
grein, og jafnvel flokksbræður, ^
að ógleymdum þeim ósköpum,
sem á manni hafa dunið hina
síðustu daga, vegna búvöm-
verðhækkuriarinnar, frá ýmsum
mönnum, ónefndum, sem í
blöðin skrifia.. Það verður að
segjast alveg umbúðalaust, þótt
það kunni að móðga einhvem,
að okltour hér norður á Strönd-
um finnst vandi þeirra, sem
nú verða að greiða dálitið
hærra verð fyrir mjólk og kjöt
en þeir áður gerðu, sé hlægi-
lega smár, sé hann borinn sam-
an við þau vandfcvæöi, sem
ofckur hafa að höndum borið
og við höfum þó ekki verið
fjölorðir um, fram að þessu.
Svo er guði fyrir þafckandi,
að Aliþýðubandalagið hefiurékki
enn, að því er ég bezt veit,
komið því í verk að sfcapa
sér stefnu f landbúnaðarmálum.
Vona ég að það dragist sem
lengst.
Stefna sú, sem Guðmundur á
Sfcálpastöðum boðar lesendum
Þjóðvdljans, veður aldrei fcennd
við neinn stjómmálaflokk. Það
er einfialdlega borgfirzk sér-
hagsmunapólitík, sem þama
rekur fram trýnið.
Það skýzt upp úr honum, á
einum stað í viðtalinu, að
Borgfirðingar gætu framleitt
allla þá mjólk, sem Reykja-
vfkursvæðið þyrfti á að halda.
Minna mótti það eifcki vera.
Hann gerir auðsjáanlega efcki
ráð fyrir því, að hin fcalda
hönd dauðans muni nokkru
sinni leggjast yfdr tún og rælfct-
unarlönd þeirra Borgfirðinga.
Einu sinnd var karl að Xesa
Jónsbókarlestur fyrir fcerlingu
sína, og var hedlagiur andi mik-
ið á dagskrá. En meistari Jón
hafði þann hátt á, að nota
skammstafanir og táknaði heil-
agur með stóru hái. Las kari
samfcvæmt bókstafnum og sagði
alltaf háandi, þegar neifna
skyldi heilaigan anda. Kerling
vildi þá leáðrétta bónda sinn í
lestrinum og saigðd: Þú átt ekki
að segja héandi, þetta er hedl-
agur andi. Karl fer þá að rýna
í stóra gotneska H-ið og segir,
að lokinni athugun: Hann er þá
svona litur, heilagur andi, kol-
svartur, með fcringlóttu gaifi f
miðjumni.
Landlbúnaðairsteffna Guðmurbd-
ar á Sfcálpsstöðum minnár á
þennan heilaga anda. Hún er
kolsvört, með fcringlóttu gatí í
miðjunni.
Og kringlótta gafið í rniðj-
unni er Borgarfjörðurinn.
Skrifað á fyirsitu nóttum sept-
embermónaðar, meðan mest
þaut í Þjóðviljanum út af bú-
vöruhækkuninni.
Skúli Guðjónsson,
Ljótunnarstöðum.
j>-
NámskeiS íyrír organleikara
í Húnavatnsprófastsdæmi
Dagana 22.—29. ágúst s. 1. var
halddð á Blönduósi námskeið
fyrir kirkjuörganleikara í Húna-
vatnsprófastsdæmi á vegum
Kirkjukórasamibands Húna-
vatnsprófastsdæmis. Námskeið-
ið var haldið í Blönduósskirkju
og stóð yfir frá kl. 20,30—23,00
á hverju kvöldi. Kennari nám-
skeiðsins var dr. Róbert Abra-
ham Ottósson söngnnálastjóri
ÞjóSkirkjunnar. Nómskeiðið
sótfai 12 organleiikarar og oöng-
stjórar. Hlostir voru öll tovöldin,
en sumir gátu ekki verið allan
tímann söfcum anna heima fyr-
ir.
Þessdr organleikarar og söng-
stjórar sóttu námsfceiðið:
Heigi Olafsson oxganledkari
við Hvammstangakirkju. Sig-
ríður Kolbeins organleikari
Melstaðarkirikju í Md' firði.
Þórður Vigfússon organleikari
Víðidalstungukirkju. Ingibjörg
Bergmann arganleikari Þing-
eyrakirkju. Hávarður Sigur-
jónsson Stóru-Gdljá. Sigrún
Grímsdóttir organleikari Undir-
fellskirkju í Vatnsdal. Sólveig
Söevifc organleikari Blönduóss-
kirkju. Gorður Aðalbjömsdóttir
organleikari Holtastaðakirkju.
Guðmundur Sigfússon fyrrv.
organledfcari Bergsstaðakirkju í
Svartárdal. Jón Tryggvason.
organleikari Bólstaðarhlíðar-
kirkju og söngstjóri Karlakórs
Bólstaðarhlíðarhrepps. Kristján
A. Hjartaison origanleikari
Hólaneskdrkju í Höfðakaupstað.
Guðmundur Kr. Guðnason org-
anleikari Hofskirkju í Skaga-
hreppi. Dómhildur Jónsdóttir
prófastsfrú Höfða, Skagaströnd.
Guðmann Hjálmarssion söng-
stjóri Blönduósi. Kristófer
Kristjánsson Köldukinn söng-
stjóri Karlakórsdns „Vötou-
menn“.
Ffcamhald á 9. síðu.